Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Þór/KA
1
4
Stjarnan
0-1 Snædís María Jörundsdóttir '8
Birgitta Rún Finnbogadóttir '45 1-1
1-2 Snædís María Jörundsdóttir '66
1-3 Telma Steindórsdóttir '69
1-4 Andrea Mist Pálsdóttir '96
15.05.2026  -  18:00
VÍS völlurinn
Mjólkurbikar kvenna
Dómari: Sveinn Arnarsson
Áhorfendur: 130
Maður leiksins: Snædís María Jörundsdóttir
Byrjunarlið:
1. Harpa Jóhannsdóttir (m)
2. Angela Mary Helgadóttir ('72)
5. Karen Hulda Hrafnsdóttir
6. Hildur Anna Birgisdóttir
7. Amalía Árnadóttir ('85)
8. Birgitta Rún Finnbogadóttir
9. Karen María Sigurgeirsdóttir ('85)
14. Margrét Árnadóttir
18. Bríet Jóhannsdóttir
19. Agnes Birta Stefánsdóttir ('85)
23. Bríet Fjóla Bjarnadóttir ('72)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
12. Allesandra Doherty Augur (m)
3. Ásta Ninna Reynisdóttir
4. María Dögg Jóhannesdóttir ('72)
10. Elísa Bríet Björnsdóttir ('72)
11. Arna Sif Ásgrímsdóttir (f)
17. Emelía Ósk Kruger ('85)
21. Sigyn Elmarsdóttir
22. Hulda Ósk Jónsdóttir
25. Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('85)
26. Erin Flurey
27. Aníta Ingvarsdóttir ('85)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Jóhann Hilmar Hreiðarsson (Þ)
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þ)
Aron Birkir Stefánsson (MÞ)
Hannes Bjarni Hannesson (Sjúkraþj.)
Hulda Björg Hannesdóttir (Leikmaður utan hóps)
Sigurbjörn Bjarnason (AÞ)

Gul spjöld:
Aðalsteinn Jóhann Friðriksson ('81)
Aníta Ingvarsdóttir ('93)
Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir ('96)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Stjarnan vinnur þriggja marka sigur og fer áfram í 8-liða úrslitin!
96. mín MARK!
Andrea Mist Pálsdóttir (Stjarnan)
Beint úr aukaspyrnu utan af kanti! Boltinn yfir Hörpu í markinu.
96. mín Gult spjald: Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (Þór/KA)
93. mín Gult spjald: Aníta Ingvarsdóttir (Þór/KA)
Togar Þóru niður.
91. mín
Fimm mínútur í uppbót
91. mín
Ingibjörg með flotta sendingu inn á Hrefnu sem reynir skot/fyrirgjöf sem fer yfir mark heimakvenna.
89. mín
Gott færi Birgitta Rún kemur sér í mjög gott færi en nær ekki að hitta markið.

Þór/KA að leita.
89. mín
Inn:Rósa María Sigurðardóttir (Stjarnan) Út:Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir (Stjarnan)
89. mín
Inn:Nanna Sif Guðmundsdóttir (Stjarnan) Út:Eva Marie Wirtz (Stjarnan)
85. mín
Inn:Aníta Ingvarsdóttir (Þór/KA) Út:Agnes Birta Stefánsdóttir (Þór/KA)
85. mín
Inn:Emelía Blöndal Ásgeirsdóttir (Þór/KA) Út:Karen María Sigurgeirsdóttir (Þór/KA)
85. mín
Inn:Emelía Ósk Kruger (Þór/KA) Út:Amalía Árnadóttir (Þór/KA)
84. mín
Hætta inn á teig Stjörnunnar Atgangur inn á teig Stjörnunnar en heimakonur ná ekki að koma almennilegri tilraun að marki gestanna.
81. mín Gult spjald: Aðalsteinn Jóhann Friðriksson (Þór/KA)
Gult á þjálfarann Alli Jói er mjög ósáttur. Hann sá olnbogaskot frá leikmanni Stjörnunnar en ekkert var dæmt. Fær gult fyrir munnsöfnuð.

