Fotbolti.net
@fotboltinetHafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
HK
HK
Lengjudeild karla
Kórinn
2 - 0
Njarðvík
Njarðvík
Dominik Radic 57'1 - 0Aron Kristófer Lárusson 65'2 - 0
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Kári Snorrason

SKÝRSLAN: Þungt ský yfir Kórnum eftir alvarleg meiðsli

Hvað réði úrslitum?

HK menn voru ekki alveg mættir í fyrri hálfleik. Voru ekki mjög sannfærandi en gáfu vel í í seinni hálfleik og skoruðu 2 mörk á 8 mínútum. Það var mikil seigla í Njarðvíkurliðinu og manni fannst þrátt fyrir rauða spjaldið að þeir voru ekkert manni færri.

Bestu leikmenn

1. Svavar Örn Þórðarson

Svavar var alveg frábær í dag í. Sterkur og stæðilegur

2. Freysteinn Ingi Guðnason

Mjög fljótur og ábyggilega erfitt að mæta honum. Sýndi þvílík gæði í dag og lék á mann og annan.

Atvikið

Það er klárlega meiðslin hans Jóhanns Ægis. Fer í öxl-í-öxl baráttu og lendir síðan illa. Leikurinn var stopp í rúman hálftíma meðan beðið var eftir sjúkrabíl. Ég óska Jóhanni góðs bata og vona innilega að hann nái að snúa aftur á fótboltavöllinn sem fyrst.

Hvað þýða úrslitin?

HK situr í 2. sæti með 9 stig og Njarðvík í 9. sæti með 4 stig eftir fjórar umferðir. HK á leik næst við ÍR á útivelli og Njarðvík á leik við Ægi á heimavelli.

Vondur dagur

Arnleifur var klaufi að næla sér í þetta rauða spjald. Ætlar að reyna fara í boltann en fer í fótinn á leikmanni HK. Vissulega vondur dagur fyrir Jóhann en þetta er auðvitað pjúra óheppni sem gerist við hann

Dómarinn - 8

Helgi Mikael flottur á flautunni. Mér fannst það hárrétt dæmt rauða spjaldið en hins vegar voru önnur atriði þar sem manni fannst að það áttu að vera spjöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.