Leik lokið!
Skýrsla og viðtöl á leiðinni, takk fyrir mig, svaka leikur, svaka senur.
93. mín
Flautumark
Arnar Númi Gíslason (stoðsending: Máni Austmann Hilmarsson)
Arnór með aukaspyrnu langt frá. Boltinn kemur inn í teiginn og er svo skallaður í áttina að Mána Austmann sem skallar á Núma sem er alveg einn á fjær og skorar framhjá markmanninum. Svakalegar senur, svakalegt mark!91. mín
Fylkir að komast í skyndisókn en sendingin hjá Bjarka Steinsen fer í markspyrnu.
90. mín
+3 min
90. mín
ÍRingar að koma í sókn en Ágúst er með hræðilega fyrirgjöf sem fer yfir.
89. mín
Gult spjald
André Musa Solórzano Abed
87. mín
ÍR með skyndisókn en Tumi er fljótur til baka og tekur alvöru tæklingu til þess að stoppa sóknina.
87. mín
Hættulegt
Boltinn dettur á Arnór Breka sem er fyrir utan teiginn, hann tekur skotið langt frá og Vilhelm ver hann fyrir horn.
85. mín
Af línu
Fylkir með horn og skallinn er beint á markið en ÍRingar ná að sparka boltanum burt.
Skallinn var að fara beint inn í markið.
84. mín
Teddi keyrir upp hægri kantinn en fyrirgjöf hans er spörkuð burt.
83. mín
Ágúst Unnar keyrir upp hægri kantinn og kemur með flotta fyrirgjöf en skotið hjá Bergvini fer yfir markið.
82. mín
Vilhelm og Ólafur eru samanlagt búnir að grípa boltanum um það bil 100 sinnum í dag.
81. mín
Það er ekkert að gerast hjá Fylki í þessum seinni hálfleik, þetta er nú frekar svekkjandi fyrir þá ef þetta fer svona þar sem Þróttur er að gera jafntefli í sínum leik.
ÍRingar eru lúmskir og eru að finna sín færi.
78. mín
InnTheodór Ingi Óskarsson
ÚtKári Sigfússon
77. mín
Orri með skalla í stöngina.
75. mín
Gult spjald
Bjarki Steinsen Arnarsson
73. mín
Dauðafæri
Það kemur sending í gegnum vörn Fylkis og Ólafur hikar að hlaupa í boltann.
Bergvin er alveg einn og getur vippað yfir Ólaf en ákveður að komast nær markinu og Ólafur verður í hann og tekur boltann af Bergvini.
Varnarmenn Fylkis voru langt frá og þetta var ekki rangstaða.
71. mín
InnHákon Dagur Matthíasson
ÚtGuðjón Máni Magnússon
71. mín
InnTareq Shihab
ÚtEmil Nói Sigurhjartarson
70. mín
Kári með flott horn sem fer yfir Vilhelm en Fylkir ná ekki að skjóta á markið og dómarinn dæmir á klafs inn í teignum.
67. mín
ÍR var að komast í skyndisókn en Óliver Andri missir boltann rétt áður en hann kemst framhjá Orra.
65. mín
Báðir þjálfarar að stokka aðeins upp í liðunum, verður áhugavert að sjá hvernig það virkar.
63. mín
InnEyþór Aron Wöhler
ÚtDagur Traustason
63. mín
InnNikulás Val Gunnarsson
ÚtTumi Fannar Gunnarsson
63. mín
InnArnar Númi Gíslason
ÚtGuðmundur Tyrfingsson
63. mín
InnÓliver Andri Einarsson
ÚtStefán Þór Pálsson
63. mín
InnOrri Bjarkason
ÚtVíðir Freyr Ívarsson
60. mín
Kári var að sleppa í gegn en vörn ÍR ná boltanum af honum.
57. mín
Fylkismenn eru frekar ráðalausir í þessum hálfleik og eru ekki að spila vel saman.
Heimir gerir líklega breytingu bráðum.
56. mín
Áhorfendatölur
651
55. mín
ÍRingar eru að herja á vörn Fylkis sem er í smá erfiðleikum.
54. mín
Gummi Tyrfings keyrir upp vinstri kantinnn, kemur með fyrirgjöf á Mána en ÍRingar ná að blokka skotið og Vilhelm grípur boltann.
51. mín
Hlynur Sævar með skalla frá horni, skallinn fer yfir markið.
