Leik lokið!
Víkingar komast áfram en þetta var torsóttur sigur. Keflvíkingar eiga mikið hrós skilið fyrir frammistöðu sína lengst af í leiknum.
Viðtöl og skýrsla koma síðar í kvöld.
118. mín
Víkingar klára þetta!
Helena Ósk Hálfdánardóttir (stoðsending: Jasmín Erla Ingadóttir)
Jasmín stelur boltanum og leggur hann á Helenu sem kemur á ferðinni og setur boltann í netið. Þetta er grátlegt fyrir Keflvíkinga sem voru svo nálægt því að jafna í sókninni á undan.117. mín
Sláin!
Boltinn fer í gegnum teiginn hjá Víkingum og svo kemur Brynja Arnarsdóttir á ferðinni og á þvílíkt skot sem endar í slánni! Boltinn fer svo í Arielu og fram hjá.
Þarna skall hurð nærri hælum hjá Víkingum.
113. mín
InnElfa Karen Magnúsdóttir
ÚtHilda Rún Hafsteinsdóttir
113. mín
InnMaría Rán Ágústsdóttir
ÚtEva Dís Sighvatsdóttir
110. mín
Færi!
Helena Ósk sendir Bergþóru Sól í gegn og hún á sendingu út í teiginn á Helenu sem kemur á ferðinni og á skot rétt fram hjá markinu.
106. mín
Seinni hálfleikur framlengingar er farinn af stað.
105. mín
InnBrynja Arnarsdóttir
ÚtAnita Lind Daníelsdóttir
105. mín
Fyrri hálfleik framlengingar er lokið. Það er ekki mikil orka í Keflvíkingum þessa stundina. Eiga leikmenn á bekknum og munu gera skiptingar núna.
102. mín
Freyja aftur komin í frábært færi en aftur sér Anna við henni. Vel gert hjá þessum efnilega markverði.
100. mín
Fyrsta markið er komið!
Jasmín Erla Ingadóttir
Víkingur fær hornspyrnu og boltinn fer af pakkanum inn í teignum og inn. Ég veit ekkert hver skoraði en ég giska á að það hafi verið Jasmín þar sem hún fagnaði þannig. Víkingar brjóta ísinn!99. mín
Þvílík varsla!
Freyja Stefánsdóttir er að sleppa í gegn og er komin í dauðafæri til að koma Víkingum yfir, en Anna kemur út á móti og ver frábærlega.
98. mín
Ariela vinnur boltann hátt á vellinum og á skot sem fer fram hjá markinu. Saga hennar í dag.
95. mín
InnBergþóra Sól Ásmundsdóttir
ÚtBirta Birgisdóttir
94. mín
Jasmín með tilraun á markið en Anna ekki í miklum vandræðum með þetta.
91. mín
Ekki hennar dagur fyrir framan markið!
Ariela Lewis í algjöru dauðafæri til að koma Keflavík yfir. Fær boltann alein á fjærstönginni, tekur við honum en setur hann langt fram hjá.
Hún hefur verið langhættulegasti leikmaður Keflavíkur en hefur gengið herfilega að klára færin sín.
91. mín
Framlengingin er hafin.
90. mín
Framlenging!
Víkingar verið meira með boltann en ekki skapað nein færi þannig séð. Anna í marki Keflavíkur hefur ekki haft mikið að gera. Keflavík hefur sótt í sig veðrið sóknarlega í seinni hálfleiknum en þær eru búnar að vera skipulagðar og flottar varnarlega allan leikinn.
90. mín
Keflavík skallar hornspyrnuna frá og það er heldur betur skyndisóknarfæri fyrir þær, en ekki nógu mikill kraftur.
90. mín
Víkingar með hættulegan bolta inn á teiginn sem Mia setur aftur fyrir í hornspyrnu.
90. mín
Ariela Lewis að skapa usla enn eina ferðina! Á fastan bolta sem Grace slær beint út í teiginn en Víkingar ná svo að koma sér fyrir skotið sem kemur á markið.
90. mín
InnRakel Inga Ágústsdóttir
ÚtAnita Bergrán Eyjólfsdóttir
89. mín
Gult spjald
Salóme Kristín Róbertsdóttir
Tosaði vel í Bergdísi.87. mín
Elísa Birta reynir skot en það fer yfir markið. Ekki sátt með sjálfa sig þarna.
86. mín
Bergdís!
Þarna hélt ég að Bergdís væri að skora! Kemur skoppandi bolti inn á teiginn og hún rekur hausinn í hann, en hann fer rétt fram hjá markinu.
