Leik lokið!
90. mín
+2
Ljóst að Víkingur verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit. Þau verða svo spiluð 13. og 14. maí samkvæmt plani á ksi.is.
90. mín
Fjórar mínútur í uppbótartíma. Arnar Þór Stefánsson, skiptastjóri Play, lyftir upp skiltinu.
87. mín
InnMagnús Þórðarson
ÚtIsrael Garcia Moreno
87. mín
InnRóbert Orri Þorkelsson
ÚtValdimar Þór Ingimundarson
86. mín

84. mín
Þrjú sjálfsmörk í þessum leik!
Og báðir markverðirnir búnir að setja boltann í eigið net!
81. mín
MAAAARK!
Viktor Freyr Sigurðsson (sjm)
Óskar fer framhjá Kennie og gefur fyrir, þessi bolti endar í markinu! Boltinn fer af Viktori markverði Fram og endar í markinu!80. mín
VÍKINGAR SVARA STRAX!
Elías Már Ómarsson (stoðsending: Elías Már Ómarsson)
Elías skorar með skalla af stuttu færi! Hornspyrna frá Helga Guðjóns. Vatnhamar skallar boltann fyrir á Elías sem skorar!78. mín
FRAM JAFNAR!
Ingvar Jónsson (sjm)
Skalli frá McLagan eftir aukaspyrnu sem fer í stöngina og í Ingvar og inn! Það er alls ekki hægt að segja að þetta mark hafi legið í loftinu.77. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtDaníel Hafsteinsson
77. mín
InnKristófer Konráðsson
ÚtMár Ægisson
75. mín
Gult spjald
Gunnar Vatnhamar
Fram fær aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Vikings. Haraldur Einar með spyrnuna.75. mín
Erlingur Agnarsson nær skalla á rammann úr þröngu færi en Viktor Freyr ver. Víkingar halda áfram að vera bitmeiri.
74. mín
Víkingar að einoka boltann. Komið talsvert síðan Fram náði að skapa sér teljandi færi.
72. mín
Daníel Hafsteins haltrandi og fær aðhlynningu. Smá pirringur í mönnum inná vellinum núna. Daníel heldur leik áfram.
69. mín
Þung sókn Víkings endar með skoti frá Daníel Hafsteins framhjá. Miðað við leikinn núna eru Víkingar líklegri til að bæta við en Fram að jafna.
67. mín
InnErlingur Agnarsson
ÚtStígur Diljan Þórðarson
66. mín
Fram ekki langt frá því að skora annað sjálfsmark, boltinn skaust af McLagan og endaði ofan á þaknetinu.
64. mín
InnJakob Byström
ÚtVuk Oskar Dimitrijevic
Byström verið að glíma við meiðsli en er klár í að spila lokakaflann.
64. mín
Helgi Guðjóns með skot langt framhjá.
60. mín
Stígur Diljan!
Óskar Borgþórs með fyrirgjöf, Stígur með skallann sem Viktor Freyr slær yfir. Hætta á ferðum.
59. mín
Gunnar Vatnhamar brotlegur rétt við boðvangana. Tók Freysa niður. Rúnar Kristins vildi sjá Helga Mikael lyfta gulu en varð ekki að ósk sinni.
53. mín
Framarar að ógna, endar með skoti frá Simon Tibbling sem Ingvar ver af öryggi.
50. mín
Mark Stígs Diljans í myndum




48. mín
Már Ægisson vinnur hornspyrnu fyrir Fram eftir sendingu frá Kennie Chopart. Ná ekki að búa til neinn mat úr horninu.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
Daníel Hafsteins sparkar seinni hálfleiknum af stað.
46. mín
InnViktor Örlygur Andrason
ÚtGylfi Þór Sigurðsson
Gylfi af velli í hálfleik.
45. mín
Þrjú lið úr Bestu deildinni að fara að falla úr leik í dag
ÍBV og Þór hafa kvatt bikarkeppnina þetta árið, áður en Besta deildin kemst af stað, og ljóst að þriðja úrvalsdeildarliðið verður fallið úr eftir 45 mínútur, kannski meira.
45. mín
Framarar þurfa að opna sig og láta vaða á Víkingana, yfir 5 mörk á Epic er á stuðlinum 1.93
45. mín
Fram á heimaleik gegn ÍA í fyrstu umferð Bestu deildarinnar, leikurinn verður eftir rúma viku. Lárus Orri og Dean Martin, þjálfarar ÍA, eru mættir með skrifblokkina upp í stúku.
Njósnarar frá Akranesi

