Fotbolti.net
Besta deildin
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Besta kvenna
Víkingsvöllur
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 4
Breiðablik
Breiðablik
0 - 13' Agla María Albertsdóttir 0 - 256' Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir0 - 369' Barbára Sól GísladóttirDagný Rún Pétursdóttir 76'1 - 31 - 477' Ólöf Sigríður KristinsdóttirFreyja Stefánsdóttir 83'2 - 4
Dómari: Bergrós Lilja Unudóttir
Leik lokið!
Viðtöl og skýrsla á leiðinni, takk fyrir mig.
Breiðablik
91. mín
InnGuðrún Þórarinsdóttir
ÚtHrafnhildur Ása Halldórsdóttir
Breiðablik
91. mín
InnMikaela Nótt Pétursdóttir
ÚtEdith Kristín Kristjánsdóttir
90. mín
Dagný var að fara sleppa í gegn en Karítas blokkar hana og Herdís pikkar hann upp.
90. mín
+2 min
88. mín
Duong með háan fyrir en það er enginn til þess að pota boltanum inn.
85. mín
Karítas reynir langt frá en McClellan pikkar boltanum upp léttilega.
Víkingur R.
83. mín
MAAAARK!

Freyja Stefánsdóttir

Þórdís Hrönn með háan inn á teiginn, sem Freyja nær en Duong nær að taka af henni boltanum.

Freyja nær svo boltanum aftur og kemst í færi og skorar léttilega.
Víkingur R.
82. mín
InnCamilly Kristal Silva Da Rocha
ÚtEmma Steinsen Jónsdóttir
Víkingur R.
82. mín
InnElísa Birta Káradóttir
ÚtJasmín Erla Ingadóttir
79. mín
Hrafnhildur með skot sem fer í varnarmann og breytir um stefnu en McClellan nær að dífa sér og taka hann.
Breiðablik
77. mín
MAAAARK!

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir (stoðsending: Karitas Tómasdóttir)

Klaufalegt.

Hár bolti frá Karítas sem Víkingar ná ekki að díla við. Ólöf kemst í hann og setur hann yfir McClellan.
Víkingur R.
76. mín
MAAAARK!

Dagný Rún Pétursdóttir (stoðsending: Freyja Stefánsdóttir)

Freyja rennir boltanum á Dagný sem er sleppur í gegn í 1v1 og skorar.
Breiðablik
75. mín
InnSunna Rún Sigurðardóttir
ÚtBarbára Sól Gísladóttir
Breiðablik
75. mín
InnBryndís Arna Níelsdóttir
ÚtAgla María Albertsdóttir
74. mín
Víkingar reyna stutt horn en sending Bergdísar fer of langt.
72. mín
Elín með háa sendingu inn í boxið sem fer á Ólöfu en hún skýtur framhjá.
Breiðablik
69. mín
MAAAARK!

Barbára Sól Gísladóttir (stoðsending: Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir)

Þetta var ekki gott.

Hrafnhildur keyrir upp vinstri kantinn og kominn að línunni, Anika reynir að setja pressu á Hrafnhildi en hún kemst framhjá Aniku og keyrir svo inn í boxið.

Hrafnhildur sendir svo á Barbáru sem fær auðvelt færi.
Víkingur R.
67. mín
InnJóhanna Elín Halldórsdóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
Breiðablik
67. mín
InnÓlöf Sigríður Kristinsdóttir
ÚtLíf Joostdóttir van Bemmel
66. mín
Elísa með skallan yfir markið eftir fyrirgjöf frá Öglu.
66. mín
Dauðafæri
Skyndisókn hjá Blikum, Edith sleppur í gegn en boltinn er varinn af McClellan.
64. mín
Áslaug reynir að sitja Bergdísi í gegn en Elísa nær að sparka sendingunni burt.
64. mín
Dauðafæri
Agla situr Karítas í gegn 1v1 á móti markmanni en McClellan ver.
Víkingur R.
63. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtHelena Ósk Hálfdánardóttir
Víkingur R.
63. mín
InnDagný Rún Pétursdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
61. mín
Agla lætur vaða frá aukaspyrnu og Mcclellan er í erfiðleikum og þarf að kýla í boltann.
60. mín
Blikar eru hægt og rólega að taka yfirhönda á leiknum aftur, þar sem Víkingar þurfa að skora fljótt.
Breiðablik
56. mín
MAAAARK!

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (stoðsending: Elísa Viðarsdóttir)

Hár bolti frá Elísu sem er akkúrat á Hrafnhildi sem er í miðju teignum, hún er alveg galopin og engin varnarmaður nálægt.

Hrafnhildur skýtur bara í mitt markið og skorar.
53. mín
Sláin
Skyndisókn hjá Víkingum, Jasmín Erla sendur á Helenu sem lætur vaða fyrir utan teig en skotið er beint í slána og burt.
52. mín
Víkingar byrja seinni hálfleikinn miklu betri og eru að ná að ógna meira en í fyrri hálfleik.
51. mín
Bergþóra keyrir upp hægri kantinn og kemur með sendingu inn í boxið þar sem Bergdís er en vörn Blika ná að komast fyrir og verja skot Bergdísar.
48. mín
Þórdís Hrönn tekur skotið úr aukaspyrnu langt frá en Herdís ver þægilega.
46. mín
Seinni hálfleikur
Blikar byrja.
45. mín
Hálfleikur
Blikar eru búnir að vera miklu betri, mjög mikið af skotum en Víkingar eru búnir að vera með eitt skot á markið.