85. mín
Fimm mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Fáum við mark í þetta?
81. mín
Það kemur ekkert út úr hornspyrnunni.
81. mín
Helena Ósk með skot sem fer af Anítu Lind og aftur fyrir. Hornspyrna sem gestirnir eiga.
80. mín
Keflvíkingar hafa ekki enn gert skiptingu. Spurning hvort það sé ekki komin alveg ágætlega mikil þreyta í þeirra lið.
79. mín
InnÍsfold Marý Sigtryggsdóttir
ÚtAnika Jóna Jónsdóttir
78. mín
Hættuleg sókn hjá Víkingum, finna Jasmín í gegn og hún reynir sendingu fyrir markið en Anna í marki Keflavíkur gerir mjög vel og handsamar boltann.
77. mín
Keflvíkingar fá horn! Gestirnir koma boltanum frá.
76. mín
Hættulegt!
Grace með slaka sendingu beint á Anitu Bergrán. Hún kemur boltanum á Arielu sem finnur Evu Dís og hún á gott skot sem Grace á í miklu basli með en nær að blaka yfir markið. Þetta var fín tilraun þar sem Grace er svo sannarlega ekki sú hávaxnasta.
75. mín
Á hinum enda vallarins eru Víkingar komnar í gott færi en flaggið fer á loft.
74. mín
Ariela með geggjaða hreyfingu og stórgóða sendingu inn á teiginn, en heimakonur ekki nógu agressívar í teignum og Víkingar ná að koma boltanum frá.
73. mín
InnFreyja Stefánsdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
72. mín
Anita Bergrán með skot sem fer beint í magann á Áslaugu Dóru. Hún fann alveg vel fyrir þessu.
66. mín
Úfff
Ariela með bolta inn á teiginn sem Grace á í vandræðum með, hún missir hann frá sér en Víkingar ná að bjarga sér fyrir horn.
65. mín
Áslaug Dóra með huggulegan bolta inn á teiginn en Jasmín nær ekki alveg að taka á móti honum.
63. mín
Á hinum enda vallarins er Ariela á harðaspretti og er bara komin í ágætt færi, en skot hennar hittir ekki á markið. Það er mikill kraftur í Arielu og hún er langhættulegasti leikmaður Keflavíkur, en það vantar aðeins upp á að klára færin hjá henni.
62. mín
Víkingar skora en markið er dæmt af vegna rangstöðu. Sá ekki alveg nægilega vel hvort að um réttan dóm hafi verið að ræða. Jasmín Erla fljót að koma sér í mixið.
59. mín
Jájá, Einar hristir upp í þessu. Þrír mjög fínir leikmenn komnir inn á.
58. mín
InnBergdís Sveinsdóttir
ÚtDagný Rún Pétursdóttir
58. mín
InnJasmín Erla Ingadóttir
ÚtCamilly Kristal Silva Da Rocha
58. mín
InnHelena Ósk Hálfdánardóttir
ÚtArna Ísold Stefánsdóttir
58. mín
Einar Guðna hlýtur að fara að hrista upp í þessu. Hann er með öfluga leikmenn á bekknum.
57. mín
Margrét Viktoría með bolta fyrir markið, en Grace nær að grípa hann og er fljót að koma honum aftur í leik.
56. mín
Ariela með skot rétt fyrir utan teig sem fer yfir markið. Keflvíkingar eru bara líklegri þessa stundina, meiri kraftur í þeim.
53. mín
Það kemur góður bolti inn á teiginn, en Víkingar ná að hreinsa frá.
52. mín
Nú fær Keflavík sitt fyrsta horn. Ná þær að gera eitthvað úr þessu?
50. mín
Það er að færast meira líf í þetta. Elísa Birta reynir að hlaupa Salóme Kristínu af sér, en það gengur ekkert. Salóme og Aníta Lind búnar að vera með sóknarmenn Víkinga í vasanum.
49. mín
Emma Steinsen að komast í fínt færi en Anna gerir vel í að koma út á móti og loka. Sókn Víkinga heldur áfram og boltinn kemur inn á teiginn þar sem Emma er aftur mætt, en hún setur boltann í hliðarnetið.
46. mín
Besta færi leiksins!
Ariela Lewis vinnur boltann af sofandi varnarmönnum Víkings og er komin í dauðafæri til að koma Keflvíkingum yfir en skot hennar fer vel fram hjá markinu. Þarna vantaði heldur betur upp á afgreiðsluna!
46. mín
Seinni hálfleikur er farinn af stað. Núna sækir Keflavík í átt að rennibrautinni í Vatnaveröld.
