SKÝRSLAN: Jafntefli í kaflaskiptum leik
Hvað réði úrslitum?
Hornspyrnur Andreu Mistar og það hvernig Þór/KA kom út í seinni hálfleikinn varð til þess að þær náðu að jafna.
Bestu leikmenn
1. Andrea Mist Pálsdóttir
Tvö mörk úr hornum. Sparkviss með eindæmum.
2. Amalía Árnadóttir
Skoraði mark, lagði upp mark fyrir systur sína og einnig dauðafæri á lokamínútunum.
Atvikið
Hornspyrnur Andreu og mistök markmannsins í þeim. Stjarnan nær tveggja marka forystu með tveimur ódýrum mörkum.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að staða liðanna er óbreytt. Þór/KA er enn að leita að fyrsta sigrinum.
Vondur dagur
Virkilega vondur dagur fyrir markmann og varnarmenn Þórs/KA því það hefði átt að koma í veg fyrir bæði mörk Stjörnunnar.
Dómarinn - 6
Lét leikinn fljóta sæmilega en sleppti nokkrum atvikum þar sem spjöld hefðu verið réttlætanleg á bæði lið.



