Fotbolti.net
@fotboltinetAlexander Tonini
Alexander Tonini
Mjólkurbikar karla
AVIS völlurinn
7 stiga hiti, hægur vindur og léttskýjað
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 2
Breiðablik
Breiðablik
0 - 145' Davíð Ingvarsson 0 - 269' Kristófer Ingi KristinssonSigurður Egill Lárusson 94'1 - 2
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Blikar sýndu gæði sín manni færri á Avis vellinum

Hvað réði úrslitum?

Gæðin hjá Blikum og þá sérstaklega Ágúst Orri, Kristófer Ingi og Davíð Ingvarsson sem gera allir þrír tilkall í mann leiksins. Hefðu þessir þrír leikmenn verið í Þrótti hefði leikurinn eflaust þróast með öðrum hætti.

Bestu leikmenn

1. Ágúst Orri Þorsteinsson

Það er mjög auðvelt að sjá að gæðin í þessum unga pilti fara bráðum að vera of mikil fyrir Bestu deildina. Hann hefur allt, hraða, leikni og sjálfstraust. Alltaf ógn í kringum hann og gerði frábærlega í seinna markinu hér í kvöld.

2. Davíð Ingvarsson

Valið var erfitt á milli hans og Kristófers Inga sem var líka góður í þessum leik. En Davíð skoraði gott mark, var hættulegur fram á við og góður varnarlega í bakverðinum og því fær hann þetta rétt á undan Kristófer.

Atvikið

Það er bara eitt atvik sem verður rætt um næstu misseri og það er rauða spjaldið sem Viktor Örn Margeirsson fær á 55. mínútu fyrir klaufalega tæklingu þar sem stoðfóturinn rennur undan honum. Við fyrstu sýn virtist þetta afar ljót og groddaraleg tækling en við endursýningu og viðtal við Viktor Örn sjálfan er ljóst að það var enginn ásetningur á ferð, heldur bara óheppilegt atvik.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik fer áfram í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins á meðan Þróttur Reykjavík getur einbeitt sér alfarið að Lengjudeildinni.

Vondur dagur

Það átti í sjálfu sér engin hræðilegan dag heilt yfir í leiknum. En mér fannst Magnús Ingi Þórðarson ekki komast inn í leikinn og svo fór hann út af meiddur í hálfleik. Óli Valur Ómarsson sást heldur ekki mikið í leiknum og leit hreinlega illa út þegar Þróttur minnkaði muninn í uppbótartíma.

Dómarinn - 9

Vel dæmdur leikur hjá ÞÞÞ og hans teymi. Hárrétt rautt spjald og leyfði leiknum að flæða án þess að flauta að óþörfu. Með betri frammistöðum dómara í sumar að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.