48. mín
Fylkir eru sofandi
ÍRingar eru að komast í gegnum vörn Fylkis mjög léttilega.
En Ólafur er að verjast vel í marki Fylkismanna.
46. mín
Bjarki Steinsen með aukaspyrnu sem fer í gegnum allan hópinn inn í teignum.
46. mín
Seinni hálfleikur
Fylkismenn byrja.
45. mín
Sjáumst eftir korter, spennandi leikur hingað til.
Heimir líklega ekki sáttur en Jóhann er kannski aðeins ánægðari.
45. mín
+1
42. mín
ÍR með alvöru pressu á vörn og markmann Fylkis, Ólafur neyðist til þess að sparka boltanum í innkast.
40. mín
Gummi Tyrfings kemur með háa fyrirgjöf sem Vilhelm Þráin grípur.
39. mín
Sigurður Karl er kominn inn í boxið og kemur með háa fyrirgjöf sem Fylkismenn ná að sparka burt.
39. mín
Rangstaða
Emil Nói sendir á Guðjón Mána í 1v1 stöðu gegn markmanni en Guðjón er rangur. Gott fyrir hann því að skotið fór beint í Ólaf Kristófer.
37. mín
Kári kemur með háa sendingu inn í boxið en Vilhelm Þráinn grípur boltann.
36. mín
Kári á hægri kantinum cuttar inn og tekur skotið langt frá, en skotið fór yfir markið.
33. mín
Stefán Þór hrindir niður Hlyn Sævar, fær bara tiltal.
31. mín
Gult spjald
Hlynur Sævar Jónsson
31. mín
Áhugavert að sjá hvernig Fylkismenn svara eftir að hafa fengið á sig svona mark.
29. mín
Gult spjald
Sigurður Karl Gunnarsson
26. mín
Hvað er í gangi Fylkir
Víðir Freyr Ívarsson
Trúðamark, það er sagan frá þessu marki. Guðjón Máni kemur með sendingu fram fyrir markið sem er frekar léleg. Orri Segatta og Ólafur ætla báðir í hann og fara svo í hvorn annan. Boltinn heldur svo áfram á Víðir sem er kominn við endalínuna. Víðir þarf svo að snúa sér við og slúttar svo boltanum undir Ólaf í markinu sem kemur þarna á fleygiferð.24. mín
Guðjón Máni að næla í horn fyrir ÍR sem Fylkir skallar burt.
23. mín
Dagur Trausta með erfiðan skalla sem fer upp í loftið en á markið, veit ekki hvort að það sé hægt að telja þetta sem skot.
20. mín
ÍRingar eru ekki búnir að fá skot en þeir hafa átt sínar skyndisóknir, þeir þurfa að nýta þær betur.
18. mín
Horn hjá Fylki sem er skallað burt, en boltinn dettur á Tuma Fannar aftur og hann tekur skotið sem Vilhelm grípur.
17. mín
Kári á hægri kantinum kemur með háa fyrirgjöf sem er skölluð burt, boltinn dettur svo á Tuma sem tekur svo skotið sem fer beint í varnarmann.
13. mín
Orri Segatta með hræðilega sendingu til baka á markmannin, Guðjón Máni var ekki langt í boltann en Ólafur var á undan honum.
11. mín
ÍR kemst í sókn en enda svo að tapa boltanum í markspyrnu.
10. mín
Kári á hægri kantinum, reynir að cutta inn, tekur svo skotið en það fer beint í varnarmann.
6. mín
MAAAARK!
Máni Austmann Hilmarsson (stoðsending: Kári Sigfússon)
Eftir misheppnaða sókn hjá ÍR þá fer Fylkir í skyndisókn. Kári Sigfús keyrir upp hægri kantinn og kemur með einfalda sendingu inn í teiginn. Máni Austmann er staðsettur við vítapunktinn og skorar framhjá markmanninum.5. mín
Frekar róleg byrjun hingað til.
1. mín
ÍRingar eru að komast í gegnum vörn Fylkis en Ólafur í markinu kemst fljótt í boltann.
1. mín
Afmælisbarn dagsins
Guðfinnur Þór Leósson á afmæli í dag og er 27 ára. Við óskum honum til hamingju með daginn.