Sjáumst eftir korter.
42. mín
Agla með háan á kantinum á Karítas sem nær ekki alveg að stjórna boltanum og missir hann upp í loft og vörn Víkinga nær að sparka boltanum burt.
40. mín
Birta í vandræðum þar sem hún lætur Líf snúa sér inn í teig og komast í gott færi en McClellan ver skotið.
39. mín
Blikar skalla burt aukaspyrnuna.
38. mín
Barbára brýtur á Emmu rétt fyrir utan teiginn.
36. mín
Karítas kemst í gott færi en skýtur framhjá.
35. mín
Af línu
Birta skallar af línu eftir að Agla tekur hornið sem var að fara beint í markið.
34. mín
Hrafnhildur lætur vaða fyrir utan teig en McClellan ver aftur.
31. mín
Rangstaða
Klafs í teignum. Hár bolti frá Barbáru á Hrafnhildi sem skallar hann á Öglu sem tekur skotið beint í McClellan en boltinn dettur svo á Edith sem skorar í autt markið en markið var tekið af henni.
30. mín
Karítas reynir að koma með háan inn, en sendingin fer af varnarmanni og beint í hendurnar hjá McClellan.
28. mín
Edith tekur skotið fyrir utan teig, en skotið er beint á McClellan.
26. mín
Karítast kemst í gott færi fyrir framan stöngina en ákveður að senda í stað þess að taka skotið.

Blikar eru að valta yfir Víkingana núna.
25. mín
Hrafnhildur kemst í gott færi en McClellan ver.
25. mín
Dauðafæri
Agla er á hægri vængnum og kemur með háan á vinstra megin við markið þar sem Líf Van Bommel er alveg stikkfrí en hún skýtur yfir markið.
23. mín
Barbára kemur með fyrirgjöf inn á teiginn en Elísa sparkar honum burt.
21. mín
Víkingar eru að reyna á háu boltana en vörn Blika eru alveg tilbúnar til þess að díla við það.
19. mín
Blikar í bullandi sókn en vörn Víkinga nær að blokak öll skotin og McClellan ver.
18. mín
Víkingar að taka horn, Ian Jeffs sér ekki nægilega vel og tekur nokkur skref inn á völlinn. Dómarinn tók ekki eftir því og mögulega var hann heppinn að fá ekki tiltal.
17. mín
Bergdís keyrir á vörn Blika en skotið er beint í varnarmann og fyrir horn.
16. mín
Agla leikur á vörn Víkings og tekur skotið sem er skallað burt, boltinn dettur á Hrafnhildi sem tekur skotið McClellan ver aftur.
15. mín
Karítas fær boltann rétt fyrir utan teiginn, setur hann á Hrafnhildi sem tekur skotið sem McClellan ver.
13. mín
Jasmín Erla er að fara sleppa í gegn en Elín Helena er á undan henni í sendinguna.
12. mín
Emma missir hann út og vill meina að boltinn hafi farið í varnarmann Breiðabliks og fyrir horn. Hún fer að rífast við dómarann og gleymir sér smá að Breiðablik hafa byrjað leikinn aftur.
12. mín
Lítið að gerast þar sem Víkingar eru að reyna að svara en Breiðablik nær að halda þeim frá.
7. mín
Bergdís með skot á markið en Herdís ver hann léttilega.
6. mín
Verður áhugavert að sjá hvernig Víkingar svara.
5. mín
Hrafnhildur komin í teiginn en skýtur yfir.
Breiðablik
3. mín
MAAAARK!

Agla María Albertsdóttir

Hrafnhildur er að fara að sleppa í gegn en Birta tekur hana niður í D boganum. Hefði átt að vera rautt en dómarinn gefur ekki einu sinni gult á þetta, þar sem Hrafnhildur var sloppin í gegn og Birta var aftasti varnarmaður.

Agla tekur aukaspyrnuna og fer lágt í vinstra hornið, McClellan reynir að dífa sér en getur ekki varið boltann.

Birta hefði alltaf átt að fá rautt samt.
1. mín
Leikur hafinn
Víkingur byrjar.
Fyrir leik
20 min í leik
Byrjunarliðin eru mætt.

Einar Guðna gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu. Dagný og Freyja fara á bekkinn, en hún Kristín Erla er í banni vegna rautt spjalds í síðasta leik gegn ÍBV. Helena, Anika og Arna fara þá inn í byrjunarliðið.

Ian Jeffs gerir eina breytingu á byrjunarliðinu. Karítas kemst inn í liðið en á meðan Sunna Rún fer á bekkinn.
Fyrir leik
Síðasta sumar
Breiðablik vann öll þrjú einvígin gegn Víkingi síðasta sumar. Breiðablik skoraði 11 mörk en Víkingar bara 6,

4-0
2-4
3-2

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María skoraði þrjú mörk gegn Víkingi síðasta sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Breiðablik
Breiðablik eru að reyna að verja titilinn og það hefur gengið vel fyrstu tvær umferðir. Í fyrstu umferð fékk Breiðablik, Þrótt í heimsókn og unnu sannfærandi 2-0. Í annari umferð fá þær Fram í heimsókn og unnu 2-0 aftur. Þetta er fyrsti úti leikurinn í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Ian Jeffs er nýr þjálfari Breiðabliks eftir að Nik Chamberlain fór til Kristianstad.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Víkingur
Víkingur tapaði gegn nýliðum ÍBV í eyjum í síðustu umferð 3-2 eftir að hafa náð 2-0 forystu í fyrsta hálfleik. Í fyrstu umferð þá fengu þær Stjörnuna í heimsókn og unnu þann leik 2-1. Víkingur situr þá í 6. sæti með markatöluna 0.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Jasmín Erla Ingadóttir er markahæst með tvö mörk.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Fyrir leik
Besta deildin er mætt
Það er komið að þriðju umferð í Bestu deildinni þar sem Víkingar fá Breiðablik í heimsókn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.