SKÝRSLAN: Ótímabærar skiptingar sem engu skiluðu
Hvað réði úrslitum?
Að mínu mati voru fleiri gæða leikmenn í liði ÍBV og þar af leiðandi tóku þær með sér öll þrjú stigin heim til Eyja. Skiptingar Matta þjálfara Vals í stöðunni 2-1 skiluðu engum árangri og voru að mínu mati ótímabærar.
Bestu leikmenn
1. Olga Sevcova
Gæðin og reynslan í Olgu eru ómetanleg í liði ÍBV. Hún er einhvernveginn alltaf allt í öllu í sóknarleik liðsins. Hún hefur oft verið meira áberandi en kemur þó að tveimur mörkum ÍBV. Fyrst eftir gott upphlaup og flotta stoðsendingu og svo í jöfnunarmarkinu þegar hún á skotið sem Allison Lowrey fylgdi eftir.
2. Arnfríður Auður Arnarsdóttir
Var hættulegasti leikmaður Vals í leiknum. Skorar mjög gott mark sem kemur Valskonum yfir og var mest áberandi í Valsliðinu.
Atvikið
Atvikið/vendipunkturinn var eins og áður kom fram ótímbærar og kannski óþarfa skiptingar í liði Vals þegar nóg var eftir af leiknum og Valstelpur með forystu. Eins má nefna mistök Arden Joy La-Rose í seinna marki Vals þegar hún átti misheppnaða sendingu sem Arnfríður Auður komst inn í. Hefði getað reynst dýrkeypt en kom ekki að sök í lokin.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV hafa byrjað tímabilið frábærlega. Nýliðarnir eru á toppi deildarinnar með fullt hús stiga, níu stig. Þær hafa skorað tíu mörk í þremur leikjum. Valskonur eru með þrjú stig og hafa ekki litið sannfærandi út í upphafi tímabils.
Vondur dagur
Glódís María og Sonja Björg, leikmenn Vals, sem komu inná sem áttu sjálfsagt að hjálpa Valsliðinu að sigla sigrinum heim en það sást lítið til þeirra og komu með lítið að borðinu.
Dómarinn - 7
Fínn leikur hjá Bríet. Þurfti ekki að taka neinar stórar ákvarðanir og lét leikinn ganga vel.