Þetta var einhver stöðubarátta sýndist mér beint fyrir framan varamannabekk Þórs/KA, sást illa héðan.
80. mín
Inn:Hrefna Jónsdóttir (Stjarnan) Út:Erika Ýr Björnsdóttir (Stjarnan)
80. mín
Inn:Margrét Lea Gísladóttir (Stjarnan) Út:Fanney Lísa Jóhannesdóttir (Stjarnan)
78. mín Gult spjald: Jakobína Hjörvarsdóttir (Stjarnan)
Settu þig í hleðslu með Hleðslu
77. mín
Bridgette þarf aðhlynningu og leikurinn er stopp á meðan hún fær hana. Stjörnukonur nýta stoppið til að fá sér vatnssopa. Gæti reyndar verið Hleðsla í brúsunum.
73. mín
Ingibjörg reynir að finna Snædísi í gegn en Harpa í markinu er á tánum og er fyrst á boltann.
72. mín
Inn:Elísa Bríet Björnsdóttir (Þór/KA) Út:Bríet Fjóla Bjarnadóttir (Þór/KA)
72. mín
Inn:María Dögg Jóhannesdóttir (Þór/KA) Út:Angela Mary Helgadóttir (Þór/KA)
69. mín MARK!
Telma Steindórsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Andrea Mist Pálsdóttir
Gott skallamark Andrea Mist tekur aukaspyrnu af vinstri kantinum, hittir boltann vel og hann ratar beint á höfuðið á Telmu sem er á fjærsvæðinu og hún skallar boltann í netið.
67. mín
Birgitta Rún í boltanum og hún á tilraun hægra megin úr teig Stjörnunnar sem endar í höndum Bridgette.
66. mín MARK!
Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir
Annað mark Snædísar Snædís fær stungusendingu í gegn og mér sýnist línan á vörn Þórs/KA eitthvað klikka þarna. Snædís fær nægan tíma til að athafna sig og klárar af öryggi.

Stjarnan aftur komin yfir.
62. mín
Bríet í góðu færi Bríet Jóhannsdóttir fær boltann vinstra megin inn á teig Stjörnunnar, reynir skot með vinstri en það fer framhjá nærstönginni. Mjög fínt færi.
62. mín
Stjarnan á aukaspyrnu á vallarhelmingi heimakvenna, Andrea Mist tekur spyrnuna og boltinn er fínn en Telma rétt missir af honum.
60. mín
Hörkuskot að marki Þórs/KA frá Andreu sýnist mér, skot fyrir utan teig. Harpa skutlar sér og ver boltann vel til hliðar.
58. mín
Bridgette!! Birgitta Rún gerir frábærlega úti hægra megin, kemst inn á teiginn, sendir boltann út í teiginn þar sem Bríet Fjóla er í dauðafæri. Hún á skot sem Bridgette gerir mjög vel í að verja. Skotið hefði mátt vera betra en varslan er mjög góð.
56. mín
Inn:Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir (Stjarnan) Út:Hulda Hrund Arnarsdóttir (Stjarnan)
56. mín
Fanney Lísa á sprettinum og kemst í fyrirgjöf en boltinn fer í síðuna á Snædísi inn á teig Þórs/KA og flaggið fer svo á loft.
55. mín
Þór/KA fær horn.

Stjarnan hreinsar í burtu.
53. mín Gult spjald: Telma Steindórsdóttir (Stjarnan)
Missir Margréti framhjá sér og tekur hana svo niður.
50. mín
Karen Hulda með flottan varnarleik eftir gott spil Stjörnunnar úti hægra megin.
48. mín
Hætta við teig gestanna Margrét með fasta fyrirgjöf sem Erika gerir vel að komast fyrir. Hildur Anna á svo þrumuskot en það fer í Telmu.
46. mín
Karen María reynir skot fyrir utan teig en það fer vel yfir mark Stjörnunnar.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Engar sjáanlegar breytingar á liðunum.
45. mín
Hálfleikur
Mark á frábærum tíma fyrir heimakonur. Þetta var fyrsta alvöru færið hjá Þór/KA sem hefur þó átt nokkuð margar tilraunir.
45. mín MARK!
Birgitta Rún Finnbogadóttir (Þór/KA)
Stoðsending: Bríet Fjóla Bjarnadóttir
Eiginlega flautumark! Amalía leggur boltann á Karenu Maríu sem kemur með sendingu til vinstri sem fer yfir Þóru og Bríet Fjóla er þar með mikið pláss. Hún fer upp að endamörkum, kemur með flotta fyrirgjöf sem Birgitta kemst í á fjærstönginni, teygir sig og kemur boltanum yfir línuna með viðkomu í Bridgette. Þóra eflaust svekkt að hafa misst þennan bolta yfir sig.

