Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þór
Þór
Besta karla
VÍS völlurinn
1 - 2
ÍA
ÍA
0 - 137' Viktor Jónsson0 - 249' Markús Páll EllertssonYann Emmanuel Affi 55'1 - 2
Dómari: Elías Ingi Árnason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Skeggjaðir Skagamenn sáttir

Hvað réði úrslitum?

Skagamenn hefðu hæglega getað verið með meiri forystu í hálfleik. Aron Birkir ver víti frá Viktori Jóns í stöðunni 2-1 og Þórsarar fengu góð tækifæri til að fá eitthvað út úr þessu en sóknarleikur liðsins ekki góður.

Bestu leikmenn

1. Markús Páll Ellertsson (ÍA)

Markús Páll er sjóðandi heitur þessa dagana. Hefur skorað í þremur leikjum í röð og er kominn með sex mörk í deildinni. Skoraði gott mark og fiskaði víti.

2. Viktor Jónsson (ÍA)

Kemur Skagamönnum á bragðið með góðu marki en klikkar hins vegar á víti sem Aron Birkir varði vel. Aron kemur alveg líka til greina hérna, átti góðar vörslur og kom í veg fyrir að tapið var ekki mun stærra.

Atvikið

Vítið hefði getað verið dýrkeypt fyrir Skagamenn. Ingimar Arnar Kristjánsson fékk gott færi til að jafna metin í blálokin en skallaði framhjá. Seinna mark Skagamanna þar sem Markús Páll kláraði færið vel gerði útslagið að lokum. Þjálfarateymi Skagamanna er mjög skeggjað en Lárus Orri sagði skemmtilega frá því í viðtali eftir leik að menn ætli ekki að raka sig fyrr en liðið fellur úr leik í bikarnum.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn komnir með átta stig og sitja í áttunda sæti. Þórsarar með sex stig í tíunda sæti.

Vondur dagur

Það er margt hægt að taka út úr þessu hjá Þórsurum. Sóknarleikurinn mikið bras. Affi skorar gott mark en fær á sig ansi klaufalegt víti.

Dómarinn - 7

Flottur leikur. Það voru einhver vítaköll en ég held að teymið hafi verið með allt á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.