Fotbolti.net
@saebjornthSæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þór
Þór
Mjólkurbikar karla
Boginn
Leikið innanhúss
2 - 4
FH
FH
Ragnar Óli Ragnarsson 19'1 - 01 - 130' Arnór Borg Guðjohnsen1 - 234' Adolf Daði Birgisson1 - 367' Aron Birkir Stefánsson (sjm)1 - 471' Adolf Daði BirgissonAron Ingi Magnússon 92'2 - 4
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Nýja FH leit vel út

Hvað réði úrslitum?

Mér fannst FH halda svipuðum takti allan leikinn og á köflum þar sem Þórsarar döluðu aðeins þá nýttu gestirnir sér það. FH gerði færri mistök í sínum leik, í raun mjög fá fannst mér, og það skilaði sigri í dag. FH er með gæðaleikmann í Kjartani Kára sem ógnaði mikið og er hættulegur bara með því að vera inn á. Hann var svo með þá Adolf Daða, Arnór Borg og Gils með sér og þeir gerðu Þórsurum lífið leitt í mörkunum.

Bestu leikmenn

1. Tómas Orri Róbertsson

Fannst hann vera potturinn og pannan í leik FH, tengdi vörn og sókn saman, var með mesta attitjúdið á vellinum og keyrði liðsfélagana með sér. Lagði upp fyrsta mark FH í leiknum.

2. Tobias Carlsson

Tobias leit mjög vel út í hjarta varnarinnar hjá FH í dag, sannfærandi í sínum aðgerðum og FH virðist hafa hitt á réttan mann með því að fá hann inn. Leit allavega mjög vel út í dag. Sóknarmennirnir fjórir allir góðir, en mér fannst hinir þó standa upp úr.

Atvikið

Þriðja mark FH, Kjartan Kári átti fasta fyrirgjöf með vinstri sem Aron Birkir tók séns á að færi fjær marki en hún gerði og fékk einhvern veginn boltann í sig og inn.

Hvað þýða úrslitin?

FH fer áfram í 16-liða úrslitin en nú eru bara 27 deildarleikir framundan hjá Þórsurum. Næst á dagskrá er fyrsta umferðin í Bestu, útileikir hjá báðum liðum eftir átta daga.

Vondur dagur

Alls konar bras fannst mér á Þórsurum í dag. Það var engin stemning í Boganum og lífið í heimamönnum svolítið í takti við það. Yann Affi var vanstilltur fannst mér, annar leikurinn á stuttum tíma þar sem mér finnst hann ekki líta vel út. Aron Birkir í markinu er gripinn í landhelgi í þriðja marki FH sem fer svolítið með leikinn. Þórsarar höfðu fannst mér ekki trú á endurkomu á þeim tímapunkti sem var skrítið, því munurinn var einungis tvö mörk. Sebastian Haugland var ósýnilegur í fremstu línu í sínum fyrsta leik, eina jákvæða við hans frammistöðu var það að hann fékk mínútur á vellinum, súrt að það hafi verið í leik sem skipti máli.

Dómarinn - 7

Fannst Siggi heilt yfir dæma þennan leik vel. Út frá sjónarhorni mínu og því sem sást úr myndavél RÚV þá fannst mér samt mjög hart að leyfa marki FH úr hornspyrnu í fyrri hálfleik ekki að telja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.