Fotbolti.net
Besta deildin
Tryggvi Guðmundsson
Besta kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
Valur
Valur
2 - 3
ÍBV
ÍBV
0 - 19' Allison Patricia ClarkÁgústa María Valtýsdóttir 40'1 - 1Arnfríður Auður Arnarsdóttir 48'2 - 12 - 271' Allison Grace Lowrey2 - 378' Viktorija Zaicikova
Dómari: Bríet Bragadóttir
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Leik lokið!
ÍBV sigrar 2-3
Eyjakonur vinna sinn þriðja leik í röð og eru með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir.

Þetta hefði svo sem getað dottið báðu megin en ÍBV dró lengsta stráið!
93. mín
Eyrún Vala með skot fyrir utan teig en það er laust og engin hærra.
Valur
90. mín
Gult spjald

Bryndís Eiríksdóttir

90. mín
+3 í uppbótartíma.
89. mín
Allison Lowrey vinnur aukaspyrnu ofarlega á vellinum.
Valur
86. mín
InnEyrún Vala Harðardóttir
ÚtMargrét Brynja Kristinsdóttir
Valur
86. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
85. mín
Olga með frábæran sprett sem endar á því að hún tekur skotið inn á teignum en Tinna Brá ver frá henni.
82. mín
Arnfríður Auður með frábæra sendingu úr aukaspyrnu nálægt miðlínunni inn á teiginn en það er bara engin úr Val sem ræðst á boltann þannig að boltinn fer bara í gegnum allan pakkann.

Ótrúlegt að engin skildi ná að stýra þessu á markið! og þá sérstaklega Málfríður sem átti hlaupið á nær og virðist sendingin ætluð henni!!
81. mín
Arnfríður með skotið fyrir utan teig en skelfilegt skot sem endaði í fótunum á vinstri bakverði ÍBV.
ÍBV
79. mín
InnMilena Mihaela Patru
ÚtMagdalena Jónasdóttir
ÍBV
78. mín
ÍBV komnar yfir á nýjan leik!!

Viktorija Zaicikova (stoðsending: Embla Harðardóttir)

Embla með frábæra sendingu inn fyrir á Vikoriju sem tekur vel á móti boltanum og vippar skemmtilega yfir Tinnu Brá í markinu hjá Val.

Eyjakonur leiða á nýjan leik! 2-3!
77. mín
Margrét Brynja fær boltann inn á teig ÍBV og tekur skotið en það er í þægilegri fyrir Arden sem grípur boltann.
76. mín
VALKONUR Í FÆRI
Sóley með fyrirgjöf frá vinstri og boltinn berst til Arnfríðar se, nær skotinu en Arden sér við henni.
74. mín
Margrét Brynja kemur boltanum á Sonju sem á slakt skot í ákjósanlegu færi. Boltinn lekur nánast bara til Arden.
ÍBV
71. mín
ÍBV BÚNAR AÐ JAFNA!!

Allison Grace Lowrey

Viktorija tók hornspyrnuna fyrir ÍBV. Boltinn barst út á Olgu sem tók skotið rétt fyrir utan vítateig.Tinna Brá náði ekki að halda boltanum og Allison Lowrey tekur frákastið og kemur boltanum yfir línuna. Staðan orðið 2-2!!!
71. mín
Eyjakonur eru sækja í veðrið og fá sína fjórðu hornspynu á stuttum tíma.
70. mín
Valur í skyndisókn
Sonja Björg kemur boltanum á Margrét Brynju sem kemur sér inn á teig ÍBV en skotið er beint á Arden.
69. mín
Hætta á teig Vals
Vikotija með hornspyrnuna fyrir ÍBV og eftir klafs berst boltinn á Eddu Dögg sem á virkilega fínt skot og Tinna Brá þarf að hafa sig alla við að verja boltann.
69. mín
ÍBV fær hornspyrnu
Clark með fyrirgjöf en Valskonur setja boltann aftur fyrir.
Valur
66. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtNadía Atladóttir
66. mín
Arnfríður tók aukaspyrnu svolítið fyrir utan teig og hún reynir skotið en það er engin hætta og Arden grípur boltann.
ÍBV
65. mín
Gult spjald

Kristín Klara Óskarsdóttir

Brýtur á Kolbrá þegar hún er við það að komast í gegn.
64. mín
Olga tók spyrnuna en Valskonur ná að koma boltanum í burtu.
63. mín
Allison Clark vinnur aukaspyrnu á fínum stað við endalínuna hægra megin.
Valur
61. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtÁgústa María Valtýsdóttir
61. mín
Lowrey reynir að lauma boltanum inn á Clark en sendingin of löng.
60. mín
Allison Clark gerir vel úti hægra megin og nær að koma með fyrirgjöf. Allison Lowrey nær ekki til boltans og Valskonur ná að bægja hættunni frá.
55. mín
Margrét Brynja keyrir inn á teig ÍBV og reynir að koma sér í skotfæri en Eyjakonur loka vel á hana.
52. mín
Valskonur eru að koma af krafti inn í seinni hálfleikinn.
51. mín
Ágústa með skot úr þröngu færi en Arden ver frá henni.
Valur
48. mín
VALSKONUR LEIÐA - SLÆM MISTÖK HJÁ ARDEN

Arnfríður Auður Arnarsdóttir

Arden markvörður ÍBV með skelfilega sendingu á Söndru sem er ekki búin að koma sér í stöðu. Arnfríður gerir vel og les sendinguna og klárar svo frábærlega í fjærhornið. Valskonar komnar yfir!!
48. mín
Clark með fína tilraun. Fær sendingu inn á teiginn og nær að snúa með boltann og nær skotinu en það er auðvelt fyrir Tinnu.
47. mín
Munaði litlu
Allison Lowrey með gott upphlaup upp hægri kantinn. Hún stingur boltanum inn fyrir á nöfnu sínu en Valkonur koma boltanum í innkast.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Þetta er farið í gagn aftur.

