Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Valur
Valur
Besta karla
N1-völlurinn Hlíðarenda
3 - 2
Breiðablik
Breiðablik
Adam Ægir Pálsson 17'1 - 01 - 155' Ágúst Orri Þorsteinsson1 - 280' Aron Bjarnason Ingimar Torbjörnsson Stöle 84'2 - 2Ívar Örn Árnason (sjm) 94'3 - 2
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson

SKÝRSLAN: Martraðaleikur Ívars Arnar

Hvað réði úrslitum?

Blikar komust í 2-1 frekar seint í leiknum en kasta leiknum mjög klaufalega frá sér. Mér fannst þeir aðeins of opnir í lokin og svolítið soft. Valsmenn keyrðu á þá í restina og náðu að lemja boltann tvisvar í markið.

Bestu leikmenn

1. Lúkas Logi Heimisson (Valur)

Lagði upp fyrstu tvö mörk Vals með frábærum sendingum og sérstaklega í fyrsta marki leiksins þegar hann kemur með fyrirgjöf á Adam Ægi. Frábær leikmaður sem átti stórleik í kvöld.

2. Aron Bjarnason (Breiðablik)

Þetta er coinflip milli hans og Ágústar Orra fyrir mig. Aron leggur upp eitt og skorar eitt, ekkert smá flott mark í lokin og góð stoðsending líka í marki Ágústar.

Atvikið

Klárlega flautumarkið undir restina. Blikar fá horn en Tryggvi Hrafn keyrir upp völlinn og nær í hornspyrnu fyrir Val sem skora úr henni. Það ætlaði allt um koll að keyra eftir það.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrsta tap Blika í deildinni er staðreynd en Valsmenn jafna þá á stigum og sitja í 5. sæti á markatölu, Blikar með ívið betri markatölu.

Vondur dagur

Ívar Örn skoraði sjálfsmarkið í blálokin sem réði úrslitum þessa leiks og leit ekki vel út í hinum mörkum Vals fannst mér. Ekki góður dagur hjá Ívari í kvöld.

Dómarinn - 6

Heilt yfir vel dæmdur leikur en það voru nokkur stór atvik í leiknum sem hefði verið hægt að dæma víti eins og þegar Jakob Franz fær augljóslega boltann í hendina í vítateig Vals í seinni hálfleik og fleiri atvik. Fyrir utan það var hann vel dæmdur leikurinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.