Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetTryggvi Guðmundsson
Besta karla
Hásteinsvöllur
Nokkuð hvasst en þurrt.
ÍBV
ÍBV
0 - 2
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 151' Óskar Borgþórsson0 - 256' Gylfi Þór Sigurðsson
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Víkingar sigldu sigrinum heim

Hvað réði úrslitum?

Frekar lokaður leikur og þá sérstaklega í fyrri hálfleik. Eyjamenn spiluðu mjög agaðan og skipulagðan varnarleik og áttu Víkingar í erfiðleikum með að finna opnanir. Víkingar sýndu meiri gæði í leik sínum í síðari hálfleik, sérstaklega sóknarlega. Auðvitað verð ég að minnast á bæði mörk leiksins þar sem mér fannst Ari eiga að gera betur. Í fyrra markinu finnst mér Ari eiga að verja frekar lausan skalla Óskars Borgþórssonar og í seinna markinu hittir hann boltann illa og boltinn beint til Gylfa Þórs sem klárar fagmannalega.

Bestu leikmenn

1. Óskar Borgþórsson

Óskar var sprækur á kantinum og bjó til færi fyrir samherja sína nokkrum sinnum. Skoraði svo fyrsta mark leiksins.

2. Gylfi Þór Sigurðsson

Er auðvitað eins og allir vita mótorinn á miðjunni hjá Víkingum. Skoraði fallegt mark í fyrri hálfleik sem var dæmt af vegna brots og átti annað skot í slá. Gerir svo stórkostlegt mark í síðari hálfleik og loka leiknum fyrir Víkinga.

Atvikið

Þegar Ari hittir boltann illa og beint í lappirnar á Gylfa Þór sem klárar með mjög góðu skoti fyrir aftan miðju.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingur heldur áfram að berjast við KR-inga um efsta sætið og heldur þeim við efnið. Eru komnir með 19 stig og eru á toppnum eins og er, KR á leik til góða. ÍBV hefur ekki enn unnið leik eftir sjö umferðir og situr því á botni deildarinnar með eitt stig.

Vondur dagur

Ari i Haraldstovu, markvörður ÍBV, átti ekki sérstakan dag. Mér fannst hann eiga að verja fyrra markið, þar sem að fótavinna hans var afar hæg. Og svo auðvitað títtnefnt atvik þegar hann gefur á Gylfa Þór í öðru markinu.

Dómarinn - 8

Pétur lögga átta bara fínan dag. Einhverjir Vestmannaeyingar vildu fá vítaspyrnu í fyrri hálfleik þegar Sesar Örn fékk hönd leikmanns Víkinga í andlitið, en frá okkar sjónhorni úr blaðamannastúkunni þá virtist vera um algjört óviljaverk að ræða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.