Leik lokið!
92. mín
Natasha með skemmtilega takta og gestirnir að komast í hættulega stöðu en Ása Björg nær ekki að koma boltanum fyrir.
92. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
90. mín
Þrjár mínútur í uppbót
88. mín
Ekki mikið sem bendir til annars en að FH nái sínum fyrsta sigri hér í kvöld.
84. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtDanai Kaldaridou
84. mín
InnRut Sigurðardóttir
ÚtSigríður Emma F. Jónsdóttir
82. mín
FH aðeins að banka þessa stundina en vörn gestana heldur.
79. mín
Þær skora ekki!?!
Mistök hjá FH og Sophia Romine fær flugbraut að marki en Aldís kemur frábærlega út á móti og lokar vel en missir boltann aðeins undir sig en varnarmenn FH fljótar að átta sig og koma boltanum burt!
Þarna hefðu gestirnir átt að jafna leikinn!
Þarna hefðu gestirnir átt að jafna leikinn!
77. mín
Thelma Lóa kemur sér í gott skotfæri en Genevieve ver frá henni en heldur ekki boltanum en FH svo dæmdar brotlegar í baráttunni um frákastið.
73. mín
InnTinna Hrönn Einarsdóttir
ÚtLily Anna Farkas
67. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtHelena Maree Errington
67. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtNia Raisa Christopher
64. mín
Sárt fyrir gestina en FH er alveg sama um það! Þær leiða á nýjan leik!
FH nær forystu aftur!
Ingibjörg Magnúsdóttir
Ingibjörg nær frákastinu og skilar því í netið!Sárt fyrir gestina en FH er alveg sama um það! Þær leiða á nýjan leik!
64. mín
HÚN VER!
Nia Raisa Christopher
63. mín
FH fær vítaspyrnu!
Ída Marín keyrir inn á teig og Natasha fær boltann í hendina þegar hún fer í tæklingu.
60. mín
Grindavík/Njarðvík vill víti
Lily Farkas tekur aukaspyrnu inn á teig og þar fellur leikmaður gestana í teignum og nú vill Gylfi Tryggva fá vítaspyrnu sem hann fær ekki.
58. mín
InnIngibjörg Magnúsdóttir
ÚtBerglind Freyja Hlynsdóttir
56. mín
Gestirnir að komast í góða stöðu en Lily Farkas fær litla aðstoð og FH nær að bakka og verjast.
52. mín
Ída Marín!
Ída Marín kemur sér í gott skotfæri en aftur er Genevieve að verja frábærlega í marki gestana.
49. mín
Ída Marín með gott skot fyrir utan teig sem Genevieve slær yfir markið.
48. mín
Thelma Lóa með fyrirgjöf eða skot sem endar í hliðarnetinu.
46. mín
Óbreytt hjá báðum liðum og Emma Phillips sparkar okkur af stað aftur.
45. mín
Hálfleikur
Allt jafn í hálfleik
FH byrjaði leikinn mun kraftmeiri og voru mun sterkari aðilinn í upphafi leiks en eftir því sem liðið hefur á hafa gestirnir náð meiri tökum á leiknum og þetta orðið jafnara.
Allt jafnt þegar gengið er til búningsklefa í hálfleik.
Allt jafnt þegar gengið er til búningsklefa í hálfleik.
45. mín
+1
Sophia Romine með tilraun sem fer yfir markið.
Sophia Romine með tilraun sem fer yfir markið.
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
41. mín
ALLT JAFNT!
Gestirnir jafna!
Danai Kaldaridou (stoðsending: Sophia Faith Romine)
Boltinn best úr úr teignum eftir horn og gestirnir eiga skot sem verður að frábærri stoðsendingu á Danai sem klárar frábærlega!ALLT JAFNT!
38. mín
Grindavík/Njarðvík einum færri í mínútu eftir að Natasha fékk aðhlynningu og hún þurfti að bíða utan vallar í mínútu áður en hún fékk að fara inn aftur.
Nýju reglurnar sem voru innleiddar fyrir mót.
Nýju reglurnar sem voru innleiddar fyrir mót.
36. mín
Natasha steinliggur
FH reynir að stinga Niu í gegn en Genevieve kemur út á móti og þrumar boltanum í Natöshu sem steinliggur eftir.
FH ekki langt frá því að ná boltanum áður en hann rúllar útaf og FH fær hornspyrnu í staðinn.
FH ekki langt frá því að ná boltanum áður en hann rúllar útaf og FH fær hornspyrnu í staðinn.
34. mín
Genevieve frábær í marki gestana
Berglind Freyja í góðu fær en enn og aftur er Genevieve að verja frábærlega í marki Grindavík/Njarðvík.
33. mín
Helena Errington fer full auðveldlega í gegnum vörn Grindavík/Njarðvík og kemur góðu skoti á markið sem Genevieve ver virkilega vel. FH heldur boltanum og fær horn sem kemur ekki mikið út úr.
31. mín
Deja með skalla á mark eftir horn en Genevieve er með þetta á lás.
23. mín
Gult spjald
Hlynur Svan Eiríksson
FH bekkurinn vildi víti og mótmælti full harkalega að mati Stefáns Ragnars.22. mín
Varsla!
FH bombar boltanum fram eftir horn á fáliðaða vörn Grindavík/Njarðvík og Thelma Lóa keyrir inn á teig og á hörku skot sem Genevieve ver frábærlega!
FH heldur pressunni áfram og vilja hendi þegar skot frá þeim fer í varnarmann Grindavík/Njarðvík.
FH heldur pressunni áfram og vilja hendi þegar skot frá þeim fer í varnarmann Grindavík/Njarðvík.
21. mín
Grindavík/Njarðvík með flotta pressu og vinna hornspyrnu.
16. mín
Það er meiri kraftur í FH þessa stundina þó svo að Grindavík/Njarðvík eru hættulegar á breikinu.
12. mín
Átti FH að fá víti?
FH sækja hratt og Ída Marín fellur í teignum eftir frábæran sprett þegar hún er að koma sér í skotið en Stefán Ragnar dómari gefur strax merki um að halda áfram og ekkert.
Hefði alveg verið hægt að benda á punktinn þarna held ég.
Hefði alveg verið hægt að benda á punktinn þarna held ég.
8. mín
FH LEIÐIR!
FH leiða!
Nia Raisa Christopher (stoðsending: Ída Marín Hermannsdóttir)
Galopna vörn Grindavík/Njarðvík og Nia er mætt ein í gegn á milli hafsentana og fer svo framhjá Genevieve og leggur boltann í netið.FH LEIÐIR!
7. mín
Niu er laumað í gegn og á skot sem Genevieve ver en flaggið fór á loft.
6. mín
Andrea Ran með flotta hornspyrnu og sýndist það vera Mackenzie sem átti hörku skalla rétt framhjá.
6. mín
Helena Errington að komast í ákjósanlegt færi en Natasha nær að vera fyrir og kemur þessu í horn.
5. mín
Berglind Freyja með fyrirgjöf sem verður að hálfgerðu skoti en Genevive grípur það.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað. FH sem eiga upphafssparkið.
Fyrir leik
Spákonan
Við fengum Ástu Eir Árnadóttur, fyrrum fyrirliða Breiðabliks, til að spá í leikina sem eru framundan. Hennar konur sitja á toppnum með fullt hús stiga ásamt ÍBV þegar tveir leikir eru búnir.

