Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Fram
Fram
Mjólkurbikar kvenna
Lambhagavöllurinn
3 - 0
ÍA
ÍA
Alda Ólafsdóttir 24'1 - 0Sara Svanhildur Jóhannsdóttir 49'2 - 0Una Rós Unnarsdóttir 57'3 - 0
Dómari: Óliver Thanh Tung Vú
Leik lokið!
Viðtöl og skýrsla á leiðinni, takk fyrir mig.
91. mín
Júlía Margrét reynir fyrirgjöf en vindurinn þeytir boltanum yfir markið.
89. mín
Alda kemst í gott færi en er svo dæmt brot á hana eftir að Elvira Agla kemst í boltann.
87. mín
Mjög lítið að gerast.
83. mín
Alda kemst í skyndisókn og er að elta boltann, vindurinn er svo mikill og boltinn flýgur áfram fyrir markspyrnu.
ÍA
83. mín
InnBríet Sunna Gunnarsdóttir
ÚtMadison Brooke Schwartzenberger
Fram
83. mín
InnKrista Dís Kristinsdóttir
ÚtBrookelynn Paige Entz
81. mín
ÍA er að reyna að ógna en ná ekki að ógna marki Fram almennilega, lítið að gerast akkúrat núna.
76. mín
Easter með góða markspyrnu en það er svo mikill vindur sem stoppar boltann upp í loftinu.
74. mín
ÍA að reyna með skyndisókn en missa boltann klaufalega.
73. mín
Júlía Margrét kemst í góða stöðu að koma með fyrirgjöf fram fyrir markið en vörn ÍA sparkar burt.
72. mín
Hanna Faith nær að skall yfir vörn ÍA, boltinn dettur þá á Katrínu sem nær skoti úr þröngu færi en Easter ver.
ÍA
71. mín
Gult spjald

Nadía Steinunn Elíasdóttir

Fram
70. mín
Gult spjald

Hanna Faith Victoriudóttir

Fram
69. mín
InnHanna Faith Victoriudóttir
ÚtFreyja Dís Hreinsdóttir
Fram
69. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtSara Svanhildur Jóhannsdóttir
ÍA
66. mín
InnDagbjört Líf Guðmundsdóttir
ÚtSigrún Eva Sigurðardóttir
ÍA
66. mín
InnNadía Steinunn Elíasdóttir
ÚtErna Björt Elíasdóttir
65. mín
Vala María fær boltann inn í teig Framara en hún skýtur yfir markið.
61. mín
Katrín á vinstri kantinum með fyrirgjöf sem ÍA sparkar burt.
61. mín
ÍA er varla að ná að komast yfir miðju línuna og Fram ætlar klárlega að skora fleiri mörk í kvöld.
60. mín
Dæmd rangstaða á Katrínu, ég held að hún hafi verið fyrir innan samt.
Fram
57. mín
MAAAARK!

Una Rós Unnarsdóttir

Úff, skorar bara beint úr hornspyrnunni, boltinn fer yfir Easter.
56. mín
Sara Svanhildur með skot fyrir utan teig beint í markmanninn.
54. mín
Stöng
Hár bolti inn í teig á Ernu Björt sem kemst framhjá Kristínu Barboza og kemur sér í 1v1 færi geng markmanni en hún skýtur beint í stöngina.
51. mín
Sláin!
Fram með horn. Hornið er skallað burt en boltinn dettur á Katrínu sem kemur með aðra fyrirgjöf og boltonn fer í slána.
Fram
49. mín
MAAAARK!

Sara Svanhildur Jóhannsdóttir (stoðsending: Una Rós Unnarsdóttir)

Þriðja horn Fram. Una kemur með sendinguna inn í teig á Söru sem er rétt fyrir utan markið, potar í boltann sem fer í slána og inn í markið.
48. mín
Ekkert skilti til þess að hjálpa mér að sjá hver er að fara út af eða að koma inn á. Ég ætti samt að vera með þetta.
ÍA
46. mín
InnAnna Þóra Hannesdóttir
ÚtSelma Dögg Þorsteinsdóttir
Fram
46. mín
InnKristín Magdalena Barboza
ÚtHarpa Helgadóttir
Fram
46. mín
InnUna Rós Unnarsdóttir
ÚtTaylor Marie Hamlett
ÍA
46. mín
InnVala María Sturludóttir
ÚtÍsabel Jasmín Almarsdóttir
46. mín
Seinni hálfleikur
ÍA byrjar. Sjáum til hvernig þær munu svara.
45. mín
Búin að vera áhugaverður leikur. Fram á að vera 2-0 yfir, það er ekki skoðun heldur staðreynd. En þær eru það ekki og ef Fram endar eitthvern veginn að tapa þá verða þær að líta á öll þessi færi sem þau hafa skapað sér og fara yfir það að nýta þau.
45. mín
Katrín Vilhjálms fær boltann á vinstri kant, reynir að koma með fyrirgjöf en sendingin fer í varnarmann ÍA. Katrín fær boltann aftur en hún tekur skotið sem Easter ver.
44. mín
Hamlett fær boltann inn í teignum, hún reynir að snúa sér og koma sér í færi en fer of langt með hann og ÍA nær boltanum.
43. mín
Mark tekið af Fram
Fram skorar úr horni en dómarinn dæmir á það að leikmenn Fram voru fyrir markmanninum.
42. mín
Sara Svanhildur fær boltann á fjær, tekur lágt skot sem fer beint á Easter.
40. mín
ÍA eru byrjaðar að vakna aðeins.
38. mín
Slá og Dauðafæri
Hvað er að gerast Halló!? Sara Svanhildur tekur skotið rétt fyrir utan teiginn sem fer í slána. Boltinn dettur svo á Öldu sem er staðsett á vítapunktinum, alein og er með allt markið fyrir framan sig. En Alda skýtur framhjá. Ég veit ekki hvað ég á að segja.
37. mín
Harpa Helgadóttir ætlar að taka innkastið en Sigrún Eva fer fyrir framan boltann og blokkar hana og hagar sér eins og hún hafi ekkert gert. Smá barnaskapur finnst mér.
34. mín
Það er greinilega komin harka í leikinn. Erna Björt snýr sér við og kemur með öxlina beint í munn Hörpu sem dettur niður, en stendur svo aftur upp. Dómarinn vildi ekki dæma neitt en þar sem þetta var beint fyrir framan nefið hjá mér þá væri ég til í að sjá gult, þar sem þetta var full harkalegt.
Fram
30. mín
Gult spjald

