Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Afturelding
Afturelding
Mjólkurbikar karla
Malbikstöðin að Varmá
5 - 2
Njarðvík
Njarðvík
Aron Elí Sævarsson 11'1 - 0Elmar Kári Enesson Cogic 53'2 - 0Bart Kooistra 62'3 - 0Óðinn Bjarkason 68'4 - 0Elmar Kári Enesson Cogic 71'5 - 05 - 183' Felix Lima Santos5 - 292' Haraldur Smári Ingason
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Þetta er búið, takk fyrir mig. Skýrsla og viðtöl á leiðinni.
Njarðvík
92. mín
MAAAARK!

Haraldur Smári Ingason

Fær boltann við D bogann, hann tekur skotið þar og markmaðurinn nær ekki að verja hann í fjær hornið.
91. mín
Arnleifur með horn sem flýgur yfir allan teiginn.
90. mín
Freysteinn keyrir upp hægri kantinn en sendingin inn í boxið er skölluð burt af Axel.
90. mín
+2
88. mín
Kooistra komin á vinstri kantinn, skýtur beint á Smit.
87. mín
Elmar Cogic aftur!
Elmar keyrir upp hægri kantinn og kemur með sendingu inn í teiginn á Kooistra sem lætur hann vera og Róbert Agnar sem er næstur í boltann missir af boltanum.
87. mín
Njarðvík ná fyrirgjöf inn í teiginn en vörn Aftureldingar ná að sparka honum burt.
86. mín
Njarðvík er að kveikja í sér.
Njarðvík
84. mín
Gult spjald

Haraldur Smári Ingason

Njarðvík
84. mín
Gult spjald

Arnar Helgi Magnússon

Njarðvík
83. mín
MAAAARK!

Felix Lima Santos (stoðsending: Arnleifur Hjörleifsson)

Arnleifur með aukaspyrnu. Boltinn fer beint á Felix Lima Santos sem skallar í fjær hornið, markmaðurinn stóð eins og stytta.
82. mín
Axel Óskar með skalla úr horni, beint á Smit.
81. mín
Elmar með aukaspyrnu inn í teig, boltinn fer beint á Gunnar Bergmann sem skallar framhjá.
78. mín
Santos með skalla frá horni sem fer beint á markmanninn.
77. mín
Elmar á hægri kantinum vill þrennuna en Smit ver léttilega.
77. mín
Nóg að gera hjá mér að setja allt inn í lýsinguna en það er klárt að Njarðvíkingar vilja fara heim, þar sem þeir eru ekki að taka þátt lengur.
Njarðvík
73. mín
InnHaraldur Smári Ingason
ÚtEiður Aron Sigurbjörnsson
Afturelding
73. mín
InnAri Hrafn Haraldsson
ÚtEnes Þór Enesson Cogic
Njarðvík
73. mín
InnFelix Lima Santos
ÚtAlexander Helgi Sigurðarson
Afturelding
73. mín
InnTrausti Þráinsson
ÚtJón Vignir Pétursson
Afturelding
73. mín
InnRóbert Agnar Daðason
ÚtÓðinn Bjarkason
Afturelding
71. mín
MAAAARK!

Elmar Kári Enesson Cogic (stoðsending: Enes Þór Enesson Cogic)

Jæja, Njarðvíkingar hafa alveg slökkt á sér og vilja fara heim. Elmar sleppur í gegn á hægri kantinum eftir sendingu frá Enes. Elmar skýtur svo framhjá Smit.
Afturelding
68. mín
MAAAARK!

Óðinn Bjarkason (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Byrjum á því að Njarðvík á innkast sem þeir kasta beint á Kooistra. Kooistra keyrir þá á vörnina, sendir á Elmar sem er galopin. Elmar og Óðinn eru þá komnir í tveir á mót einum varnarmanni Njarðvíkur og markmanni. Elmar sendir svo á Óðinn sem er með galopið markið.
66. mín
Elmar er ótrúlegur í dag og eiga Njarðvíkinger erfitt með að höndla hann akkúrat núna.
Afturelding
64. mín
InnGunnar Bergmann Sigmarsson
ÚtBirkir Már Sævarsson
Afturelding
62. mín
MAAAARK!