1. mín
ÍRingar byrja þetta.
Fyrir leik
20 mín í leik
Byrjunarliðin eru komin í hús.
Benedikt Daríus er ekki á skýrslu í dag. Guðmundur Tyrfings er kominn í byrjunarliðið og Eyþór Wöhler er á bekknum annan leikinn í röð. Tumi kemur inn í liðið fyrir Birki Eyþórs sem fékk rautt í síðasta leik gegn Njarðvík.
Kristján Atli er í þjálfarateymi ÍR annan leikinn í röð, Stefán Þór byrjar leikinn eftir að hafa verið settur á bekkinn gegn Grindavík. Orri Bjarkason fer á bekkinn eftir að hafa byrjað gegn Grindavík.


Fyrir leik
Mikil læti síðasta sumar
Þegar Fylkir tók á móti ÍR síðasta sumar, þá voru mikil læti eftir leik.
ÍR var að vinna leikinn 1-2, þegar í uppbótartíma fékk Emil Ásmundsson og Árni Freyr Guðnason, þáverandi þjálfari Fylkis rautt spjald. Ívan Óli Santos sem var partur af liðstjórn ÍR fékk líka að sjá rauða spjaldið.
Mínútu seinna fær fyrirliði Fylkis, Ragnar Bragi rautt líka.

Fyrir leik
Staðan
Þrátt fyrir frábæran sigur gegn FH, þá töpuðu Fylkir útileik gegn Njarðvík í síðustu umferð Lengjudeildarinnar. Fyrir leikinn gegn Njarðvík, þá fékk Fylkir, Ægi og Vestra í heimsókn og unnu báða leikina.
Fylkir er í öðru sæti með sex stig eftir þrjár umferðir, þeir hafa fengið á sig tvö mörk en skorað fimm.
Fylkir hafa ekki enn tapað leik á heimavelli, úrslit Lengjubikarsins var á Tekk og unnu þeir í vító. Fylkir unnu fyrstu tvær umferðinnar á heimavelli og svo FH í síðasta leik.
ÍR byrjaði mótið frábærlega með því að sigra Aftureldingu 4-7 á útivelli. Eftir þann leik fóru þeir í heimsókn til Þróttar og töpuðu 1-3. Svo fengu þeir Grindavík í heimsókn, ÍR komst í 2-0 forystu í fyrri hálfleik en töpuðu henni í seinni hálfleik og þurftu að sætta sig við eitt stig.
ÍR er með fjögur stig og sitja í fjórða sæti, en liðin í kring eru öll með svipuð stig og eftir þessa umferð getur staðan breyst.
Mótið er nýbyrjað og margt getur breyst.


Fyrir leik
Spámaðurinn
Amin Cosic, sem hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, spáir í leikina að þessu sinni.
Fylkir 4 - 2 ÍR
,,Þetta verð góður leikur sem Fylkismenn taka 4-2. Eru búnir að vera mjög öflugir í deild og bikar, Teddi kemur af bekknum og setur eitt."
Fyrir leik
Dómaratríóið
Gunnar Oddur Hafliðason verður með flautuna, Guðni Freyr Ingvason og Rögnvaldur Höskuldsson verða með flöggin.

Fyrir leik
ÍR tapaði 2-0 forystu gegn Grindavík í seinni hálfleik
Fyrir leik
Heimir og Fylkir fóru illa með FH í Mjólkurbikarnum
Fyrir leik
Fjórða umferð Lengjudeildarinnar
Velkomin á Tekk, þar sem Fylkir tekur á móti ÍR.
sunnudagur 17. maí
14:00 Ægir-Vestri
16:00 Grindavík-Völsungur
mánudagur 18. maí
19:15 Fylkir-ÍR
19:15 HK-Njarðvík
19:15 Þróttur R.-Leiknir R.
19:15 Grótta-Afturelding





