SKÝRSLAN: Jasmín reddaði málunum
Hvað réði úrslitum?
Víkingar áttu frábæra leikmenn á varamannabekknum sem komu inn af krafti og komu þessu yfir línuna í framlengingunni. Lið Keflavíkur var mjög þétt fyrir í leiknum og þær mega vera stoltar af sér fyrir frammistöðuna. Þær hefðu jafnvel getað stolið þessu, en þegar leið á leikinn var það breiddin í Víkingsliðinu sem kom þeim yfir línuna.
Bestu leikmenn
1. Salóme Kristín Róbertsdóttir (Keflavík)
Ungur miðvörður sem stóð vaktina frábærlega í vörn Keflavíkur, allavega lengst af. Hún og Anita Lind áttu mjög góðan leik í hjarta varnarinnar.
2. Jasmín Erla Ingadóttir (Víkingur R.)
Kom inn af bekknum og reddaði málunum. Skoraði og átti stoðsendingu líka. Hún verður mjög mikilvæg fyrir Víkinga í sumar.
Atvikið
Markið sem Jasmín gerir í framlengingunni. Eftir það varð vonin veik fyrir Keflavík, orkan var lítil og ekki mikill möguleiki.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingur er komið áfram í átta-liða úrslitin á meðan Keflavík einbeitir sér að því að gera góða hluti í Lengjudeildinni.
Vondur dagur
Þeir leikmenn sem komu inn í Víkingsliðið náðu ekki að grípa gæsina og sanna fyrir þjálfurunum að þær eigi að byrja næsta leik í deildinni. Ariela Lewis nagar sig þá líklega í handarbökin að hafa ekki skorað. Hún var mjög góð í leiknum en náði ekki að klára þau færi sem hún fékk.
Dómarinn - 6
Ekki mjög erfiður leikur að dæma.