45. mín
Mini myndaveisla úr fyrri hálfleik í boði Hafliða Breiðfjörð








45. mín
Líflegur fyrri hálfleikur að baki
Víkingar fara brosandi inn í klefa eftir að hafa lent undir í leiknum.
45. mín
Vuk kemst í hættulega stöðu en nær ekki að nýta sér hana. Þetta hefur verið mjög góð skemmtun hér í fyrri hálfleik.
43. mín
Markamínútan mikla! Frábærlega klárað!
Stígur Diljan Þórðarson (stoðsending: Peter Oliver Ekroth)
Oliver Ekroth með sendingu sem splundrar vörn Fram og kemur Stíg í dauðafæri. Hann klárar með stæl og boltinn syngur í netinu. Íslandsmeistararnir hafa snúið þessu við!43. mín
INGVAR BJARGAR!
Kennie Chopart á svaka skriði, kemur sér inn í teiginn og leikur á varnarmann og kemst í dauðafæri. Tekur skotið en Ingvar gerir vel og lokar. Fram svo nálægt því að ná forystunni aftur.
41. mín
Svo sannarlega gult!
Haraldur Einar Ásgrímsson
Tók hressilega tæklingu á Valdimar og fær verðskuldaða áminningu.40. mín
Mörkunum fagnað


38. mín
Israel Garcia reynir að bæta upp fyrir sjálfsmarkið og tekur skot af löngu færi en Ingvar Jóns ver auðveldlega.
35. mín
Þetta jöfnunarmark Víkings hafði legið í loftinu og nú verður spennandi að sjá þróun leiksins.
30. mín
Víkingar jafna! Heppnisstimpill yfir þessu marki
Israel Garcia Moreno (sjm)
Gunnar Vatnhamar ætlaði að senda boltann en hann tók flugið af Israel Garcia leikmanni Fram og endaði við samskeytin, óverjandi fyrir Viktor! Mögulega skráist þetta sem sjálfsmark en sem meðlimur í vinafélagi Færeyja þá skrái ég þetta á Gunnar. Uppfært: Eftir að upptaka af þessu hefur verið skoðuð betur get ég ekki gefið Gunnari þetta mark... því miður. En stoðsending á hann!28. mín
Víkingar eru að banka nokkuð fast
Daníel Hafsteins í góðri stöðu í teignum en hittir boltann ekki sérlega vel og hittir ekki á rammann.
27. mín
Gylfi með fína skottilraun
Rétt fyrir utan teig, boltinn meðfram gervigrasinu en fer rétt framhjá. Viktor Freyr var búinn að skutla sér og hefði væntanlega tekið þetta ef skotið hefði verið á rammann.
24. mín
Stöngin! Elías með stangarskot
Eftir þunga sókn Víkings stýrir Elías Már boltanum í stöngina af stuttu færi! Munaði litlu að Víkingur jafnaði.
23. mín
Framarar tilkynntu í gær að Ægir Jarl væri formlega kominn til félagsins. Hann er að glíma við minniháttar meiðsli og fylgist með leiknum í dag úr VIP rýminu.
03.04.2026 18:49
Ægir Jarl tilkynntur hjá Fram (Staðfest)
19. mín
Freyr Sigurðsson með fyrirgjöf en fallhlífarbolti sem er bara léttur æfingabolti fyrir Ingvar Jónsson.
16. mín
Fyrirgjöf inn i teig Fram. Viktor Freyr og Stígur lenda í samstuði í baráttu um boltann. Viktor markvörður Fram þarf aðhlynningu en getur haldið leik áfram.
15. mín
Víkingar féllu út í 32-liða úrslitum í fyrra
Víkingur tapaði fyrir ÍBV í Vestmannaeyjum á þessu stigi bikarkeppninnar í fyrra. Ekki úr vegi að rifja það upp í ljósi stöðunnar hér í Dal draumanna.
14. mín
Gylfi með skot úr aukaspyrnu af nokkuð löngu færi, beint á Viktor Frey sem ver af miklu öryggi.
13. mín
Framarar leika listir sínar, frábær spilamennska skilar horni en ekkert merkilegt verður úr hornspyrnunni.
10. mín
Heyrðu mig nú! Þetta var ekki eðlilega einfalt
Kennie Knak Chopart (stoðsending: Kyle Douglas Mc Lagan)
Kyle með langa sendingu fram og skyndilega var Kennie sloppinn einn í gegn og kláraði faglega milli fóta Ingvars í marki Víkings! Þarna splundraðist vörn Víkings á ótrúlega einfaldan hátt. Frábært fyrir leikinn að fá mark snemma!7. mín
Fín spilamennska milli Gylfa og Óskars en Viktor í marki Fram á ekki vandræðum með að handsama fyrirgjöf Óskars frá hægri.
2. mín
Vuk með skot við vítateigsendann en varnarmenn Víkings ná að komast fyrir. Víkingar koma svo upp hinumegin og Valdimar á fyrstu marktilraun þeirra en skot hans framhjá markinu.
1. mín
Framarar hófu leik
Víkingar sækja í átt að sundlauginni i fyrri hálfleik. Dagur B. Eggertsson vígði einmitt rennibrautina í þeirri laug.
Fyrir leik
Niko Hansen tognaði í fyrradag
Kom fram á RÚV. Er þess vegna ekki með Víkingi í dag. Spurning hvort hann verði klár í opnunarleik Bestu deildarinnar á föstudag, þegar Víkingur tekur á móti Breiðabliki.