Allt jafnt! Mikil efni sem komu að þessu marki, Bríet fædd 2010 og Birgitta fædd 2008.
44. mín
Léleg sending til baka og Stjarnan fær gefins horn, Harpa reynir að bjarga þessu en nær því ekki.

Agnes skallar fyrirgjöf Andreu í burtu.
44. mín
130 áhorfendur Þokkaleg mæting.
42. mín
Fínasta spil hjá Stjörnunni, ná að tengja nokkrar sendingar, flott samspil milli Snædísar og Andreu en ekkert varð svo sem úr sókninni.
39. mín
Karen Hulda með fína hreinsun úr vítateig Þórs/KA. Stjarnan heldur áfram að sækja en Bríet Fjóla nær svo boltanum og drepur sókn gestanna.
38. mín
Bríet Fjóla með skottilraun fyrir utan teig sem Bridgette ver þægilega.
37. mín
Aðeins of margar sendingar hjá Þór/KA sem eru of fastar eða er miðað of langt fyrir framan samherja.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Bridgette þarf að slá boltann úr markteignum eftir hornið en í kjölfarið er svo Birgitta dæmd rangstæð.
29. mín
Andrea Mist með flottan bolta á nærsvæðið sem Eva Marie Wirtz kemst í en hún skallar yfir.

Þór/KA sækir svo hinu megin og fær horn.
28. mín
Smá bras aftast hjá Stjörnunni en Bridgette nær að leysa úr þessu og Stjarnan vinnur svo horn hinu megin.
27. mín
Þór/KA fær horn.
Boltinn á nærsvæðið og hreinsað aftur fyrir, annað horn.

Fínar spyrnur frá Hildi en Stjarnan nær að hreinsa.
24. mín
Uppstilling Þór/KA Harpa
Angela - Agnes - Karen Hulda - Bríet J
Karen María - Hildur
Birgitta - Margrét - Bríet Fjóla
Amalía
23. mín
Uppstilling Stjarnan Bridgette
Þóra - Telma - Jakobína - Eva
Erika
Andrea - Hulda Hrund
Fanney - Snædís - Úlfa
18. mín
Hættulegasta sókn heimakvenna til þessa Bríet Fjóla Bjarnadóttir nálægt því að sleppa í gegn en Telma Steindórsdóttir vinnur vel til baka. Amalía á svo skot sem fer í Jakobínu.
17. mín
Angela með flotta fyrirgjöf inn á teig Stjörnunnar en Telma er fyrst á boltann og skallar í burtu. Næsti bolti endar svo í höndum Bridgette.
13. mín
Angela með bjartsýnistilraun sem fer yfir mark gestanna.
12. mín
Hildur Anna með tilraun fyrir utan teig sem Bridgette handsamar.
8. mín MARK!
Snædís María Jörundsdóttir (Stjarnan)
Stoðsending: Fanney Lísa Jóhannesdóttir
Fyrsta markið komið! Önnur sókn Stjörnunnar í leiknum, boltinn inn á markteiginn af hægri kantinum og Snædís er mætt á nærsvæðið og setur boltann í þaknetið. Frábær fyrirgjöf frá Fanneyju, boltinn inn fyrir Agnesi í vörninni og svo mjög vel klárað.

