SKÝRSLAN: Breiðablik átti ekki í vandræðum á Króknum
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum í dag var bara gæða og getu munurinn á liðunum. Breiðablik er bara í næsta klassa og skiljanlega þeir verða í toppbaráttu í Bestu deildinni og Kormákur/Hvöt eru í 2. deild.
Bestu leikmenn
1. Ágúst Orri Þorsteinsson
Kom inn á 63' í stöðunni 0-2, gjörsamlega breytti leiknum fyrir Blikana. Allt í einu duttu Blikar bara í 6 gír! þvílíkur hraði sem hann býr yfir og frábær á boltanum! Setti 2 og átti stoðsendingarnar í hinum 2 mörkunum í seinni hálfleik. Hefði verið gaman að sjá endatölurnar ef hann hefði verið inn á allan leikinn!
2. Höskuldur Gunnlaugsson
Fyrirliði Blika átti góðan leik í dag! Skoraði fyrsta markið og fór fyrir sínum mönnum sem þurftu að vera þolinmóðir í öllum sínum aðgerðum sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem Kormákur/Hvöt lá mjög aftarlega á vellinum og varðist vel framan af. Óli Valur og Kristófer Ingi áttu svo báðir mjög góðan leik
Atvikið
Set atvikið á mark Kormáks/Hvatar en hinn ungi og efnilegi Trausti Þór Þorgilsson skoraði eiginlega bara uppúr engu, það var ekkert að gerast og algjört einstaklingsframtak hjá honum að ná að setja boltann framhjá Antoni Ara í marki Breiðabliks
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það einfaldlega að Breiðablik er komið áfram í 16. liða úrslit Mjólkurbikarsins en Kormákur/Hvöt sitja eftir með sárt ennið og eru dottnir úr leik.
Vondur dagur
Kannski ekkert sérstaklega vondur dagur hjá neinum en það kom lítið frá Moussa Ismael Sidibe Brou í liði Kormáki/Hvatar í dag, var ítrekað flautaður rangstæður þegar þeir áttu séns á skyndisóknum og virkaði heldur hægur
Dómarinn - 7
Ég hef ekkert út á dómsgæsluna að setja í dag, engar stórkostlegar ákvarðanir sem þurfti að taka og bara fínasta flæði


