Í dag, klukkan 14:00, tekur Vestri á móti Gróttu í Lengjudeildarslag í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars karla. Leikurinn fer fram á Kerecisvellinum á Ísafirði.
Marvin Darri Steinarsson er leikmaður Vestra, þekkir vel til félagsins og sneri aftur vestur í vetur eftir að hafa leikið með Gróttu í fyrra. Fótbolti.net ræddi við Marvin fyrir leikinn.
Marvin Darri Steinarsson er leikmaður Vestra, þekkir vel til félagsins og sneri aftur vestur í vetur eftir að hafa leikið með Gróttu í fyrra. Fótbolti.net ræddi við Marvin fyrir leikinn.
„Ég er mjög spenntur að mæta Gróttu, alltaf gaman að mæta sinum gömlu félögum, ég tengdi vel við strákana í liðinu þannig verður gaman að hitta þá aftur," segir Marvin.
„Ég býst bara við spennandi leik, bæði lið að koma í leikinn eftir sigurleik í deildinni þannig þetta verður ekkert auðvelt."
Breyttar aðstæður
Vestri lagði HK um helgina og Grótta sigraði Ægi. Marvin var næst spurður út í félagaskiptin í vetur.
„Ég var ekkert að leitast eftir því að fara frá Gróttu en svo breyttust smá aðstæður hjá mér og þegar ég sá tækifæri fyrir vestan var engin spurning um að ég vildi fara aftur þangað."
„Mér leið ótrúlega vel fyrir vestan þau tímabil sem ég var þar, þekki strákana og þjálfarann mjög vel þannig það var auðvelt að fara aftur vestur. Evrópa er auðvitað factor líka," segir Marvin.
Vilja vera í pottinum í næsta drætti
Hann er 25 ára markvörður sem var hjá Vestra frá 2022-24. Eins og hann bendir á þá er Vestri á leið í Evrópuleiki í sumar eftir að hafa unnið Mjólkurbikarinn í fyrra. Hvað þarf Vestri að gera til að ná í sigur og er mikil áhersla á bikarnum hjá Vestra?
„Við þurfum að vera klárir í alvöru baráttu Það er mikið undir, bæði lið vilja eðlilega vera í pottinum þegar það verður dregið í 8-liða úrslit. Við þurfum að nýta okkur það að vera á Kerecisvellinum og sýna að ekkert lið kemur vestur til að vinna, því auðvitað ætlum við okkur að verja titilinn."
Margt gott í leik liðsins
Vestri er með fjögur stig eftir þrjá leiki í Lengjudeildinni. Hvernig metur Marvin byrjunina?
„Tímabilið hefur farið ágætlega af stað hjá okkur. Værum eðlilega til í að vera með fleiri stig en það er margt gott í okkar leik og auðvitað fullt sem hægt er að bæta. Við þurfum bara að halda áfram og ég hef fulla trú á að við getum náð okkar markmiðum í sumar."
Verða erfiðir við að eiga í allt sumar
En hvernig sér byrjun Gróttu, sem er með þrjú stig, við Marvini?
„Mér finnst Gróttuliðið búið að byrja fínt, náðu mjög sterkum útisigri í síðustu umferð. Þeir eiga líka nokkra menn inni þannig þeir verða erfiðir að spila við í allt sumar," segir markvörðurinn að lokum.


