Fotbolti.net
@fotboltinetHelgi Inguson
Valur
Valur
Mjólkurbikar kvenna
N1-völlurinn Hlíðarenda
2 - 3
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/​Njarðvík
0 - 119' Sophia Faith Romine0 - 251' Ása Björg EinarsdóttirMálfríður Anna Eiríksdóttir 76'1 - 21 - 386' Ása Björg EinarsdóttirÁgústa María Valtýsdóttir (víti) 90'2 - 3
Dómari: Bríet Bragadóttir
Leik lokið!
Frábærum leik lokið. Viðtöl og skýrsla á leiðinni.
99. mín
Síðasti séns, Valur fær horn. Esther mætt inn á teig
97. mín
Ása Björg slopin ein í gegn. Þarna hefði Esther átt að mæta en þorir því ekki eftir síðasta mark Ásu
94. mín
9 mínútur í uppbótartíma
Valur
93. mín
Gult spjald

Arnfríður Auður Arnarsdóttir

Grindavík/Njarðvík
93. mín
InnKatrín Lilja Ármannsdóttir
ÚtLily Anna Farkas
Valur
90. mín
Valskonur fljótar að minnka muninn

Ágústa María Valtýsdóttir

Ágústa toguð niður í teig og tekur vítið sjálf. Lauren í vitlaust horn.
Valur
88. mín
InnGlódís María Gunnarsdóttir
ÚtHelga Rut Einarsdóttir
Helga Rut útaf á börum
Eftir samstuði hennar við Esther
Grindavík/Njarðvík
86. mín
Þetta var stórfurðulegt

Ása Björg Einarsdóttir (stoðsending: Rakel Sigurðardóttir)

Rakel með sendingu fram á Ásu Björg. Hún er í kapphlaupi við Helgu Rut. Esther Júlía rýkur hins vegar út úr markinu. Esther reynir að tækla boltann en Ása Björg er á undan henni til hans. Svo fer að Esther tæklir Helgu og Ása sleppur ein í gegn
83. mín
Sigríður Emma þarf að fá aðhlynningu
82. mín
Valskonur liggja á Grindavík/Njarðvík
Valur
81. mín
InnÁgústa María Valtýsdóttir
ÚtSóley Edda Ingadóttir
Valur
76. mín
Valskonur svara fyrir sig

Málfríður Anna Eiríksdóttir (stoðsending: Margrét Brynja Kristinsdóttir)

Margrét Brynja með frábæra hornspyrnu. Fyrirgjöf hennar ratar beint á Málfríði Önnu sem á góðan skalla framhjá Lauren
Grindavík/Njarðvík
75. mín
InnDanai Kaldaridou
ÚtRut Sigurðardóttir
Grindavík/Njarðvík
75. mín
InnJúlía Rán Bjarnadóttir
ÚtTinna Hrönn Einarsdóttir
Grindavík/Njarðvík
75. mín
InnLea Björt Kristjánsdóttir
ÚtNatasha Moraa Anasi
74. mín
Maci Nicole með hörkuskot langt fyrir utan teig. Esther ver boltann upp í slánna en nær svo að handsama hann
Grindavík/Njarðvík
71. mín
Gult spjald

Rut Sigurðardóttir

70. mín
Rakel hefði getað klárað þetta
Aftur er Ása Björg að gera sig gildandi á hægri kantinum. Með fyrirgjöf út í teiginn. Þar er Rakel en skot hennar fer yfir markið
Valur
65. mín
InnÁsa Kristín Tryggvadóttir
ÚtKolbrá Una Kristinsdóttir
Grindavík/Njarðvík
65. mín
InnRakel Sigurðardóttir
ÚtSophia Faith Romine
62. mín
Margrét Brynja kominn í teig. Á skot sem varnarmenn Grindavík/Njarðvík ná að verja. Boltinn hrekkur aftur til hennar en hún er umkringd varnarmönnum og nær ekki skoti á mark
58. mín
Leikurinn stöðvaður, Helga Rut fékk höfuðhögg en harkar það af sér
57. mín
Asa Björg ógnar
Ása Björg með þversendingu á Lily en Helga Rut kemur sér fyrir skot hennar. Þarna skall hurð nærri hælum
54. mín
Fram og til baka
Grindavík/Njarðvík næstum því búið að klára leikinn en skot Ásu Bjargar fer framhjá. Síðan er vandræðagangur í vörn Grindavík/Njarðvík í næstu sókn. Sonja á frábært skot en Lauren Kellet nær einhvern veginn að bjarga í horn
Grindavík/Njarðvík
51. mín
Mark í hæsta gæðaflokki