Taylor Marie Hamlett

Boltinn dettur inn í teignum og Hamlett reynir að komast í boltann en endar á að fara með takkana í fótinn hjá leikmanni ÍA. ÍA vill sjá rautt og ég skil af hverju.
30. mín
Framarar eru búnar að vera miklu betri allan leikinn og eru núna að herja á mark ÍA.
Fram
24. mín
MAAAARK!

Alda Ólafsdóttir (stoðsending: Taylor Marie Hamlett)

Sara Svanhildur kemur með háa sendingu inn í teiginn. Boltinn dettur á Hamlett, sem sendir á Öldu. Alda skýtur beint í neðra vinstra hornið. Ég veit ekki hvort að Hamlett var að reyna að senda á Öldu eða boltinn fór óvart í Hamlett.
21. mín
Sara Svanhildur reynir að koma boltanum fram fyrir markið en Easter tekur boltann.
19. mín
Halló dauðafæri
ÍA kemur með fyrirgjöf sem dettur á Freyju Dís hjá Fram sem er klaufaleg og nær ekki að sparka boltanum burt. Boltinn fer þá til Erlu Karítas sem er þá komin í dauðafæri. Erla skýtur beint á Orkus, sem ver.
18. mín
Sara Svanhildur tekur aukaspyrnu sem er rétt frá teignum. Skotið er beint á mitt markið og markmaður ver.
17. mín
Katrín aftur á vinstri kantinum að koma með fyrirgjafir, en ÍA skallar bara burt.
15. mín
Leikurinn er frekar rólegur.
15. mín
Sara Svanhildur tekur skotið rétt fyrir utan teiginn, skotið fer yfir markið.
10. mín
Hamlett nálægt aftur
Sama uppskriftin. Katrín á fjær, kemur með háa sendingu á Hamlett. Boltinn var aðeins of hár og Hamlett skallar framhjá.
8. mín
Hamlett í dauðafæri
Katrín fær boltann á fjær, hún kemur svo með sendingu fram fyrir markið á Hamlett sem er hálfum metra frá markinu en hún skýtur framhjá.
7. mín
Freyja Dís kemur með sendingu í gegnum vörn ÍA en sendingin er of föst.
3. mín
Hættulegt
Fram missir boltann frekar klaufalega og Erla Karitas fær boltann, kemur með háa sendingu á Maletis sem tekur boltann niður í teignum en skotið hjá henni fer í hliðarnetið.
1. mín
Fram byrjar þessa veislu.
Fyrir leik
20 min í leik
Tvær breytingar hjá Fram, Alda Ólafs og Katrín Vilhjálms koma inn í byrjunarliðið fyrir þær Unu Rós og Sylvíu Rós. ÍA gerir engar breytingar á liðinu sínu í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Kraftlaust og steindautt
Fram situr á botninum í Bestu Deildinni eftir fjórar umferðir með 0 stig, 3 mörk skoruð og fengið á sig 10 mörk. Í síðasta leik þá töpuðu þær 0-1 á heimavelli gegn Víkingi og var þjálfari liðsins Anton Ingi ekki ánægður með leikinn, sérstaklega með fyrri hálfleik. „Aðallega, númer eitt er það krafturinn. Vorum alveg gjörsamlega kraftlausar og langt á eftir þeim í einu og öllu í fyrri hálfleik. Í seinni hálfleik þá förum við að mæta þeim á smá krafti og aðeins ofar á vellinum. Sýnum kjark og við þorðum ekki að spila í fyrri hálfleiknum og það var bara allt steindautt."
Fyrir leik
Dómaratríóið
Óliver Thanh Tung Vú verður með flautuna góðu, Elías Baldvinsson og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem verða með flöggin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Velkomin á Lambhagavöllinn, þar sem Fram tekur á móti ÍA í 16-liða úrslitum. Annað liðið fær farmiða í 8-liða úrslitin en hitt liðið fer heim og úr leik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
föstudagur 15 maí 18:00 Þór/KA-Stjarnan 18:00 Keflavík-Víkingur R. 18:00 Fram-ÍA 18:00 Selfoss-FH 19:00 Valur-Grindavík/Njarðvík laugardagur 16 maí 13:00 Tindastóll-ÍBV 13:00 Fylkir-FHL 15:00 Þróttur R.-Breiðablik
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.