Fotbolti.net
@fotboltinetViktor Ingi Valgarðsson
Mjólkurbikar karla
Kórinn
Lognið í Kórnum
HK
HK
0 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 172' Valdimar Þór Ingimundarson0 - 286' Elías Már Ómarsson (víti)
Dómari: Arnar Þór Stefánsson

SKÝRSLAN: Kórinn söng sitt síðasta í Mjólkinni

Hvað réði úrslitum?

Það þurfti heldur betur að vinna fyrir því að koma boltanum í netið í kvöld. Tók meira en klukkutíma að þreyta og brjóta HK-inga í kvöld. En þegar markið loksins kom var ekki spurning að Víkingar væri komnir áfram. En frábær barátta sem HK sýndi og tekur með sér í tímabilið framundan.

Bestu leikmenn

1. Valdimar Þór Ingimundarson

Kemur inn á eftir 64.mín og skorar á innan við tíu mínútum. Þetta var markið sem Víkingar voru búnir að bíða eftir og verðugt til að vera maður leiksins

2. Ármann Ingi Finnbogason

WOW, þvílík skemmtun sem það var að fylgjast með honum á kantinum. Ótrúlegur kraftur í honum og réðst á vörn HK sífellt. Átti einnig góðar varnarvinnu snemma í leiknum þegar á þurfti.

Atvikið

Þessi þrefalda skipting eftir 64.mín. Maður minn lifandi GÆÐI og FLEIRA kemur boltanum loksins yfir línuna og næla í farmiða í 8-liða úrslitin

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru komnir með nafnið sitt í pottinn fyrir 8-liða úrslit. Hinsvegar er þetta endir HK í Mjólkurbikarnum þetta tímabil

Vondur dagur

Kannski er maður frekar en Víkingar eiga eflaust að skora gegn Lengjudeildar liði í fyrri hálfleik. En ekki að draga úr frábærum leik sem HK spilaði. Eitt athyglisvert er að segja að Erlingur Agnarsson fékk heldur betur að heyra það frá stúkunni allan leikinn. Ekki veit ég afhverju en kallað var á nafnið hans og baulað þegar hann komst í boltann eða jafnvel nálægt honum. Það endaði þó af virðingu frá HK stuðningsmönnum sem klöppuðu fyrir honum að leikslokum.

Dómarinn - 7

Bara flottur í dag, ekkert mikið svo sem að gera en vítadómur og gulu spjöldin voru spot on.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.