Fyrir leik
Þungur kross
Liðin eru að hita upp og þjálfararnir tveir; Rúnar Kristinsson og Sölvi Ottesen, standa á miðlínunni og spjalla saman. Í græjunum er verið að spila lagið Þungur kross með Dimmu. Gott val.
Fyrir leik
Lykilmenn vantar hjá Fram - Sigurjón, Fred og Byström að glíma við meiðsli
Varnarmaðurinn Sigurjón Rúnarsson, brasilíski töframaðurinn Fred hinn sænski Jakob Byström eru allir að glíma við meiðsli. Byström er þó í hóp og gæti spilað einhverjar mínútur en hinir tveir eru ekki í hóp.
Fyrir leik
Spennandi verður að sjá hvernig Elías Már Ómarsson stendur sig í fremstu línu hjá Víkingum í dag. Hann hefur ekki farið með himinskautum á undirbúningstímabilinu en nú er alvaran að fara af stað og tilvalinn tímapunktur til að stíga upp.
Spennandi að sjá Elías

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn.
Gylfi Þór Sigurðsson og Gunnar Vatnhamar voru í landsliðsverkefni þegar Víkingur vann Vestra 4-0 í Meistarakeppni KSÍ á dögunum en koma báðir inn í byrjunarliðið.
Nikolaj Hansen skoraði tvö mörk gegn Vestra en er ekki á skýrslu og Elías Már Ómarsson kemur inn.
Sóknarmaðurinn Atli Þór Jónasson er á láni hjá Fram frá Víkingi og er ekki með í dag. Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er ákvæði í lánssamningi Atla og Fram þarf að greiða Víkingi væna summu ef hann kemur við sögu í leik á móti þeim í sumar.
Gylfi og Elías Már byrja - Atli ekki í hóp hjá Fram

Fyrir leik
Bjart og fallegt
Það er bjart og fallegt yfir Dalnum, dal draumanna eins og hann kallast. Ég er búinn að koma mér fyrir í fréttamannastúkunni og hér á sömu hæð er gott fólk að ræða málin og spá í spilin yfir kaffibolla. Ormslev feðgar, Valtýr Björn og Daði Guðmunds svo einhverjir góðir menn séu nefndir.
RÚV er að koma sér í startholurnar fyrir útsendingu og byrjunarliðin fara að detta í hús á næstu mínútum!
Fyrir leik
Íslandsmeisturum Víkings er spáð toppsæti Bestu deildarinnar í sumar
Fyrir leik
Aðstoðardómarar: Egill Guðvarður Guðlaugsson og Þórður Arnar Árnason.
Fjórði dómari: Arnar Þór Stefánsson.
Eftirlitsmaður: Ingvar Örn Gíslason.
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

Fyrir leik
Góða og gleðilega páska
Hér verður bein textalýsing frá áhugaverðum slag milli tveggja öflugra liða í 32-liða úrslitum bikarsins. Það er hreinlega dapurt að annað þessara liða þurfi að kveðja keppnina í kvöld.