45. mín
Mjög tíðindalítið hér í Keflavík og staðan enn markalaus. Vonandi fáum við betri seinni hálfleik og einhver mörk.
45. mín
Ariela með góðan bolta út til vinstri á Anitu en hún er rangstæð. Víkingsliðið heppið.
43. mín
Víkingar með hættulegan bolta inn á teiginn sem Anna á í smá basli með, en hún grípur hann í annarri tilraun.
39. mín
Heimakonur reyna að þræða Arielu í gegn en Anika vel á tánum og er á undan í boltann.
37. mín
Elísa Birta fær boltann í kringum teiginn en kemst ekki fram hjá Keflavíkurmúrnum sem er búinn að myndast.
35. mín
Það eru komin mörk á öllum völlum í Mjólkurbikar kvenna í kvöld, nema hér...
31. mín
Víkingar eiga enn eina hornspyrnuna og þessi er sú besta til þessa. Áslaug Dóra kemst í boltann í teignum en nær ekki nægilega góðu skoti.
30. mín
Ariela Lewis gerir frábærlega. Fær boltann vinstra megin og sendir hann fyrir á Hildu Rún sem kemur á ferðinni, en hún hittir boltann ekki nægilega vel.
Líklega bara besta færi leiksins til þessa og það eru heimakonur sem eiga það!
30. mín
Aníta Lind kemur boltanum í burtu eftir hornið.
29. mín
Elísa Birta allt í einu komin í ágætis stöðu en Salóme Kristín verst mjög vel. Svo er einhver misskilningur á milli Önnu og Miu, og Víkingur fær hornspyrnu.
25. mín
Heimakonur væntanlega bara mjög sáttar með fyrri hálfleikinn til þessa þó þær séu ekki búnar að skapa neitt. Eru búnar að vera mjög vel skipulagðar og Víkingum gengur illa að búa til marktækifæri.
24. mín
Hættulegasta tækifæri Víkinga til þessa en það var samt sem áður ekki mjög gott tækifæri. Birta Birgis fær sendingu út í teiginn og reynir skot en það fer beint í varnarmann Keflavíkur.
21. mín
Keflavíkurliðið aðeins komið framar á völlinn og Víkingur vinnur boltann. Þær reyna að sækja hratt en sóknin ber engan árangur.
18. mín
Víkingar með aðra hornspyrnu og nú skapast smá darraðadans inn á teignum en Keflvíkingar ná að verjast vel. Svo er leikurinn stoppaður þar sem leikmaður Keflavíkur liggur í teignum.
15. mín
Birta Birgisdóttir með sendinguna inn á teiginn úr aukaspyrnunni en hún fer yfir allan pakkann og aftur fyrir markið.
15. mín
Víkingar taka hornspyrnuna stutt og svo kemur bolti fyrir sem Salóme Kristín skallar í burtu. Gestirnir fá svo stuttu síðar aukaspyrnu vinstra megin við vítateiginn. Núna kemur sending inn á teiginn...
14. mín
Fyrsta hornspyrna leiksins. Víkingur fær hana.
12. mín
Jóhanna Elín reynir sendingu í gegn frá vinstri en Anna í marki Keflavíkur er vel á verði og kemur út á móti boltanum.
10. mín
Jóhanna Elín með fyrirgjöf sem endar í hliðarnetinu. Vindurinn ekki að gera leikmönnum auðvelt fyrir.
8. mín
Víkingar eru að stjórna ferðinni en þetta er býsna rólegt enn sem komið er. Keflavík er að verjast þétt og ætla að halda skipulagi.
5. mín
Víkingur er að stilla svona upp
Elizabeth (m)
Emma - Áslaug Dóra - Anika Jóna - Kristín Erla
Birta - Arna Ísold
Camilly - Dagný Rún - Elísa Birta - Jóhanna Elín
3. mín
Keflavík er að stilla svona upp
Anna (m)
Alyssa - Mia - Salóme Kristín - Aníta Lind - Margrét Viktoría
Hilda Rún - Aldís Tinna - Anita Bergrán
Ariela - Eva Dís
1. mín
Þá förum við af stað! Víkingur byrjar með boltann og byrjar að sækja í átt að glæsilegu rennibrautinni í Vatnaveröld.
0. mín
Hreinn Magnússon er með flautuna í kvöld. Honum til aðstoðar eru Kristófer Bergmann og Daníel Örn Arnarson.
Þriðja liðið

0. mín
Keflavíkurnætur með Rúna Júll í fullum gangi þegar stutt er í leik. Klikkar ekki.
