Leik lokið!
93. mín
Færi!
Bjarki Hrafn við það að komast í dauðafæri en Ásgeir Orri gerir vel að koma út á móti og lokar. Kannski smá lykt af broti en Stjörnumenn voru ekki að kvarta mikið.


92. mín
Gult spjald
Sindri Þór Ingimarsson
Búinn að hanga í Ljubicic allan leikinn.91. mín
Stjarnan að ógna!
Bjarki Hauks með fínt skot en Ásgeir er vel staðsettur og nær að grípa.
91. mín
Daníel Finns með gott hlaup og reynir skot en það er slakt og Ásgeir á ekki í neinum vandræðum með að verja það.
90. mín
Þrjár mínútur í uppbótartíma
90. mín
Ásgeir Páll kominn í fína stöðu en reynir fyrirgjöf sem misheppnast algjörlega.
89. mín
Ásgeir Orri er staðinn upp og klár í að halda áfram.
88. mín
InnEdon Osmani
ÚtEiður Orri Ragnarsson
88. mín
Bjarki Hauks, hættulegasti maður Stjörnunnar, við það að komast í fínt færi en missir boltann of langt frá sér og Ásgeir Orri kemur út á móti. Bjarki fer svo í Ásgeir sem liggur eftir.
87. mín
Gestirnir dottnir í smá skotgrafir. Keflavík er að banka fast.
87. mín
,,Hvað ertu að gera?" heyrist úr stúkunni þegar Halid Alghoul reynir skot af löngu færi. Fer lengst yfir.
86. mín
Keflavík að banka!
Halid Alghoul svo með hættulegt skot sem fer rétt fram hjá markinu. Ásgeir Páll var ekki langt frá því að setja hausinn í boltann.
84. mín
HVERNIG?
Muhamed Alghoul með geggjaða sendingu inn fyrir á Ljubicic en Árni Snær sér við honum. Ljubicic á bara að vera búinn að klára þennan leik fyrir Keflavík.
Svo á Eiður Orri hættulega tilraun en boltinn fer fram hjá.
Svo á Eiður Orri hættulega tilraun en boltinn fer fram hjá.
82. mín
Núna stendur xG-bardaginn í 1,29 - 1,70, Stjörnunni í vil.


81. mín
InnBjarki Hrafn Garðarsson
ÚtAndri Rúnar Bjarnason
Leikmaður númer 3 upp á topp hjá Stjörnunni, eitthvað rangt við það.
80. mín
Hættulegt!
Bjarki Hauksson, sem hefur komið mjög vel inn í lið Stjörnunnar, með hættulega sendingu inn fyrir en Andri Rúnar nær ekki að komast í boltann. Munaði ekki miklu.
79. mín
Þá eru bræður saman inn á vellinum fyrir Keflavík, Muhamed og Halid Alghoul.


79. mín
InnAnton Kralj
ÚtAxel Ingi Jóhannesson
79. mín
InnHalid Alghoul
ÚtDagur Ingi Valsson
77. mín
Ekki dagurinn hans
Ásgeir Páll með góðan bolta inn á teiginn og þar nær Stefan Ljubicic auðvitað að koma sér í færi en Árni Snær nær að verja og grípa skalla hans.
Þetta hefur bara ekki verið dagurinn hans.
Þetta hefur bara ekki verið dagurinn hans.
75. mín
Keflvíkingar ná að verjast horninu en sókn Stjörnunnar heldur áfram. Sindri fær ágætis skallafæri en nær ekki miklum krafti í hann.
75. mín
Stjarnan við það að komast í mjög gott færi en þá er Breki Baxter mættur til að stoppa það. Gestirnir fá hornspyrnu.
74. mín
Eiður Orri reynir skot með vinstri en Sindri setur fótinn í það. Var hvort sem er ekki á leið á markið.
72. mín
InnÞorri Mar Þórisson
ÚtBirnir Snær Ingason
Birnir ekki búinn að vera mjög áberandi í dag, bara alls ekki.
72. mín
Hornspyrnan er slök og Stjörnumenn skalla frá.
71. mín
Ljubicic nær skalla á markið eftir hornspyrnuna en gestirnir eru fyrir. Keflavík fær svo aðra hornspyrnu.
71. mín
Það er meiri kraftur í Keflvíkingum þessa stundina og þeir eru líklegri. Fá hér hornspyrnu.
69. mín
Nacho Heras nær skallanum eftir hornspyrnuna en hann er kraftlítill og fer ekki á markið.
68. mín
Eiður Orri sækir hornspyrnu fyrir Keflvíkinga.
66. mín

Gult spjald
Þorlákur Breki Þ. Baxter
Breki Baxter fer í ansi groddaralega tæklingu og er bara heppinn. Fór hátt með fótinn. Jóhann Árni var ekki sáttur með hann.
64. mín
Ljubicic ósáttur við Gunnar Frey. Vildi fá aukaspyrnu þegar ýtt var í hann, ekkert dæmt. Stuttu síðar heldur Sindri vel í hann og þá er dæmt.
62. mín
Rétt fram hjá!
Dagur Ingi með fína skottilraun sem fer rétt fram hjá markinu. Mjög góð tilraun!
61. mín
Gestirnir eru með stjórnina þessa stundina og eru hættulegir.
60. mín
Færi!!
Stjörnumenn spila vel og Haukur Brink er kominn í frábært færi til að skora en nær ekki að koma skotinu á markið. Þarna átti hann bara að gera betur og Keflvíkingar heppnir.


59. mín
Bjarki Hauks með góðan bolta inn á teiginn en Haukur Brink rétt missir af honum.
58. mín
Alghoul aftur með góðan bolta inn á teiginn en Keflvíkingar ná ekki að koma skoti á markið. Hitta ekki boltann inn á teignum.
57. mín
Alghoul með aukaspyrnuna inn á teiginn og finnur Davíð Helga en skalli hans fer eiginlega bara upp í loft og er þægilegur fyrir Árna í markinu.
56. mín
Gult spjald
Jóhann Árni Gunnarsson
55. mín
Stjarnan að komast í ágætis upphlaup en Guðmundur Baldvin klaufi að vera rangstæður.
53. mín
Hættulegt!
Eiður Orri með langt innkast inn á teiginn og Ásgeir Páll fær mjög gott færi til að skora en skalli hans er beint á Árni. Reyndi of mikið að ná krafti í skallann í stað þess að reyna að beina honum í hornið.
52. mín
Keflvíkingar skalla í burtu og svo kemur háloftabolti inn á teiginn sem Ásgeir Orri grípur þægilega.
51. mín
Núna fær Stjarnan aukaspyrnu úti vinstra megin sem Jóhann Árni gerir sig tilbúinn að taka.
49. mín
Jóhann Árni með hornspyrnuna og Andri Rúnar mætir á nærstöngina og stangar boltann inn. Geggjaður skalli og Ásgeir Orri átti ekki möguleika.
Núna verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast.

STJARNAN JAFNAR!
Andri Rúnar Bjarnason (stoðsending: Jóhann Árni Gunnarsson)
Gestirnir ekki lengi að jafna metin hér í seinni hálfleiknum.Jóhann Árni með hornspyrnuna og Andri Rúnar mætir á nærstöngina og stangar boltann inn. Geggjaður skalli og Ásgeir Orri átti ekki möguleika.
Núna verður áhugavert að sjá hvernig þetta þróast.

