SKÝRSLAN: Þróttur áfram í 16-liða úrslit eftir sigur í Eyjum
Hvað réði úrslitum?
Þróttara virkuðu ferskari og beittari í sínum sóknarleik. Dálítið þreyttir í lok leiks og í framlengingu en héldu út og unnu að lokum í vítaspyrnukeppni. Þórhallur, markvörður Þróttar, varði svo auðvitað tvær spyrnur í vítakeppninni og var hetja leiksins í lokin.
Bestu leikmenn
1. Aron Snær Ingason
Var allt í öllu í sóknarleik Þróttar. Brunaði upp völlinn margoft í leiknum og skildi varnarmenn ÍBV oft eftir í rykinu. Var svo með stoðsendinguna í seinna marki Þróttar.
2. Adam Árni Róbertsson
Adam gerir bæði mörk Þróttara í venjulegum leiktíma. Það fyrra með góðum skalla eftir hornspyrnu og það seinna af mikilli yfirvegun. Verð auðvitað að nefna Þórhall Ísak Guðmundsson, markvörð Þróttar, þar sem hann ver tvær vítaspyrnur í vítakeppninni.
Atvikið
Tvö færi ÍBV í seinni hálfleik, fyrst þegar Filip, framherji ÍBV, fékk gott skallafæri, skallar í stöng og fékk boltann aftur og fór illa með það frákast. Þarna var staðan 0-1 fyrir Þrótti. Þróttur kemst svo 1-2 yfir og þá fær Arnar Breki dauðafæri frá markteigslínu en hittir boltann illa og eina sem hann þurfti að gera var að stýra boltanum í netið.
Hvað þýða úrslitin?
Þróttur kemst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins en Bestu deildar lið ÍBV fellur úr keppninni í byrjun apríl.
Vondur dagur
Það hlítur bara að vera Felix Örn og Pisco, leikmenn ÍBV, fyrir að klúðra sínum vítaspyrnum.
Dómarinn - 8
Flottur leikur hjá Gunnari Oddi. Engin sérstök vafaatriði og var hann með fulla stjórn á leiknum.