Bart Kooistra (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Enes fær boltann rétt fyrir utan vítateig, sólar menn og endar á að taka skotið sem fer í varnarmann. Boltinn dettur þá á Elmar sem sendir fyrir á Kooistra sem er með galopið markið.
58. mín
Elmar keyrir upp hægri kantinn og kemur með háa fyrirgjöf, Enes misreiknar þetta og stekkur ekki upp.
56. mín
Afturelding vill meira!
Aron Elí með háa fyrirgjöf á Elmar Cogic sem skallar framhjá.
Njarðvík
56. mín
InnFreysteinn Ingi Guðnason
ÚtGuðmundur Magnússon
54. mín
Mini myndaveisla
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Afturelding
53. mín
MAAAARK!

Elmar Kári Enesson Cogic

Vááááá. Elmar tekur aukaspyrnuna og skýtur beint í efra vinstra hornið. Smit átti engan sjens.
Njarðvík
52. mín
Gult spjald

Alexander Helgi Sigurðarson

Njarðvík missir boltann og Enes Cogic sendir á Kooistra en Alexander Helgi tæklar hann niður rétt fyrir utan vítateig.
49. mín
Óðinn með háa sendingu á vinstri kantinum en það er enginn framherji til þess að skalla hann inn.
47. mín
Skyndisókn fyrir Aftureldingu en Kooistra missir hann fyrir horn.
46. mín
Björn Aron með sendingu fram fyrir markið, hún er spörkuð burt.
46. mín
Seinni hálfleikur
Mosfellingar byrja.
45. mín
Afturelding er búin að vera betri aðilinn en Njarðvíkingar náðu að gera eitthvað í lok leiksins en þeir náðu aldrei neinu alvöru færi. Aftureldingsmenn hefðu kannski átt að skora fleiri, það voru aðallega fleiri ,,dauðafæri" hjá Aftureldingu í fyrri hálfleik.
45. mín
+2
45. mín
Arnleifur með hættulegt horn sem dettur rétt fyrir framan markið en Arnar Helgi skallar hann yfir markið.
44. mín
Njarðvíkingar eru að vakna og eru meira hættulegri en þeir voru fyrr í leiknum.
Njarðvík
42. mín
InnBjörn Aron Björnsson
ÚtLeandro Fernandes
Virðist vera meiddur, óskum honum góðs bata.
40. mín
Bragi Karl með aukaspyrnu á kantinum, ákveður að taka skotið og markmaðurinn ver léttilega.
38. mín
Njarðvíkingar eru aðeins að vakna.
34. mín
Jón Vignir með horn, Smit var í vandræðum og nær að lemja boltann út.
33. mín
Kooistra sleppur í gegn en sendingin hjá honum er spörkuð burt.
32. mín
Jón Vignir tekur hornið og það er mjög lágt og frekar lélegt.
31. mín
Dauðafæri
Óðinn Bjarkason fær boltann og kemst í mjög gott 1v1 tækifæri inn í teig en hann skýtur lágt og Smit ver fyrir horn.
30. mín
Arnleifur reynir að senda í gegn en Axel skallar boltanum til markmannsins sem grípur boltann.
29. mín
Arnleifur með háa sendingu inn í teig, Arnar Daði nær boltanum.
27. mín
Dauðafæri
Enes keyrir upp vinstri kantinn, sendir svaka sendingu á Kooistra sem er alveg frír inn í teig en skotið er í varnarmann og framhjá. Hann verður að skora!
25. mín
Axel tekur Leandro niður í baráttu við boltann, fær tiltal frá dómara.
22. mín
Hornið er vissulega skallað burt af Gumma Magg.
22. mín
Njarðvíkingar í vandræðum að senda á milli og missa boltann í horn.
20. mín
Aron Einarson með frekar ruddalega bakhrindingu á Enes.
18. mín
Alexander Helgi með horn en Afturelding skallar burt aftur.
17. mín
Arnleifur með aukaspyrnu langt frá en Afturelding nær að verja vel og skalla burt.
12. mín
Njarðvíkingar reyna að svara og ná góðri sókn en Arnar Daði ver skotið.
Afturelding
11. mín
MAAAARK!

