Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
Sterkastur í 2. umferð - Búið að vera langt ferli
Jói Kalli: Leikskipulagið gekk ekki alveg upp
Jökull orðinn helvíti þreyttur á að ákvarðanir fari gegn Örvari
Birnir Snær: Þegar við erum 'on it' þá er ekkert lið sem stoppar okkur
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Haraldur Freyr: Þetta var barnalegur varnarleikur hjá okkur
Valgeir: Flökkuðu einhver orð á milli okkar og því fór sem fór
Ólafur Ingi: Pínu heppnir að hanga á þessu
Rúnar Kristins: Hann er nánast eins og nýr leikmaður
Lúkas Logi: Vinnum sem lið og klárum leikinn saman
Haddi: Veit ekki hvort þetta sé "fair play" eða ekki
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Sölvi Geir: Áttum inni víti
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Hrafn Tómasson: Kom ekkert annað til greina en að koma grjótharður til baka
Hemmi: Fínt að byrja snemma og meira eftir af helginni
Siggi Höskulds: Rosalega fá lið sem ráða við KR á þessu tempói
Óskar Hrafn: Að sækja markmann er ozempic leiðin
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Cecilía Rán: Vorum nálægt því að skora á móti þeim síðast
   lau 28. mars 2026 20:48
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Eimskip
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Nú hefst nýr kafli með hann innanborðs
,,Nú hefst nýr kafli með hann innanborðs"
Mynd: KSÍ
Fótbolti.net ræddi við Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfara, eftir 2-2 jafntefli gegn Kanada í æfingaleik í dag. Orri Steinn Óskarsson sneri aftur í hópinn eftir langa fjarveru og skoraði bæði mörk liðsins. Það gladdi landsliðsþjálfarann mikið.

Lestu um leikinn: Kanada 2 -  2 Ísland

„Klárlega endurkoma landsliðsfyrirliðans, tvö frábær mörk. Við erum að spila á móti Kanada á útivelli, þetta var alltaf að fara verða erfitt verkefni. Þeir eru töluvert ofar en við á heimslistanum, 2-2 er ekki alveg til skammar en við erum með vonsvikna leikmenn í klefanum því við hendum frá okkur forskoti og seinni hálfleikurinn var ekki eins og við vildum hafa hann sem voru vonbrigði. Mér líður eins og við höfum tapað leiknum," sagði Arnar.

„Þeir fá gefins víti og eins og allir sem hafa spilað leikinn og horft þá gefur það kraft og innspýtingu og áhorfendur fara láta í sér heyra. Við þurfum að læra, ég ætla ekki að segja að við hefðum brotnað, en að þola mótlæti, lesa betur í leikinn og hvað þarf til að sigla sigrum heim við erfiðar aðstæður. Þeir kaffærðu okkur inn í okkar vítateig í full langan tíma eftir fyrsta markið."

„Svo fá þeir annað víti sem var pjúra víti, klaufalegt af okkar hálfu. Þetta var erfitt eftir fyrsta vítið en fram að því, vorum við að spila tiki-taka fótbolta? Nei, vorum við með góða stjórn? Mér fannst það."

Kanadamenn voru erfiðir viðureignar í seinni hálfleik.

„Mér leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980. Svo mikill kraftur í þeim og aðstæður eru fullkomnar fyrir svona lið, mikill vindur í fyrri hálfleik og snjóaði smá og völlurinn ekki nægilega góður. Þetta varð seinni bolta leikur, við erum ekki með líkamlega sterkasta lið í heimi en mér fannst strákarnir gera vel í fyrri hálfleik. Við vorum að reyna vinna einvígi, mörkin voru góð," sagði Arnar.

Arnar segir að það hafi verið sárt að hafa ekki Orra Stein til taks í undankeppni HM.

„Klárlega. Hann sýndi gæðin sín, okkar fyrirliði og leiðtogi. Það var sárt að hafa hann ekki í undankeppninni en hún er búin. Nú hefst nýr kafli með hann innanborðs, vonandi helst hann heill, engin ástæða til að halda annað. Hann er hrikalega öflugur leikmaður fyrir okkur."

„Þegar þú hefur allan tímann í heiminum til að láta ekki of margar hugsanir til að trufla þig. Hann var greinilega löngu búinn að velja sitt horn og var rólegur og yfirvegaður. Að sama skapi í seinna markinu, aggresív pressa hjá Mikka. Þetta var á jákvæðu nótunum," sagði Arnar.
Slapp
banner