SKÝRSLAN: Valur úr leik eftir tap gegn nýliðunum
Hvað réði úrslitum?
Vel spilandi Grindarvíkur/Njarðvíkur lið átti sigurinn skilið. Þær náðu oft að leysa pressu Valsara og komu kantmönnum sínum í vænlegar stöður. Gæði Ásu Bjargar og Sophiu Romine voru þá mikil og þær skoruðu mörk liðsins.
Bestu leikmenn
1. Ása Björg Einarsdóttir
Ása var stórhættuleg á hægri kanti liðsins og skoraði tvö mörk í seinni hálfleik. Hún keyrði upp og niður vænginn. Hraðinn og krafturinn sem hún býr yfir er gífurlegur. Gæðin í mörkunum voru mikil og þá sérstaklega því fyrra sem rataði í samskeytin.
2. Natasha Anesi
Natasha var afskaplega yfirveguð í öllum sínum aðgerðum. Hún náði að bjarga Grindavík/Njarðvík fyrir horn í nokkur skipti. Þegar hún fór útaf á 75. mínútu fengu Grindavík/Njarðvík tvö mörk á sig sem endurspeglar mikilvægi hennar í liðinu.
Atvikið
Atvik leiksins var annað mark leiksins. Ása Björg keyrði inn í vítateig Valsara. Hún átti síðan skot í hæsta gæðaflokki sem fór beint í samskeytin. Markið var afskaplega mikilvægt en Valur var búið að ógna í byrjun seinni hálfleiks og því gott að tvöfalda forskotið.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða að Grindavík/Njarðvík er á leiðinni í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins. Bikarævintýri þeirra lifir enn á meðan Valur er úr leik.
Vondur dagur
Esther Júlía Gustavsdóttir átti slæman dag. Í þriðja marki Grindavíkur/Njarðvíkur hljóp hún út úr marki sínu. Hún fór í hörku tæklingu en Ása Björg náði fyrr til boltans. Svo fór að Esther tæklaði eigin liðsfélaga, Helgu Rut. Helga meiddist í kjölfarið og var borin útaf á börum.
Dómarinn - 4
Það var voðalega lítið í vítinu sem Bríet dæmir. Mér sýnist Ágústa einfaldlega renna. Sem betur fer fyrir Bríeti þá skipti dómurinn ekki máli. Annars var leikurinn þokkalega dæmdur.