Ása Björg Einarsdóttir (stoðsending: Hildur Katrín Snorradóttir)

Hildur Katrín fær boltann á miðjunni og kemur honum á Ásu Björg á hægri kantinum. Hún keyrir og á síðan frábært skot í samskeytin með hægri fæti
50. mín
Maci Nicole á skot fyrir utan teig eftir hornspyrnu
47. mín
Valur byrjar vel og fá strax hornspyrnu en ekkert verður úr henni
Valur
46. mín
InnHrafnhildur Salka Pálmadóttir
ÚtLillý Rut Hlynsdóttir
Valur gerir tvöfalda breytingu í hálfleik
Valur
46. mín
InnSonja Björg Sigurðardóttir
ÚtÍsabella Sara Tryggvadóttir
Valur gerir tvöfalda breytingu í hálfleik
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Heimamenn byrja
45. mín
Tökum okkur 15
45. mín
Tvær mínútur í uppbót
41. mín
Ísabella Sara kemur aftur inn á eftir mínútu pásu
38. mín
Hildur Katrín stígur óvart á Ísabellu Söru sem liggur eftir og þarf aðhlynningu. Hildur að horfa á boltann og þetta var algjört óviljaverk
36. mín
Margrét Brynja fær stungusendingu frá Ísabellu Söru en Lauren gerir vel í markinu og nær að hreinsa boltanum áður en Margrét nær til boltans
34. mín
HÆTTA
Aftur er Lauren í vandræðum í uppspilinu. Hún sendir boltann á Margréti Brynju sem á skot inn í vítateig. Sem betur fer fyrir Lauren er Natasha mætt til að bjarga henni og nær að verja skot Margrétar
32. mín
Valur að ógna
Kimberley gerir vel og kemur boltanum á Arnfríði sem á hættulegt skot fyrir utan teig sem fer rétt yfir markið.
29. mín
Grindavík/Njarðvík að halda vel í boltann
25. mín
Sophie heldur áfram að ógna, keyrir alltaf á Bryndísi þegar hún fær tækifærið
Grindavík/Njarðvík
19. mín
Þvílíkt mark!!!

Sophia Faith Romine (stoðsending: Lily Anna Farkas)

