Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Víkingur R.
Víkingur R.
Besta kvenna
Víkingsvöllur
2 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 13' Agla María Albertsdóttir 0 - 256' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 369' Barbára Sól GísladóttirDagný Rún Pétursdóttir 76'1 - 31 - 477' Ólöf Sigríður KristinsdóttirFreyja Stefánsdóttir 83'2 - 4
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir

SKÝRSLAN: Klaufagangur í Víkinni

Hvað réði úrslitum?

Liðið sem var betra varnarlega vann leikinn, Víkingar voru allt of miklir klaufar í mörkum Breiðabliks. En það má ekki taka þetta burt frá Breiðablik í dag, þær voru góðar en Einar er ábyggilega ekki ánægður með liðið sitt í dag.

Bestu leikmenn

1. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir

Mark og stoðsending í dag en hefði átt að skora fleiri. Var að koma sér í stöður og var alltaf að ógna marki Víkings.

2. Agla María Albertsdóttir

Braut ísinn með mjög góða aukaspyrnu, annars stjórnaði hún miðjunni mjög vel og hornin hennar voru mjög hættuleg. Hún var allt í öllu.

Atvikið

Fyrsta mark Breiðabliks setur tóninn fyrir leikinn. Birta átti auðvitað að fá rautt. Víkingar ná aldrei að ógna almennilega eftir þetta og Breiðablik skora fleiri þangað til að Víkingar ná að ógna almennilega.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik eru komnar í fyrsta sætið og eru taplausar, næst er það Valur. Víkingur er í 7. sæti og fara á Lambhagavöllin næst og taka á móti Fram.

Vondur dagur

Vörn Víkings frá fyrstu mínútu var ekki góð. Öll mörkin sem þær fengu á sig voru of auðveld fyrir Breiðablik. Eins og Einar þjálfari Víkings sagði í viðtali við Fotbolta.net þá verða þær bara að sparka boltanum út.

Dómarinn - 2

Birta átti að fá rautt á 3. mínútu og að hún fékk ekki einu sinni gult er auðvitað ótrúlegt. Fyrir utan það var ekki mikið af vafaatriðum þannig séð en þetta er stór ákvörðun og það er erfitt að líta fram hjá því.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.