Fotbolti.net
@fotboltinetArngrímur Alex Ísberg Birgisson
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Fram
Fram
Mjólkurbikar kvenna
Lambhagavöllurinn
3 - 0
ÍA
ÍA
Alda Ólafsdóttir 24'1 - 0Sara Svanhildur Jóhannsdóttir 49'2 - 0Una Rós Unnarsdóttir 57'3 - 0
Dómari: Óliver Thanh Tung Vú

SKÝRSLAN: Loksins nær Fram að skora

Hvað réði úrslitum?

Fram var betri en þær voru samt í erfiðleikum að nýta færin sín. ÍA fékk ekki mikið af almennilegum færum. Þær fengu eitt dauðafæri í stöðunni 0-0 og rétt fyrir fyrsta mark Framara. Spurning hvernig leikurinn hefði farið ef ÍA hefði skorað þarna.

Bestu leikmenn

1. Katrín S. Vilhjálmsdóttir

Mikill kraftur og orka, hún var líka alltaf hættuleg í dag. ÍA átti erfitt með hana þegar hún keyrði á vörn ÍA.

2. Una Rós Unnarsdóttir

Mjög góð innkoma af bekknum með mark og stoðsendingu.

Atvikið

Erfitt að velja eitt atvik en kannski er atvikið þegar Una Rós kemur af bekknum og kemur með mark og stoðsendingu.

Hvað þýða úrslitin?

Fram er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins en ÍA fer heim og dottin úr keppni.

Vondur dagur

Michaela Easter átti ekki góðan dag. Þegar þú færð mark beint úr hornspyrnu þá áttu automatic vondan dag. Hefði átt að gera betur líka í seinna markinu en gat lítið gert í fyrsta markinu.

Dómarinn - 5

Hefði viljað sjá fleir spjöld í dag, þetta var skrýtin lína. Var spjaldaglaður eftir 70 min en ekki fyrir það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.