Mikið Newcastle slúður - Endurkoma til Chelsea? - Rodri til Real - Torres á Old Trafford
   þri 31. mars 2026 15:57
Elvar Geir Magnússon
Toronto
Kvendómari flautar leik Haítí og Íslands
Eimskip
Carly Shaw-Maclaren og hennar teymi ásamt formanni kanadíska sambandsins.
Carly Shaw-Maclaren og hennar teymi ásamt formanni kanadíska sambandsins.
Mynd: Kanadíska fótboltasambandið
Í dag leikur íslenska landsliðið gegn Haítí í seinni vináttulandsleik gluggans. Leikurinn hefst 16:30 að íslenskum tíma og verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Það er kanadískt dómarateymi á leiknum og dómarinn er kvenkyns, hin 29 ára gamla Carly Shaw-Maclaren sem hefur verið alþjóðlegur dómari síðan 2022.

Lestu um leikinn: Haítí 0 -  0 Ísland

Gerard-Kader Lebui og Twayne Anderso eru aðstoðardómarar og Mathieu Souare fjórði dómari.

Dómgæslan var talsvert í brennidepli þegar Ísland mætti Kanada síðasta laugardag en vonandi verða Shaw-Maclaren og hennar teymi með allt í teskeið í dag.
Slapp
Athugasemdir
banner