Leik lokið!
Jafntefli
93. mín
Dauðafæri
Amalía enn með fyrirgjöf, nú út á Margréti sem rennir boltanum framhjá fjær.
90. mín
Horn - mark
Margrét Árnadóttir
Hornin eru að gefa. Elísa tekur hornið og Margrét afgreiðir hann í markið og jafnar.90. mín
Dauðafæri
Amalía með frábæra fyrirgjöf sem Stjarnan rétt bjargar í horn.
89. mín
Dauðafæri - Stjarnan
Fanney fær boltann inni í teig vinstra megin en skýtur yfir markið
86. mín
InnHildur Anna Birgisdóttir
ÚtBríet Fjóla Bjarnadóttir
Þór/KA skiptir
83. mín
InnHulda Hrund Arnarsdóttir
ÚtAndrea Mist Pálsdóttir
Skipting Stjarnan
Markaskorari Stjörnunnar fer út af og Hulda kemur inn
81. mín
Horn
Horn frá vinstri hjá Þór/KA. Andrea fær tvær tilraunir en Þór/KA hreinsar frá
80. mín
Skot
Þór/KA á skot fyrir utan, Karen setur hann yfir markið
78. mín
Meðbyr
Eftir að Stjarnan fékk færi í upphafi fyrri hálfleiks hefur Þór/KA verið sterkari aðilinn í hálfleiknum
75. mín
Þór/KA minnkar muninn
Amalía Árnadóttir
Birgitta kemst upp hægra megin með frábæra fyrirgjöf sem er beint á kollinn á Amalíu sem skorar.73. mín
Horn
Stjarnan fær horn frá vinstri. Andrea tekur og fær boltann aftur. Kemur með aðra fyrirgjöf á Murielle sem á skalla sem Allie ver.
72. mín
Hálffæri
Bríet Fjóla kemst upp vinstra megin og reynir skot sem Bridgette grípur
71. mín
Horn Þór/KA
Markmaður grípur
70. mín
Brot
Andrea Mist Pálsdóttir
67. mín
InnBirgitta Rún Finnbogadóttir
ÚtHulda Ósk Jónsdóttir
Þór/KA skiptir
67. mín
InnTelma Steindórsdóttir
ÚtÞóra María Hjaltadóttir
Stjarnan skiptir
Önnur skipting Stjörnunnar
67. mín
InnFanney Lísa Jóhannesdóttir
ÚtÚlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Stjarnan skiptir
Úlfa sem hefur verið ansi góð, fer út af og inn kemur leikmaður númer 7 sem er ekki á skýrslu
64. mín
Horn
Þór/KA fær horn frá hægri. Elísa tekur og Stjarnan á í basli við að koma honum frá. Boltinn endar hjá markmanni
63. mín
Leikið sér að eldinum
Markmaður og varnarmenn Stjörnunnar spila á milli inni í teig en Margrét kemst á milli. Þeir bjarga út en þar fær Karen María boltann og lætur vaða en Bridgette grípur boltann
56. mín
Dauðafæri - Stjarnan
Snædís kemst upp að vítateig og á skot sem Allie ver út til hægri og þar kemur Birna en setur boltann yfir í dauðafæri
56. mín
Betra
Heimaliðið hefur komið grimmt út í seinni hálfleik og er mun ákveðnara en í þeim fyrri.
55. mín
Horn
Hornið berst á fjærstöng en skallað framhjá
54. mín
Horn og aftur horn
Bríet Fjóla rétt aðeins of sein í boltann en bjargaði í horn. Horn frá vinstri. Boltinn svífur yfir alla og bjargað aftur í horn.
54. mín
Skot
Bríet Fjóla vinnur boltann og á skot beint á markmann
52. mín
Misskilningur
Varnarmenn Stjörnunnar tala ekki saman og láta boltann fara. Margrét hleypur en Bridgette er rétt á undan og hreinsar.
51. mín
Horn
Þór/KA fær horn frá hægri. Elísa tekur lága sendingu á nærstöng en naumlega framhjá.
48. mín
Dauðafæri
Snædís fær sendingu inn fyrir og er á undan Allie og kemst inn í teig en skýtur framhjá tómu markinu.
45. mín
Leikur hafinn
Seinni hálfleikur
Stjarnan byrjar og spilar á móti norðan golunni í seinni hálfleik
45. mín
Hálfleikur
Hálfleikur
Fyrri hálfleik lokið.
Það var ekki mikið að gerast en tvö dýr mistök markmanns Þór/KA og tvær góðar hornspyrnur Andreu Mistar skilja liðin að.
Það var ekki mikið að gerast en tvö dýr mistök markmanns Þór/KA og tvær góðar hornspyrnur Andreu Mistar skilja liðin að.
45. mín
Aukaspyrna
Þór/KA fær aukaspyrnu rétt utan teigs. Margrét gerir sig líklega og tekur fyrirgjöf sem endar hjá markmanni
44. mín
Horn
Horn frá hægri sem Andrea tekur. Skallað út og Stjarnan á skot yfir markið.
40. mín
Mark úr horni
Andrea Mist Pálsdóttir
Aftur snýr Andrea boltanum inn að markinu og yfir markmanninn. 0 - 2. Jafn klaufalegt og fyrra markið.39. mín
Mistök
Agnes missir boltann í vörninni og bjargar í horn.
38. mín
Skot
Gott spil Amalíu, Bríetar og Bríetar Fjólu endar með skoti þeirra síðastnefndu.
