Leik lokið!
0:4 sigur Gróttu niðurstaðan.
Grótta vinna stórsigur á Vestra.
Titilvörn Vestra er lokið.
Skýrsla og Viðtöl væntanleg seinna í dag.
91. mín
Aukaspyrna hjá Vestra sem Konstantin sendir fyrir, Albert Ingi kemst í boltann og skallar yfir.
90. mín
Vestri fá hornspyrnu sem Grótta ná að hreinsa eftir smá klafs.
88. mín
Færi!
Birkir finnur Elmar í góðri stöðu á fjær, Elmar kemur með einhverskonar skot/sendingu sem enginn komst í.
87. mín
InnKristján Tómas Björnsson
ÚtKristófer Dan Þórðarson
87. mín
InnEinar Tómas Sveinbjarnarson
ÚtMattías Kjeld
86. mín
Marínó Steinar með fyrirgjöf sem Tristan skallar í horn.
Ekkert kom úr henni
84. mín
Gult spjald
Mattías Kjeld
Fær gult fyrir tuð í kjölfarið.84. mín
Dauðafæri!
Mattías dettur í gegn og er komin einn á móti Benedikt en hann rennur sýnist mér og missir boltann.
81. mín
InnJónatan Ari Bragason
ÚtHalldór Hilmir Thorsteinson
81. mín
InnAlbert Ingi Jóhannsson
ÚtJacob Stensson
81. mín
InnMarinó Steinar Hagbarðsson
ÚtÞórður Gunnar Hafþórsson
80. mín
Grótta fara upp og Andri komst í góða stöðu sem hann nýtti illa.
79. mín
Breki gerir vel að vinna upp kantinn og kemur með sendingu fyrir en það er enginn Vestramaður þar.
77. mín
Konstantin liggur eftir að hafa fengið skalla frá Elmari Frey í hausinn.
Hann er staðin upp og þarf að vera útaf í eina mínútu.
74. mín
Hættulegt!
Góð sókn hjá Vestramönnum sem endar á fyrirgjöf á Birki Eydal sem tekur við boltanum á vítateigs horninu, kemur með flott skot sem Guðmundur ver vel.
72. mín
InnElmar Freyr Hauksson
ÚtBjörgvin Brimi Andrésson
Björgvin mjög flottur hér í dag.
68. mín
Vestramenn aðeins farnir að láta finna fyrir sér. Þeir eru að komast að teig Gróttu, en þegar þeir komast þangað vantar gæði til að klára sóknirnar.
66. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir Vestramenn.
Breki tekur þetta og skýtur framhjá.
65. mín
Sláinn!
Breki í góðu færi og kemur skoti á markið sem hafnar slánni.
64. mín
InnElmar Atli Garðarsson
ÚtPétur Bjarnason
Fyrirliðinn kemur inná á gulu.
64. mín
InnGuðmundur Páll Einarsson
ÚtGunnar Jónas Hauksson
60. mín
Flott sókn hjá Gróttu sem endar á sendingu fyrir frá Tristan sem Benedikt gerir vel og handsamar.
57. mín
Klaufalegt brot.
Gunnar Jónas Hauksson
Gunnar brýtur af sér út á vinstri kantinum og fær verðskuldað gult spjald.55. mín
Vestri fá horn.
Grótta hreinsa og boltinn berst á Mattías sem brunar upp, hann sendir á Björgvin sem er hundeltur af Fall sem kemst fyrir skotið hans.
53. mín
Gróttumenn eru aðeins á undan Vestramönnum hér í byrjun seinni hálfleiksins. Koma mun betur út úr hálfleiknum.
46. mín
Badu, þjálfari Vestra, fékk rautt í hálfleik.
Daniel Osafo-Badu
Líklega fyrir mikil ólæti inni í húsi.46. mín
InnIbrahima Balde
ÚtGabríel Heiðberg Kristjánsson
Skipting hjá Vestra í hálfleik.
46. mín
Seinnihálfleikur farin af stað.