1-0!
7. mín
Núna reyndi Karen María skot fyrir utan teig Stjörnunnar en Bridgette var ekki í vandræðum með að verja það.
6. mín
Bríet Fjóla með skot í kjölfar hornspyrnu sem Bridgette í marki Stjörnunnar ver.
4. mín
Sýnist bæði lið vera í nokkuð flæðandi 4-4-2. Stjarnan kannski meira í 4-5-1 með Andreu og Huldu duglegar að vinna í kringum Snædísi. Systurnar Margrét og Amalía fremstar hjá heimakonum.
1. mín
Jakobína Hjörvarsdóttir með skottilraun en boltinn framhjá nærstönginni. Fínasta tilraun úr aukaspyrnunni.
1. mín
Stjarnan fær strax aukaspyrnu, brotið á Snædísi nálægt vítateig Þórs/KA.
1. mín
Stjarnan byrjar með boltann Snædís María Jörundsdóttir sparkar þessu af stað.
Fyrir leik
Fínustu aðstæður Það er alskýjað á Akureyri en það er 8-9°C sem er fínasta fótboltaveður. Það er smá gola sem hefur vonandi ekki mikil áhrif á leikinn.
Fyrir leik
Óskar Smári gerir tvær breytingar frá síðasta leik. Frá leiknum gegn FH í deildinni gerir Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, tvær breytingar. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir tekur sér sæti á bekknum en Birna Jóhannsdóttir er ekki með.

Inn í liðið koma þær Hulda Hrund Arnarsdóttir og Erika Ýr Björnsdóttir. Margrét Lea Gísladóttir kemur þá inn á bekkinn.

Fyrir leik
Skörð höggvin í lið heimakvenna Það vantar þrjá öfluga pósta í lið heimakvenna í dag. Arna Sif Ásgrímsdóttir er fjarri góð gamni og Erin Fleury er áfram frá. Hulda Björg Hannesdóttir verður þá ekki meira með eftir að hafa slitið liðband í hné.

Frá deildarleiknum gegn ÍBV eru fimm breytingar. Harpa Jóhannsdóttir stendur vaktina í markinu og þær Angela Mary Helgadóttir, Karen Hulda Hrafnsdóttir, Hildur Anna Birgisdóttir og Bríet Fjóla Bjarnadóttir koma líka inn. Allesandra Augur, Elísa Bríet, María Dögg og Hulda Ósk taka sér sæti á bekknum. Margrét Árnadóttir ber fyrirliðabandið.



Fyrir leik
Þriðja liðið Sveinn Arnarsson er með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða þau Aðalsteinn Tryggvason og Leyla Ósk Jónsdóttir. Björn Benedikt Benediktsson er fjórði dómari og Bragi Bergmann er eftirlitsmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn dæmir
Fyrir leik
Velkomin á VÍS-völlinn Góðan daginn lesendur góðir og veriði velkomnir í beina textalýsingu frá leik Þórs/KA og Stjörnunnar í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og fer fram á VÍS-vellinum í Þorpinu á Akureyri.

Bæði lið spila í Bestu-deildinni og er þetta fyrsta umferðin í bikarnum þar sem lið í efstu deild taka þátt.
Mynd: Ármann Hinrik
Byrjunarlið:
13. Bridgette Nicole Skiba (m)
4. Jakobína Hjörvarsdóttir
5. Eva Marie Wirtz ('89)
6. Úlfa Dís Kreye Úlfarsdóttir ('89)
7. Fanney Lísa Jóhannesdóttir ('80)
14. Snædís María Jörundsdóttir
15. Hulda Hrund Arnarsdóttir ('56)
21. Þóra María Hjaltadóttir
26. Andrea Mist Pálsdóttir
28. Erika Ýr Björnsdóttir ('80)
35. Telma Steindórsdóttir
- Meðalaldur 22 ár

Varamenn:
33. Tinna María Heiðdísardóttir (m)
8. Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir ('56)
10. Anna María Baldursdóttir (f)
16. Nanna Sif Guðmundsdóttir ('89)
17. Rósa María Sigurðardóttir ('89)
18. Margrét Lea Gísladóttir ('80)
19. Hrefna Jónsdóttir ('80)
40. Kara Sigríður Sævarsdóttir
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Orian Burzic (AÞ)
Artur Kotyash (Leikgr.)
Birgir Freyr Magnason (Leikgr.)
Miguel Mateo Castrillo
Benjamín Orri Hulduson (Liðsstj.)
Hulda Björk Brynjarsdóttir (Liðsstj.)

Gul spjöld:
Telma Steindórsdóttir ('53)
Jakobína Hjörvarsdóttir ('78)

Rauð spjöld: