SKÝRSLAN: Mosfellsbær er vaknaður - Afturelding með gæðin sem réðu úrslitum
Hvað réði úrslitum?
Gæði á síðast þriðjungi vallarins réðu úrslitum í þessum leik. Bart Kooistra, Elmar Cogic og Birkir Már allir með þetta litla aukagæði sem breyta leiknum.
Bestu leikmenn
1. Bart Kooistra
Skoraði gott mark í leiknum, hélt boltanum vel og innsiglaði góða frammistöðu með stoðsendingu á Óðinn sem gerði út af við leikinn. Var með þessi extra litlu gæði sem skipta sköpum í leiknum.
2. Axel Óskar Andrésson
Var flottur í vörninni ásamt Andi Hoti og í raun hefðu þeir báðir geta fengið þennan titil en Axel átti löng og góð aukaköst í leiknum. En þeir tveir voru lykilinn að þéttri vörn gestanna.
Atvikið
Á 80. mínútu leiks fékk Mattías Kjeld boltann fyrir utan vítateig vinstra megin og sá ákvað að láta bara vaða á markið. Skotið var feykilega fast og fór í þverslánna niður í stað þess að fara í slánna inn. Þarna hefðu heimamenn jafnan leikinn og hver veit hvernig hann hefði endað þá?
Hvað þýða úrslitin?
Mosfellsbærinn er mættur til leiks og Afturelding með þriðja sigurinn í röð, þar af tveir sigrar í röð á útivelli í deildinni. Enda umferðinni sennilega í 4. sæti með jafnmörg stig og Vestri en betri markatölu. Fyrir Gróttu þá heldur baráttan fyrir veru sinni í Lengjudeildinni áfram í 10. sæti. Hins vegar var frammistaðan á köflum mjög jákvæð.
Vondur dagur
Það átti í sjálfu sér engin vondan dag í hvorugu liðinu en að því sögðu þá var Andri Freyr Jónasson tekinn út af á 76. mínútu þrátt fyrir að Grótta þurfti mark. Sá var í gjörgæslu hjá Axel og Andi í dag og sást lítið.
Dómarinn - 7
Fín dómgæsla hjá Ívari Orra og félögum. Man eftir einni hornspyrnu sem Afturelding átti að fá en fyrir utan það ekkert sem stakk mig í augað.