45. mín
Órtúlegur fyrrihálfleikur
Grótta leiða 0:4 eftir 45 mínútur, Frábærir hér í fyrrihálfleik.
Allt önnur saga hinum megin á vellinum þar sem Vestramenn eru í miklu basli.
Sjáum hvað gerist í seinni og tökum okkur 15 mínútur.
43. mín
Þvílíkt mark
Tristan Freyr Ingólfsson
Tristan fær boltann fyrir utan teig Vestra, Hann hitti hann vel og neglir honum í fjærhornið. Vestramenn steinliggja hér á heimavelli.40. mín
Grótta að ganga frá þeim
Tristan Freyr Ingólfsson
Aukaspyrnan er tekin hægramegin við teiginn, Tristan er klókur og setur hann undir Birki í veggnum, Benedikt var of lengi að átta sig og boltinn lekur í markið. Vel gert hjá Tristani.40. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað fyrir Gróttu
Birkir brýtur af sér rétt fyrir utan teig. Jóhann dæmir við litla hrifningu Vestra.
39. mín
Gult spjald
Pétur Bjarnason
Pirringsbrot í pressuni.38. mín
Færi
Þórður Gunnar með bolta fyrir sem Gunnar Jónas skallar á markið en skallinn er laflaus og Guðmundur í marki Gróttu handsamar boltann.
36. mín
Gult spjald
Elmar Atli Garðarsson
Bekkurinn hjá Vestra brjálaður. Þeir vildu fá hendi á Grím þegar hann vann boltann en fengu ekkert. Elmar fór aðeins of langt í tuðinu og fékk gult.35. mín
Bikarmeistaranir 0:2 undir eftir 35 mínútur.
Björgvin Brimi Andrésson (stoðsending: Grímur Ingi Jakobsson )
Grímur vinnur boltann á miðjum vallarhelming Vestra og spólar upp kantinn, kemur með góða sendingu fyrir á Björgvin sem er aleinn á fjær sem klárar vel.33. mín
Dauðfæri hjá Gróttu.
Grótta vinna boltann eftir hornið hjá Vestra, Björvin brunar upp og sendir á Mattías í gegn, hann með skot sem Benedikt ver og fær hann svo aftur og Benedikt ver aftur meistaralega.
32. mín
Góð skyndisókn hjá Vestra sem endar í hornspyrnu.
28. mín
Liðin skiptast á að sækja þessa stundina. Mikið um frekar langar sóknir á báða bóga.
20. mín
Jóhann Ingi dæmir mark af Vestra
Konstantin með frábæra sendingu í gegn á Þórð sem sleppur í gegn og klárar vel í hægra hornið.
Jóhann dæmir sýnist mér hendi vel eftir markið, lið Vestra var byrjað að fagna þessu og eru ekki sáttir.
17. mín
MAAAARK!
Grímur Ingi Jakobsson
Benedikt var í þessari spyrnu en hún var föst í vinstra hornið. 1:0 Grótta.17. mín
Víti
Grótta fá víti, brotið á Andra í teig Vestramanna.
Rétt fyrir brotið var Grótta í dauðafæri.
15. mín
Kristófer með skot fyrir utan teig sem er auðvelt fyrir Benedikt.
14. mín
Gult spjald
Breki Þór Hermannsson
Seinn í tæklingu og tekur Caden niður.12. mín
Hættulegt
Konstantin með slaka sendingu í uppspili Vestra sem Kristórfer komst inn í. Hann tekur skotið en Birkir kemst fyrir það og boltinn í horn.
Ekkert kom úr hornspyrnunni.
10. mín
Fyrsta alvöru sókn Gróttu endar á fyrirgjöf frá Björgvin sem Benedikt handsamar.
7. mín
Klaufalegt!
Guðmundur Rafn Ingason
Mjög lélegt úthlaup hjá Guðmundi. Tók Þórð niður á vinstri kantinum. Vestri fær aukaspyrnu sem Dagur hreinsaði frá.4. mín
Hættuleg fyrigjöf frá Þórði sem Grótta hreinsa í horn.