Sophia Romine búin að vera hættuleg. Fær boltann á vinstri kantinum við miðlínu og keyrir á vörn Valsara. Hún cuttar inn og á gott skot fyrir utan teig í nærhornið
15. mín
Grindavík/Njarðvík farið að leysa úr pressunni og leikurinn að spilast á vallarhelmingi Valsara
10. mín
Grindavík/Njarðvík fær fyrstu hornspyrnu leiksins
Loksins komast þær á vallarhelming Valsara og uppskera hornspyrnu, Natasha skallar hann yfir
8. mín
Valur byrjar betur
Ísabella Sara með fínt skot fyrir utan teig eftir að Valur vann boltann hátt upp á velli
4. mín
Pressa Valsara byrjar vel, Gri/Nja í vandræðum með að spila út frá marki
1. mín
Tinna Hrönn sparkar þessu í gang
Fyrir leik
Byrjunarliðin
Matthías Guðmundsson gerir tvær breytingar á Valsliðinu. Lillý Rutkemur í stað Hrafnhildar Sölku. Esther Júlía verður í rammanum en Tinna Brá mun sitja á bekknum í dag. Valur 12. Esther Júlía Gustavsdóttir (m) 3. Sóley Edda Ingadóttir 4. Helga Rut Einarsdóttir 5. Bryndís Eiríksdóttir 6. Kimberley Dóra Hjálmarsdóttir 7. Ísabella Sara Tryggvadóttir 8. Arnfríður Auður Arnarsdóttir 16. Margrét Brynja Kristinsdóttir 18. Málfríður Anna Eiríksdóttir (f) 21. Lillý Rut Hlynsdóttir 28. Kolbrá Una Kristinsdóttir Gylfi Tryggvason gerir líka markmannsbreytingu, Lauren Kellet kemur í stað Genevieve Jae Chrenshaw. Fyrirliðinn Sigríður Emma snýr aftur ásamt Hildi Katrínu og Rut Sigurðardóttur. Hannah McLaughlin er ekki í hóp og Rakel Sigurðardóttir og Danai Kaldaridou fara á bekkinn. Grindavík/Njarðvík 1. Lauren Kellett (m) 5. Natasha Anasi 6. Rut Sigurðardóttir 9. Lily Anna Farkas 15. Tinna Hrönn Einarsdóttir 17. Sophia Faith Romine 18. Ása Björg Einarsdóttir 22. Sigríður Emma F. Jónsdóttir (f) 26. Maci Nicole Teater 27. Hildur Katrín Snorradóttir 28. Emma Nicole Phillips
Fyrir leik
Bikarveisla um helgina
Þetta er fyrsti leikurinn í 16. liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Allir leikirnir verða um helgina Í dag 17:00 Valur-Grindavík/Njarðvík (N1-völlurinn Hlíðarenda) 18:00 Þór/KA-Stjarnan (VÍS völlurinn) 18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn) 18:00 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn) 18:00 Selfoss-FH (JÁVERK-völlurinn) Á morgun 13:00 Tindastóll-ÍBV (Sauðárkróksvöllur) 13:00 Fylkir-FHL (tekk VÖLLURINN) 15:00 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)
Fyrir leik
Valur
Valur situr í 8. sæti Bestu deildar kvenna með 3 stig eftir fjórar umferðir. Eini sigurleikur liðsins var einmitt gegn Grindavík/Njarðvík í fyrstu umferð. Besta frammistaða liðsins var hins vegar í síðasta leik. Liðið lék gegn Breiðabliki á útivelli og þurfti að leika manni færri meginþorra leiksins. Kornungt lið Vals leiddi 2-1 eftir 90 mínútur. Blikar skorðuð hins vegar tvö mörk í uppbótartíma og grátlegt tap niðurstaðan
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Grindavík/Njarðvík
Grindavík/Njarðvík eru nýliðar í Bestu deild kvenna. Liðið hefur komið skemmtilega á óvart og er í 5. sæti deildarinnar með 6 stig. Síðasti leikur liðsins var gegn Þrótti á útivelli. Grindavík/Njarðvík gerði sér lítið fyrir og vann þann leik, 2-1. Bakvörðurinn Rakel Sigurðardóttir skoraði mark og lagði upp annað í leiknum. Hún var kjölfarið valin besti leikmaður 4. umferðar fyrir þá glæstu frammistöðu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Valur hafði betur síðast
Liðin mættust í fyrstu umferð Bestu deildarinnar fyrir þremur vikum. Þar sigruðu Valskonur 2-1. Það má segja að sigurinn hafi verið ósanngjarn en öll tölfræði bendi til þess að Grindavík/Njarðvík hafi verið betra liðið á vellinum. Arnar Páll Garðarson sagði að Grindavík/Njarðvík væri einfaldlega með betra lið en Valur í Uppbótartímanum þegar rætt var um leikinn.
Fyrir leik
Hrafnhildur Salka ekki í banni í dag
Hrafnhildur Salka fékk að líta rautt spjald í 3-2 tapi gegn Breiðabliki í 4. umferð Bestu deildarinnar. Valsarinn togaði í hár Barbáru Sólar og hefur verið úrskurðuð í tveggja leikja bann. Bikarkeppnin er hins vegar önnur keppni og því má hún leika í dag.
Fyrir leik
Dómarateymið í dag
Bríet Bragadóttir verður á flautunni í dag. Aðstoðardómarar hennar verða Jovan Subic og Rögnvaldur Höskuldsson. Fjórði dómari er Kári Mímisson og eftirlitsmaður Ólafur Ingi Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Velkomin á Hlíðarenda
Komið heil og sæl, kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu frá N1-vellinum á Hlíðarenda. Hér munu Valur og Grindavík/Njarðvík etja í fyrsta leik 16. liða úrslita í Mjólkurbikar kvenna.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.