Vonandi verður seinni hálfleikur líflegri en sá fyrri!
45. mín
Myndasyrpa af marki Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Mjög hægur leikur beggja liða í fyrri hálfleik. Mikið fram og til baka og lítið um færi og líklega sanngjarnt að það sé 1-1 í hálfleik.
Valur
40. mín
VALUR BÚNAR AÐ JAFNA!!

Ágústa María Valtýsdóttir (stoðsending: Bryndís Eiríksdóttir)

Mikill barningur inn á teig ÍBV og boltinn berst loks út til hægri á Bryndísi sem setur boltann inn í markteig og þar Ágústa María frekust og skallar boltann inn. ALLT ORÐIÐ JAFNT!!
39. mín
Olga reynir skot fyrir utan teig en það er dapurt og fer beint í hendurnar á Tinnu Brá.
38. mín
Löng sending fram frá Bryndísi, ætlaða Nadíu en Arden er fyrst á boltann.
36. mín
Olga með aukaspyrnu fyrir ÍBV, aukaspyrnan er stutt og eftir klafs dettur boltinn fyrir Eddu Dögg sem nær skotinu en það er frekar laust og auðvelt fyrir Tinnu Brá.
35. mín
Langt innkast hjá Valskonum. Ágústa reynir að flikka boltanum áfram en þar er bara engin rauð treyja inn á teig ÍBV.
33. mín
Arnfríður Auður tók hornspyrnuna fyrir Val og hún fór alla leið á fjær. Þar kom skalli fyrir en Eyjakonur náðu að koma boltanum í burtu.
32. mín
Fyrirgjöf frá Sóleyju frá vinstri en Kristín Klara kemur boltanum í horn.
29. mín
Nadía í færi
Bryndís með fína sendingu inn á teig ÍBV þar er Nadía sem reynir að setja boltann innan fótar í nær en rétt fram hjá.
27. mín
Lítið að frétta þessa stundina. Boltinn fer fram og til baka.
22. mín
ÍBV fær hornspynu. Engin hætta og Valskonur koma boltanum í innkast.
21. mín
Færi hjá Valskonum
Kom góð fyrirgjöf frá vinstri eftir innkast alla leið á fjær þar sem Arnfríður lúrir en skotið hennar er ekki nægilega gott og Arden handsamar boltann.
17. mín
Allison Lowrey með tilraun að marki vals með skalla en skallinn laus og engin hætta. Tinna Brá grípur boltann.
Valur
15. mín
Gult spjald

Málfríður Anna Eiríksdóttir

Hindrar Allison Lowrey.
13. mín
Helga kemur með sendingu inn á teig ÍBV ætlaða Ágústu en sendingin aðeins of löng.
11. mín
Ágústa með fínustu tilraun og reynir að senda Arnfríði í gegn en Arnfriður fattar ekki að taka sénsinn og boltinn aftur fyrir.
ÍBV
9. mín
ÍBV ER KOMIÐ YFIR!

Allison Patricia Clark (stoðsending: Olga Sevcova)

Olga gerir vel og les hornspyrna hjá Val og stelur boltanum. Hún brunar upp völlinn og gefur boltann á Allison Clark sem er komin ein gegn Tinnu Brá og skorar örugglega. 0-1!
8. mín
Valur fær hornspyrnu
Margrét Brynja með flottan sprett og kemst upp að endalínu og reynir fyrirgjöf en Avery kemur sér fyrir boltann og setur aftur fyrir.
6. mín
Clark með fyrirgjöf en hún er slök og fer aftur fyrir markið.
6. mín
Bæði lið að reyna að fóta sig en boltinn berst bara fram og til baka.
2. mín
Valur fær aukaspyrnu. Allison Clark brýtur á Arnfríði.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað.

Ágústa María sparkar okkur í gang!
Fyrir leik
„Áhugaverðasti leikur umferðarinnar“
Ásta Eir Árnadóttir, fyrrum fyrirliði Breiðabliks, er spámaður umferðarinnar.

Valur 0 - 2 ÍBV
Áhugaverðasti leikur umferðarinnar. ÍBV hefur skorar mest í deildinni, og þær halda því áfram. Varnarlína Vals mun ströggla við sterka sóknarmenn ÍBV. Leikurinn endar 0-2 fyrir ÍBV. Olga skorar og leggur svo upp á vinkonu sína Allison Lowrey.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Flýtt um 90 mínútur
Upphaflega átti leikurinn að hefjast klukkan 18:00 en leiknum var flýtt um 90 mínútur og hefst nú 16:30.
Fyrir leik
Hlíðarendi heilsar!
Heilir og sælir lesendur góðir og velkomin í beina textalýsingu frá viðureign Vals og ÍBV í þriðju umferð Bestu deildar kvenna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.