0. mín
Það er grátt yfir í Keflavík og búið að vera mikill vindur hér í Reykjanesbæ í allan dag. Það er svo sem ekkert nýtt. Völlurinn lítur bara þokkalega út hér frá fjölmiðlastúkunni.
0. mín
Áslaug Dóra er með bandið hjá Víkingi

0. mín
Bæði lið tefla fram byrjunarliðum með meðalaldur upp á 21 ár.
0. mín
Byrjunarlið Víkings
41. Elizabeth Grace McClellan (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir (f)
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
7. Dagný Rún Pétursdóttir
8. Birta Birgisdóttir
13. Camilly Kristal Silva Da Rocha
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir
18. Kristín Erla Ó Johnson
23. Elísa Birta Káradóttir
34. Anika Jóna Jónsdóttir
35. Arna Ísold Stefánsdóttir
Nokkrar breytingar hjá Víkingum frá síðasta deildarleik. Þar á meðal kemur Elísa Birta Káradóttir inn í byrjunarliðið en hún kom frá HK í vetur. Spennandi leikmaður þar á ferðinni.
0. mín
Byrjunarlið Keflavíkur
1. Anna Arnarsdóttir (m)
8. Anita Bergrán Eyjólfsdóttir
10. Mia Angelique Ramirez
11. Alyssa Yana Daily
14. Eva Dís Sighvatsdóttir
17. Margrét Viktoría Harðardóttir
18. Hilda Rún Hafsteinsdóttir
22. Salóme Kristín Róbertsdóttir
24. Anita Lind Daníelsdóttir (f)
27. Aldís Tinna Traustadóttir
34. Ariela Lewis
Margir efnilegir leikmenn í þessu liði en þar á meðal eru Eva Dís Sighvatsdóttir, 15 ára, og hin 14 ára gamla Margrét Viktoría Harðardóttir.
0. mín
Staðan á liðunum
Keflavík spilar í Lengjudeildinni, næst efstu deild, og hefur farið ágætlega af stað í sumar. Þær byrjuðu á 2-8 sigri gegn Tindastóli en fylgdu því svo eftir með 2-0 tapi gegn Haukum sem hafa unnið báða leiki sína. Auk þess hefur Keflavík unnið tvo leiki í Mjólkurbikarnum, gegn KR og KÞ.
Víkingur spilar í Bestu deildinni og eru þar með sex stig eftir tvo leiki. Þær unnu sigur gegn Fram í síðustu umferð og byrjuðu tímabilið á sigri gegn Stjörnunni. Þær hafa tapað gegn ÍBV og Breiðabliki.


0. mín
Mögnuð stund á Laugardalsvelli
Það er erfitt að gleyma því þegar Víkingur varð bikarmeistari fyrir þremur árum síðan eftir 2-1 sigur á Breiðabliki í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Víkingur var þá að spila í Lengjudeildinni en fór samt alla leið í bikarnum.




0. mín
Keflavík þurft að spila tvo leiki
Þetta er fyrsti leikur Víkinga í Mjólkurbikarnum þetta árið en þriðji leikurinn hjá Keflavík sem er á heimavelli í kvöld. Keflavík byrjaði á því að leggja KR að velli, 2-1. Svo unnu þær KÞ mjög þægilega 3-8 í Laugardalnum þar sem Ariela Lewis fór á kostum. Ariela var í kjölfarið valinn leikmaður umferðarinnar í Mjólkurbikar kvenna.
0. mín
0. mín
0. mín
Leikirnir í 16-liða úrslitunum
Í dag hefjast 16-liða úrslitin í Mjólkurbikar kvenna en þetta eru leikirnir á þessu stigi keppninnar:
föstudagur 15. maí
17:00 Valur-Grindavík/Njarðvík (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:00 Þór/KA-Stjarnan (VÍS völlurinn)
18:00 Keflavík-Víkingur R. (HS Orku völlurinn)
18:00 Fram-ÍA (Lambhagavöllurinn)
18:00 Selfoss-FH (JÁVERK-völlurinn)
laugardagur 16. maí
13:00 Tindastóll-ÍBV (Sauðárkróksvöllur)
13:00 Fylkir-FHL (tekk VÖLLURINN)
15:00 Þróttur R.-Breiðablik (AVIS völlurinn)
0. mín
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Víkings í 16-liða úrslitum Mjólkurbikars kvenna. Hér munum við fylgjast með gangi mála í leiknum.
Velkomin!