Aron Elí Sævarsson (stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic)

Enn eitt hornið fyrir Aftureldingu. Elmar tekur hornið og setur boltann beint á hausinn á fyrirliðanum sem rís manna hæst við vítapunktinn inn í teignum.
8. mín
Elmar með horn sem fer beint á Hoti, hann nær skallanum en Smit ver svakalega.
4. mín
Dauðafæri
Elmar með hornið, Axel skallar hann fram fyrir markið á Aron Elí sem er fyrir framan markið en hann misreiknar þetta og fær hann í síðuna og framhjá.
4. mín
Birkir að næla í horn.
3. mín
Gummi Magg nær boltanum af Bjarti, sendir svo á Alexander Helga sem skýtur en Arnar daði ver.
1. mín
Fernandes með aukaspyrnu sem er skölluð burt.
1. mín
Njarðvík byrjar. Dómari þarfað flauta tvisvar áður en leikurinn byrjar og ég var aðeins of fljótur á mér. Vesen á Fernandes.
Fyrir leik
Leikmennirnir eru að labba inn á völlinn, þetta er allt að gerast.
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru mætt
Bart Kooistra sem kom með mark og stoðsendingu í síðasta leik er í byrjunarliðinu, litli bróðir Elmar Cogic hann Enes Cogic byrjar líka í staðinn fyrir Holtan. Róbert Agnar sem kom með mark í síðasta leik gegn Leikni er á bekknum aftur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Spáin
Almarr spáir því að leikurinn fari alla leið í vító, en í venjulegum leiktíma spáir hann 1-1. ,,Þetta er kannski leikurinn sem er erfiðast að spá í. Davíð Smári er góður að setja upp einstaka leiki. Ég sé fyrir mér jafntefli og að þetta fari alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Njarðvík hefur betur."
Fyrir leik
Dómaratríóið
Elías Ingi Árnason er dómari kvöldsins. Honum til aðstoðar eru þeir Ragnar Þór Bender og Kristófer Bergmann. Hreinn Magnússon verður með skiltið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Upphitunarþáttur
Kári Snorrason og Almarr Ormarsson rýna í leikina.
Fyrir leik
Ekki besta byrjunin
Afturelding voru að búast við betri byrjun á mótinu í Lengjudeildinni, þeir sitja í 5. sæti með 4 stig. Einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap. 7 mörk skoruð og 7 mörk fengið á sig, það má bæta við að þeir fengu á sig 7 mörk í fyrsta leik gegn ÍR en haldið hreinu í síðustu tveimur.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á síðasta ári fóru Mosfellingar alla leið í átta liða úrslitin en töpuðu svo gegn Fram 0-1 á heimavelli. Freyr Sigurðsson með sigurmarkið. Davíð Smári og Vestri unnu svo Fram í undanúrslitum.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Fyrir leik
Hann hefur gert þetta áður
Davíð Smári Lamude sem þjálfaði Vestra til sigurs í Mjólkurbikarnum síðasta sumar er núna að þjálfa Njarðvík. Það má líka ekki gleyma að Eiður Aron Sigurbjörnsson er líka að spila fyrir Njarðvík, hann var fyrirliði Vestra í leiknum.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Njarðvík er í 6. sæti í Lengjudeildinni með 4 stig. Einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap. Síðasta leik unnu þeir gegn Fylki, 2-0 á heimavelli. Þeir hafa skorað tvö mörk og fengið á sig tvö. Í fyrstu umferð, fóru Njarðvíkingar á Sauðárkrók og unnu Tindastól 0-1. Símon Logi Thasaphong með eina markið.
Fyrir leik
16 liða úrslit Mjólkurbikarsins
Velkomin á Malbikstöðina í Mosfellsbæ. Það er lengjudeildar slagur í mjólkurbikarnum. Sigurvegarinn fer í átta liða úrslitin en hitt liðið fer heim.
Mynd: Raggi Óla
miðvikudagur 13. maí 17:30 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn) 19:15 HK-Víkingur R. (Kórinn) 19:15 Afturelding-Njarðvík (Malbikstöðin að Varmá) 19:15 ÍA-Grindavík (ELKEM völlurinn) 20:00 Stjarnan-KR (Samsungvöllurinn) fimmtudagur 14. maí 14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn) 14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn) 15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.