Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Stjarnan
Stjarnan
Mjólkurbikar karla
Samsungvöllurinn
6 gráður, 2 m/s
2 - 1
KR
KR
0 - 17' Eiður Gauti SæbjörnssonEmil Atlason 11'1 - 1Emil Atlason 44'2 - 1
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Emil sendur beinustu leið í lyfjapróf

Hvað réði úrslitum?

Þjálfararnir voru sammála um að orkustigið hafi verið meira hjá heimamönnum. Þeir fengu fjölda góðra færa í fyrri hálfleiknum á meðan KR-ingar náðu ekki að skapa sér nægilega mikið í þeim seinni þó þeir hafi mikið verið með boltann við vítateig heimamanna. KR-ingar voru mun ragari en þeir hafa verið hingað til á tímabilinu á meðan margir Stjörnuleikmenn stigu upp. Verðskuldaður sigur Garðbæinga.

Bestu leikmenn

1. Emil Atlason - Stjarnan

Þessi magnaði sóknarmaður sýndi sínar bestu hliðar í kvöld, skoraði bæði mörk Stjörnunnar og var að auki feikilega drjúgur og erfiður viðureignar fyrir KR. Það var vel við hæfi að beint eftir sjónvarpsviðtal var Emil tekinn samstundis í lyfjapróf af lyfjaeftirliti Íslands.

2. Daníel Finns Matthíasson - Stjarnan

Margir gera tilkall í þennan dálk enda stigu margir upp í Stjörnuliðinu. Gummi Kristjáns var geggjaður í vörninni og Jóhann Árni frábær á miðsvæðinu. Danni Finns var með stoðsendingu og skapaði fleiri færi sem hefðu átt að verða að mörkum.

Atvikið

Mörg atvik í þessum leik en hér set ég bara tilfinningar Stjörnunnar eftir lokaflaut. Eftir hvert tapið á fætur öðru kom þessi öflugi sigur og hann hefur mikla þýðingu fyrir liðið. Einnig var þetta mögulega nauðsynlegur sigur fyrir Jökul þjálfara en staða hans hefur mikið verið í umræðunni.

Hvað þýða úrslitin?

Taflið snerist við. Stjarnan hafði tapað fjórum leikjum i röð og batt enda á sigurgöngu KR. Liðin mættust í deildinni síðasta föstudag og þá vann KR. Eins og oft vill verða þegar lið mætast tvisvar í röð þá voru það Stjörnumenn sem unnu í kvöld og komust í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins.

Vondur dagur

Sóknarleikmenn KR voru í brasi með að binda endahnútinn og fyrirliðinn Aron Sigurðarson verður að fá þennan dálk þrátt fyrir að eiga stoðsendingu. Hann klúðraði vítaspyrnu í blálok fyrri hálfleiks og hefði getað skilað jafnri stöðu í hálfleikinn. Að mínu mati var það vendipunktur. Alexander Rafn Pálmason getur líka verið hundsvekktur með að hafa skotið framhjá fyrir opnu marki í frákastinu af vítinu.

Dómarinn - 6

Ívar Orri er að mínu mati okkar besti dómari og hann hafði góða stjórn á leiknum. Það voru þó nokkrir dómar sem ég var ósammála og þar af einn risastór. Ég tel að KR hafi átt að fá annað víti í seinni hálfleik þegar Guðmundur Kristjánsson sparkaði í Eið Gauta Sæbjörnsson.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.