Eftir smá klafs fer boltinn í aðra hornspyrnu sem ekkert kom úr.
2. mín
Fall með fyrirgjöf fyrir sem fer í hendina á Gróttumanni.
Aukaspyrna á góðum stað fyrir Vestramenn.
Grótta hreinsa.
1. mín
Breki Þór sparkar okkur í gang
Fyrir leik
Liðin ganga hér inn á Kerecis-völlinn.
Fyrir leik
Óbreytt hjá Gróttu
Rúnar Páll stillir upp sama liði og vann Ægi 1:0 á síðustu helgi í Þorlákshöfn.
Það eru tvær breytingar á hóp Gróttu Kristján Tómas Björnsson og Patrik Orri Pétusson koma inn og Alexander Emil Stefánsson og Emil Skúli Einarson fara út.
Fyrir leik
Sex breytingar hjá Vestra
Daniel Badu þjálfari Vestra gerir sex breytingar í sínu liði í dag eftir sigurinn á HK í síðasta leik.
Inn í liðið koma þeir Benedikt Jóhann Snædal, Gabeíel Heiðberg Kristjánsson, Pétur Bjarnason, Þórður Gunnar Hafþórsson, Birkir Eydal og Sergine Fall.
Albin Mörfelt, Thibang Sindile Theophilius (Cafú) og Jóhannes Selvén eru allir utan hóps.
Fyrir leik
Dómarinn
Dómari leiksins í dag er Jóhann Ingi Jónsson.
Honum til aðstoðar eru þeir Guðni Freyr Ingvason og Þráinn Jón Elmarsson.

Fyrir leik
Grótta
Grótta byrjuðu þetta bikarmót með 2:0 sigri á Þrótti Vogum. Unnu síðan Úlfana 2:1 áður en þeir tóku á móti Álftanesingum í 32-liða úrslitum og unnu 1:0 með marki frá Tristani Frey Ingólfsyni.
Í dag mæta Gróttumenn vestur á Ísafjörð og mæta þar ríkjandi bikarmeisturum Vestra í Lengjudeildarslag.
Grótta er situr í 10.sæti Lengjudeildarinnar með þrjú stig eftir þrjá leiki, með einn sigur og tvö töp.

Fyrir leik
Ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar
Eins og frægt er þá eru Vestri ríkjandi Mjólkurbikarmeistarar eftir sigur á Val í bikarúrslitum í Ágúst í fyrra. Síðan þá hefur mikið gengið á fyrir vestan. Davíð Smári Lamude fór frá félaginu, liðið féll úr Bestu deildinni og miklar leikmannabreytingar voru á liðinu í vetur. Til þess má geta að aðeins einn leikmaður í byrjunarliði Vestra í dag byrjaði bikarúrslitaleikinn, það er hann Gunnar Jónas Hauksson.
Vestramenn tóku á móti Leikni R í 32-liða úrslitum og báru þar sigur úr bítum 1:0 með marki Imran Mehanovic.
Vestri sitja í 7.sæti í Lengjudeildinni með 4 stig, einn sigur, eitt jafntefli og eitt tap.

Fyrir leik
Bikardagur á Uppstigningardegi
16-liða úrslitum lýkur með þremur leikjum:
14:00 KA-Ægir (Greifavöllurinn)
14:00 Vestri-Grótta (Kerecisvöllurinn)
15:00 Fylkir-FH (tekk VÖLLURINN)
Sjáðu mörkin og úrslitin úr leikjum gærdagsins:
14.05.2026 00:10
Hvenær verður dregið?
Það verður dregið í 8-liða úrslit í beinni útsendingu í samantektarþættinum á RÚV2 en hann fer í loftið eftir leik Fylkis og FH. Áætlað er að hann hefjist 16:55.
Sjáðu öll bikarmörkin: Stjarnan stöðvaði sigurgöngu KR
14.05.2026 08:00
Mætir fyrrum liðsfélögum í dag - „Var ekkert að leitast eftir því að fara frá Gróttu"




