SKÝRSLAN: Rangur vítaspyrnudómur í fyrsta sigri FH
Hvað réði úrslitum?
FH voru heilt yfir betri í leiknum en markvörður Grindavík/Njarðvík átti stórleik í rammanum. FH byrjaði betur en gestirnir unnu sig vel inn í leikinn. Umdeild vítaspyrna er það sem skilur liðin að í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Genevieve Jae Crenshaw (Grindavík/Njarðvík)
Var frábær í marki gestana í kvöld og megin ástæða þess að FH vann ekki stærra. Varði oft frábærlega og varði meðal annars vítaspyrnu.
2. Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Lagði upp fyrsta mark leiksins og var sífellt að ógna fram á við. Óheppin að skora ekki í leiknum.
Atvikið
Vítaspyrnan sem er dæmd á Grindavík/Njarðvík. Reyndist vera það sem skildi á endum á milli.
Hvað þýða úrslitin?
FH tekur sinn fyrsta sigur í deildinni en nýliðarnir fara heim með sárt ennið eftir flotta baráttu. FH lyftir sér upp í fimmta sætið á meðan Grindavík/Njarðvík detta niður í sjötta.
Vondur dagur
Enginn sem átti að mínu mati áberandi vondan dag. Nia Raisa Christopher skorar vissulega fyrsta markið en klikkar svo á víti sem hefði geta verið dýrkeypt. Það er svona það næsta sem kemst einhverjum slæmum degi og það er þá bara það tiltekna móment.
Dómarinn - 4
Vítaspyrnan er röng ákvörðun. Hefði mögulega geta dæmt tvö önnur víti í leiknum fyrir sitthvort liðið. Slæmar ákvarðanir sem höfðu áhrif á úrslit leiksins.