FH 4 - 2 Grindavík/Njarðvík
Ef FH ætlar að vera í toppbaráttu þá verða þær að vinna þennan leik, það er bara þannig. Þetta verður opinn og skemmtilegur leikur. Grindavík/Njarðvík halda áfram að vera the entertainers en örlítið reynsluleysi verður þeim að falli í leiknum og leikurinn endar með 4-2 sigri FH. Systurnar skora sitthvort markið og Berglind Freyja setur tvö fyrir FH. Lily Farkas og Natasha skora fyrir Gri/Nja.

FH 4 - 2 Grindavík/Njarðvík
Ef FH ætlar að vera í toppbaráttu þá verða þær að vinna þennan leik, það er bara þannig. Þetta verður opinn og skemmtilegur leikur. Grindavík/Njarðvík halda áfram að vera the entertainers en örlítið reynsluleysi verður þeim að falli í leiknum og leikurinn endar með 4-2 sigri FH. Systurnar skora sitthvort markið og Berglind Freyja setur tvö fyrir FH. Lily Farkas og Natasha skora fyrir Gri/Nja.
Fyrir leik
FH
Tímabilið hefur ekki byrjað jafn vel og vonir stóðu til hjá FH á þessu tímabili. Þær eru enn í leit af fyrsta sigrinum eftir að hafa gert jafntefli í fyrsta leik gegn Þór/KA 1-1, tapaði FH í síðustu umferð gegn Þrótti R. 2-1.
FH vonast til að rétta úr kútnum sem allra fyrst og horfa væntanlega í slaginn gegn nýliðunum í kvöld sem kjörið tækifæri á sækja sinn fyrsta sigur í deildinni.

FH vonast til að rétta úr kútnum sem allra fyrst og horfa væntanlega í slaginn gegn nýliðunum í kvöld sem kjörið tækifæri á sækja sinn fyrsta sigur í deildinni.

Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík unnu frábæran sigur gegn Þór/KA í síðustu umferð þar sem Emma Fanndal skoraði sigurmark liðsins alveg í blálokin og tryggði þeim fyrsta sigurinn í sumar 2-1. Erin Flurey hafði komið Þór/KA yfir og Natasha Anasi Erlingsson jafnaði leikinn áður en umrætt sigurmark Emmu Fanndal kom á 96.mín leiksins.
Grindavík/Njarðvík vonast til þess að byggja ofan á þann sigur hér í kvöld.

Grindavík/Njarðvík vonast til þess að byggja ofan á þann sigur hér í kvöld.

Fyrir leik
Dómarateymið
Stefán Ragnar Guðlaugsson fær það verkefni að munda flautuna í kvöld en honum til aðstoðar verða Jón Reynir Reynisson og Heimir Árni Erlendsson.
Breki Sigurðsson er þá fjórði dómari.

Breki Sigurðsson er þá fjórði dómari.

Fyrir leik
Heil og sæl!
Verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá leik FH og Grindavík/Njarðvík sem fram fer á Kaplakrikavelli í 3. umferð Bestu deild kvenna.








Viðtöl og skýrsla væntanleg.