48. mín
Jóhann Árni með fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og aftur fyrir. Hornspyrna sem gestirnir fá.
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
Núna sækir Stjarnan í átt að rennibrautinni í Vatnaveröld.
45. mín
InnBjarki Hauksson
ÚtÖrvar Eggertsson
Tvöföld breyting hjá Stjörnunni í hálfleik.
45. mín
InnHaukur Örn Brink
ÚtEmil Atlason
Tvöföld breyting hjá Stjörnunni í hálfleik.
45. mín
Tölfræðin úr fyrri hálfleiknum
xG: Keflavík 0,77 - 1,29 Stjarnan
Skot: Keflavík 7 - 7 Stjarnan
Skot á markið: Keflavík 5 - 1 Stjarnan
Snertingar í teig andstæðings: Keflavík 17 - 13 Stjarnan
Með bolta: Keflavík 45,2% - 54,8% Stjarnan
Mjög athyglisverð tölfræði þar sem mér finnst Keflavík hafa verið sterkari aðilinn og hættulegri.
Skot: Keflavík 7 - 7 Stjarnan
Skot á markið: Keflavík 5 - 1 Stjarnan
Snertingar í teig andstæðings: Keflavík 17 - 13 Stjarnan
Með bolta: Keflavík 45,2% - 54,8% Stjarnan
Mjög athyglisverð tölfræði þar sem mér finnst Keflavík hafa verið sterkari aðilinn og hættulegri.
45. mín
Búið að flauta til hálfleiks. Að mínu mati sanngjörn staða. Keflavík byrjaði mun betur og fékk fullt af færum, svo átti Stjarnan fínan kafla en Keflavík endaði hálfleikinn betur og leiðir að honum loknum.


45. mín
Jæja, hann er kominn í vesti aftur. Sýnist þetta vera Haukur Brink.
44. mín
Stjarnan er að undirbúa skiptingu rétt fyrir leikhlé. Mjög spes að eyða stoppi þegar svona stutt er í hálfleik.
41. mín
Keflavík hefur verið að hóta þessu síðustu mínútur og loksins er ísinn brotinn.
Löng sókn Keflavíkur. Þorlákur Breki fær boltann út hægra megin og leggur hann bara þægilega út í teiginn á Alghoul sem á slakt skot, en það endar í markinu. Árni Snær leit skelfilega út þarna sem og varnarmenn Stjörnunnar.

FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!!!
Muhamed Alghoul
Slakt skot sem Árni Snær átti að verja.Keflavík hefur verið að hóta þessu síðustu mínútur og loksins er ísinn brotinn.
Löng sókn Keflavíkur. Þorlákur Breki fær boltann út hægra megin og leggur hann bara þægilega út í teiginn á Alghoul sem á slakt skot, en það endar í markinu. Árni Snær leit skelfilega út þarna sem og varnarmenn Stjörnunnar.

41. mín
Breki Baxter með hættulega fyrirgjöf en Gummi Kristjáns er fyrstur á boltann.
40. mín
Aftur er það Alghoul sem reynir, núna með þrumuskot fyrir utan teig sem fer þó vel fram hjá markinu.
36. mín
Alghoul með skot að marki sem Árni Snær ver frekar auðveldlega.
35. mín
Örvar og Birnir búnir að skipta um kant, Örvar kominn út hægra megin og Birnir vinstra megin.
30. mín
Bjargað á línu!
Stjörnumenn eru að sækja í sig veðrið! Guðmundur Baldvin tekur aukaspyrnu inn á teiginn og boltinn fer af Andra Rúnari og stefnir í markið, en Nacho Heras er mættur til að bjarga á línu!


28. mín
Gult spjald
Axel Ingi Jóhannesson
Fyrsta gula spjald leiksins.25. mín
Þessi endaði bara í sjónum
Örvar Eggerts reynir skot fyrir utan teig en það fer langt yfir markið, aldrei séns.
24. mín
Örvar Logi með boltann fyrir markið en Axel Ingi er réttur maður á réttum stað og kemur honum frá.
19. mín
Birnir!
Stjarnan vinnur boltann hátt á vellinum og í kjölfarið fær Birnir Snær helvíti fínt færi, en setur boltann fram hjá. Skotvinkillinn kannski smá þröngur þarna.
18. mín
Keflavík líklegri
Keflavík hefur sankað að sér 0,38 í xG á þessum fyrstu mínútum leiksins á meðan Stjarnan er með 0,01.
Miðað við færin finnst mér xG-ið hæglega getað verið meira hjá heimamönnum.

Miðað við færin finnst mér xG-ið hæglega getað verið meira hjá heimamönnum.