37. mín
Brot og gult
Eva Marie Wirtz
Andrea brýtur á leikmanni Þór/KA en Eva sparkar boltanum svo í burtu.36. mín
Skot
Boltanum er rúllað út á Murielle sem á skot framhjá.
35. mín
InnSnædís María Jörundsdóttir
ÚtJana Sól Valdimarsdóttir
Stjharnan skiptir
Jana er meidd og Snædís leysir hana af
35. mín
Meiðsl
Jana Sól haltrar út af. Vonandi ekkert alvarlegt.
33. mín
Horn
Birna vinnur horn fyrir Stjörnuna sem ekkert verður úr. Eitthvað hnjask inni í teig.
28. mín
Dauðafæri
Ingibjörg rennir boltanum inn á Murielle en Allesandra ver. Murielle dæmd svo rangstæð.
27. mín
Horn
Bríet Fjóla kemst upp vinstri kantinn og vinnur horn. Elísa tekur hornið en brotið á markmanni og aukaspyrna.
19. mín
hálffæri
Birna komst upp hægra megin og á góða sendingu fyrir sem María nær að snerta og koma þannig í veg fyrir að Úlfa Dís nái að stanga hann í markið.
17. mín
Miðjuþóf
Eftir ágætis upphaf hefur leikurinn farið að mestu fram á miðjunni
13. mín
Horn
Úlfa aftur á ferðinni upp vinstri kantinn og fyrirgjöfin hennar er skölluð aftur fyrir. Andrea tók hornið sem var skallað út og Stjarnan nær skoti rétt framhjá.
10. mín
Sókn
Stjarnan lætur kné fylgja kviði og herjar á heimamenn. Birna nær skoti utan teigs en Allesandra markmaður grípur.
9. mín
Markið
Þetta var klaufalegt hjá Þór/KA. Markmaðurinn reyndi að blaka boltanum frá en náði því ekki og boltinn sveif í markið.
8. mín
Horn
Andrea Mist Pálsdóttir
Birna vinnur horn fyrir Stjörnuna. Andrea tók hornið og skorar beint úr því.5. mín
Horn
Þór/KA á horn sem Elísa tekur og reynir nánast að skora en boltinn í útspark.
3. mín
Hálffæri
Úlfa keyrir upp vinstri kantinn og nær góðri sendingu fyrir en engin Stjörnusnót er mætt til að klára sóknina.
2. mín
Fyrsta skotið
Stjarnan byrjaði með smá pressu en Þór/KA náði að komast upp og Hulda Ósk á skot framhjá.
Fyrir leik
Leikur hafinn
Leikur hafinn
Þór/KA byrjar með boltann og leikur í norður
Fyrir leik
Reyndir fyrirliðar
Fyrirliðar liðanna í dag eru ansi hreint leikreyndar.
Arna Sif (34) sem fer fyrir heimamönnum er með 511 leiki á bakinu, 113 mörk, 39 gul spjöld og tvisvar hefur hún farið út af með rautt.
Anna María (32) sem stýrir gestunum inni á vellinum er með 418 leiki, 19 mörk, 16 gul spjöld og eins og Arna hefur hún tvisvar verið beðin um að láta sig hverfa af vellinum af dómaranum.
Samtals eru þetta heil ósköp. 929 leikir (eins og mazdan í gamla daga), 132 mörk, 55 gul spjöld og 4 rauð.
Arna Sif (34) sem fer fyrir heimamönnum er með 511 leiki á bakinu, 113 mörk, 39 gul spjöld og tvisvar hefur hún farið út af með rautt.
Anna María (32) sem stýrir gestunum inni á vellinum er með 418 leiki, 19 mörk, 16 gul spjöld og eins og Arna hefur hún tvisvar verið beðin um að láta sig hverfa af vellinum af dómaranum.
Samtals eru þetta heil ósköp. 929 leikir (eins og mazdan í gamla daga), 132 mörk, 55 gul spjöld og 4 rauð.
Fyrir leik
Akureyringar í Stjörnunni
Akureyringar eiga tvo fulltrúa í Stjörnuliðinu, þær Andreu Mist og Jakobínu. Andrea spilaði 2022 með Þór/KA síðast en Jakobína 2023.
Fyrir leik
Breytingar á byrjunarliðum frá síðasta leik
Þór/KA gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu frá tapinu á móti Grindavík/Njarðvík. Agnes Birta, Hulda Ósk og Bríet Fjóla koma inn en út fara Birgitta, Hulda Björg og Erin.
Stjarnan gerir eina breytingu á sínu liði eftir sigurinn á Val. Jana Sól Valdimarsdóttir kemur inn fyrir Snædísi.
Stjarnan gerir eina breytingu á sínu liði eftir sigurinn á Val. Jana Sól Valdimarsdóttir kemur inn fyrir Snædísi.
Fyrir leik
Spárnar
Leikurinn gæti orðið nokkuð skemmtilegur þar sem liðunum er spáð svipuðu gengi. Þór/KA gerði jafntefli heima við FH sem er spáð góðu gengi í sumar og tapaði svo fyrir nýliðunum á suðurnesjunum.
Stjarnan tapaði fyrir Víkingum úti í fyrsta leikjnum en vann svo Val heima í síðustu umferð.
Stjarnan tapaði fyrir Víkingum úti í fyrsta leikjnum en vann svo Val heima í síðustu umferð.
Fyrir leik
Velkomin
Velkomin að leiknum Þór/KA - Stjarnan á nýja vellinum í Þorpinu. Hér er skítakuldi í fyrsta sinn á Akureyri síðan Nonni sigldi á vit ævintýranna.




2 - 2 .. Miklu betri seinni hálfleikur hjá heimamönnum.