Fotbolti.net
@elvargeirElvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Þróttur R.
Þróttur R.
Lengjudeild karla
AVIS völlurinn
Sól, blíða og stuð
1 - 1
Leiknir R.
Leiknir R.
0 - 152' Shkelzen VeseliVilhjálmur Kaldal Sigurðsson 69'1 - 1
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Leiknismenn fyrstir til að taka stig frá Þrótti

Hvað réði úrslitum?

Þróttarar hafa í gegnum árin verið í vandræðum gegn Leikni og stigasöfnunin gegn Breiðhyltingum ekki verið góð. Það mynstur heldur áfram. Flestir bjuggust við sigri Þróttar í kvöld en Leiknismenn fagna stiginu. Þróttarar fengu fleiri marktækifæri en gerðu á endanum ekki nóg til að vinna leikinn.

Bestu leikmenn

1. Ólafur Íshólm Ólafsson - Leiknir

Enn ein frábæra frammistaða markvarðarins fyrir Leikni.

2. Marko Veselinovic - Leiknir

Stóð vaktina vel í vörn Breiðhyltinga.

Atvikið

Kári Kristjánsson átti stangarskot í fyrri hálfleik, í innanverða stöngina og útaf hinumegin. Eðlisfræðin kom manni í opna skjöldu og ótrúlegt að þetta hafi ekki verið mark.

Hvað þýða úrslitin?

Fyrstu stigin sem Þróttur missir af í sumar en liðið er áfram á toppnum og 10 stig af 12 mögulegum er uppskera sem lítið er hægt að kvarta yfir. Leiknismenn eru komnir með fimm stig og fara sæmilega af stað á tímabilinu.

Vondur dagur

Þróttarar naga sig í handarbökin yfir því að hafa ekki farið betur með færin því þeir áttu svo sannarlega að skora fleira en eitt mark í dag. Tvívegis hafnaði boltinn í stönginni.

Dómarinn - 7

Dómararnir voru ekki í aðalhlutverki í dag og það er ekkert nema jákvætt.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.