14. mín
Hvernig er Ljubicic ekki búinn að skora?
Fær hér annað skotfæri við teiginn, nær góðum krafti í skotið en það er beint á Árna Snæ sem ver boltann út í teiginn. Keflvíkingar þó ekki alveg nógu grimmir.
Ljubicic á að vera búinn að skora tvö, ef ekki þrjú mörk hérna.

Ljubicic á að vera búinn að skora tvö, ef ekki þrjú mörk hérna.

12. mín
Ljubicic!
Keflvíkingar með boltann inn á teiginn og hann fellur í teignum fyrir Stefan Ljubicic sem er í mjög fínu færi en skot hans fer í varnarmann!
10. mín
Daníel Finns með háloftabolta inn á teiginn sem Ásgeir Orri grípur þægilega.
8. mín
Bekkurinn hjá Stjörnunni er mjög ungur í dag, meðalaldurinn 19 ár. Þar er meðal annars einn 15 ára og einn 14 ára gamall leikmaður. Á meðan er varamannabekkurinn hjá Keflavík talsvert eldri.
6. mín
Athyglisvert að Birnir Snær er með nýtt númer á bakinu í dag, er númer 14 en er búinn að vera númer 11 hingað til í sumar.


5. mín
Stjörnumenn mega prísa sig sæla að vera ekki búnir að fá á sig mark hérna.
5. mín
Aftur er Keflavík að komast í gott færi. Dagur Ingi fær boltann við vítateiginn eftir klaufagang hjá Stjörnumönnum en nær ekki að koma skoti á markið.
3. mín
DAUÐAFÆRI!
Hérna fá heimamenn dauðafæri! Vel spilað hjá Keflvíkingum, finna Dag Inga á bak við vörnina og hann leggur hann út í teiginn á Stefan Ljubicic sem er í stórkostlegu færi en skotið hans er skelfilegt og beint á Árna Snæ.
Keflvíkingar eru að byrja þetta mjög vel og þarna áttu þeir að komast yfir.

Keflvíkingar eru að byrja þetta mjög vel og þarna áttu þeir að komast yfir.

3. mín

2. mín
Svona er Keflavík að stilla upp

1. mín
Keflvíkingar byrja þetta strax af krafti og Eiður Orri er næstum því kominn í gott skotfæri en leikmaður Stjörnunnar er á undan honum í boltann.
1. mín
Fyrir leik
Liðin eru að ganga hér til leiks.
Fyrir leik
Það er alveg ágætis stemning hér í Keflavík. Hamborgarakeimurinn umlykur svæðið þegar stutt er í upphafsflaut.
Fyrir leik
Sunny Kef
Sunny Kef á vel við hér í dag, það er sól en það er líka talsverður vindur sem gæti gert liðunum erfitt fyrir. Grasið lítur bara nokkuð vel út, allavega miðað við hvernig það var um daginn.


Fyrir leik
Gunnar Freyr með flautuna
Gunnar Freyr Róbertsson er með flautuna hér í dag. Honum til aðstoðar eru Eðvarð Þór Eðvarsson og Jovan Subic. Fjórði dómari er Guðmundur Páll Friðbertsson og eftirlitsmaður er Oddur Helgi Guðmundsson.


Fyrir leik
Baxter mætir gömlu félögunum
Þorlákur Breki Baxter hefur komið mjög sterkur inn í lið Keflavíkur í upphafi tímabilsins en hann gekk í raðir félagsins frá Stjörnunni fyrir tímabilið. Hann fékk ekki mörg tækifæri í Garðabænum og ætlar væntanlega að sýna sig og sanna hér í kvöld.


Fyrir leik
Samkomulag?
Það er spurning hvort Keflavík og Stjarnan hafi gert eitthvða samkomulag þegar Alpha Conteh fór yfir til Keflavíkur um að Keflvíkingar mættu nota hann fyrir einhverja upphæð. Keflvíkingar gerðu það til að mynda með Davíð Helga Aronsson sem kom á láni frá Víkingum.


Fyrir leik
Byrjunarlið Stjörnunnar
12. Árni Snær Ólafsson (m)
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
14. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
Hjá Stjörnunni byrja bæði Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason og munu varnarmenn Keflavíkur hafa nóg að gera með þá tvo.

