SKÝRSLAN: Elmar Cogic eldaði Njarðvík
Hvað réði úrslitum?
Fyrir utan nokkrar mínútur í lok fyrri og seinni hálfleik, þá valtaði Afturelding alveg yfir Njarðvík. Afturelding var með miklu betri orku, kraft og viljann til þess að vinna.
Bestu leikmenn
1. Elmar Kári Enesson Cogic
Hvar á maður að byrja. Hann var allt í öllu, tók aukaspyrnuna sína vel og hornin voru algjör gæði. Alltaf að finna góð svæði og Njarðvík átti ekki sjens í hann.
2. Bart Kooistra
Var alltaf mjög hættulegur í leiknum og átti skilið að skora.
Atvikið
Njarðvíkingar voru ekki góðir í öllum leiknum, en eftir mark Aftureldingar þá er eins og Njarðvíkingar hættu að reyna. Stuttu seinna kemur kafli þar sem Afturelding herjaði á Njarðvík stanslaust og var það alltaf klárt hver myndi skora aftur. Afturelding hætti líka aldrei og vildu alltaf skora fleiri mörk.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík fara heim og verða að bíða til næsta sumars ef þeir vilja gera eitthvað í bikarnum. Afturelding eru komnir í 8-liða úrslit í bikarnum og eru þeir greinilega mjög spenntir að sjá hvern þeir fá.
Vondur dagur
Allt Njarðvíkur liðið var ekki gott, en sá sem var að dekka Elmar Cogic er örugglega með martraðir eftir þennan leik.
Dómarinn - 8
Þetta var bara fínt.