5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
14. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
19. Daníel Finns Matthíasson
22. Emil Atlason
32. Örvar Logi Örvarsson
99. Andri Rúnar Bjarnason
Hjá Stjörnunni byrja bæði Emil Atlason og Andri Rúnar Bjarnason og munu varnarmenn Keflavíkur hafa nóg að gera með þá tvo.

Fyrir leik
Byrjunarlið Keflavíkur
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
Það er ein breyting á milli leikja hjá Keflavík. Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni og má ekki spila þennan leik. Dagur Ingi Valsson kemur inn í hans stað.

3. Axel Ingi Jóhannesson
4. Nacho Heras (f)
5. Davíð Helgi Aronsson
7. Dagur Ingi Valsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
20. Marin Brigic
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson
Það er ein breyting á milli leikja hjá Keflavík. Alpha Conteh er á láni hjá Keflavík frá Stjörnunni og má ekki spila þennan leik. Dagur Ingi Valsson kemur inn í hans stað.

Fyrir leik
Kári Sigfússon spáir í spilin
Kári Sigfússon, leikmaður Fylkis, er spámaður umferðarinnar á Fótbolta.net. Hann er kannski ekki hlutlaus þegar kemur að þessum leik þar sem hann er fyrrum leikmaður Keflavíkur og átti stóran þátt í því að liðið komst upp á síðasta tímabili.
Keflavík 1 - 0 Stjarnan
Iðnaðarsigur á grasinu hjá mínum mönnum, ég er ekki frá því að Halli Gumm fái sér einn bauk eftir leik.

Keflavík 1 - 0 Stjarnan
Iðnaðarsigur á grasinu hjá mínum mönnum, ég er ekki frá því að Halli Gumm fái sér einn bauk eftir leik.

Fyrir leik
Gefur það Stjörnunni byr undir báða vængi?
Stjarnan vann sterkan sigur gegn KR í Mjólkurbikarnum á dögunum, 2-1, þar sem Jökull Elísabetarson, þjálfari liðsins, keypti sér smá andrúm. Það er spurning hvort sá sigur gefi Stjörnumönnum byr undir báða vængi.


Fyrir leik
Pressa á Stjörnunni
Stjarnan er sæti neðar en Keflavík, í áttunda sæti með sex stig. Stjarnan byrjaði á tveimur sigrum en hafa svo tapað fjórum deildarleikjum í röð sem er í raun óásættanlegt fyrir Garðbæinga. Það er búið að leggja mikið í lið Stjörnunnar og var krafa gerð fyrir mót að þetta lið færi í titilbaráttu. Þeir eru núna hins vegar 13 stigum frá toppnum þegar mótið er rétt byrjað.


Fyrir leik
Keflavík komið skemmtilega á óvart
Keflavík hefur komið skemmtilega á óvart í upphafi tímabilsins og er með sjö stig eftir sex leiki. Það voru allir að spá þeim falli fyrir tímabilið en miðað við þessa byrjun eru önnur lið líklegri. Frammistaðan hefur verið flott hjá Keflvíkingum og unnu þeir til að mynda mjög svo sanngjarnan 1-3 sigur gegn ÍA í síðustu umferð.


Fyrir leik
Heil umferð í dag
Það er heil umferð í Bestu deildinni í dag. Við byrjuðum í Vestmannaeyjum þar sem Víkingar sóttu sigur. Svo eru þetta hinir leikirnir:
sunnudagur 17. maí
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
sunnudagur 17. maí
16:00 Þór-ÍA (VÍS völlurinn)
17:00 FH-KA (Kaplakrikavöllur)
17:30 Keflavík-Stjarnan (HS Orku völlurinn)
18:15 Valur-Breiðablik (N1-völlurinn Hlíðarenda)
18:15 KR-Fram (Meistaravellir)
Fyrir leik
Góðan daginn!
Og verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Stjörnunnar í Bestu deild karla. Hér munum við fylgjast með gangi mála á HS Orku vellinum en flautað verður til leiks klukkan 17:30.








Viðtöl og skýrsla koma inn síðar í kvöld.