SKÝRSLAN: Fylkir enn að djamma eftir FH leikinn og þurfti flautumark
Hvað réði úrslitum?
Þetta var frekar jafn leikur og ef eitthvað lið átti skilið að sigra myndi ég frekar segja ÍR. Fylkismenn greinilega enn að djamm eftir leikinn gegn FH og spiluðu ekki vel í dag. Fylkir byrjaði leikinn vel en í seinn hálfleik áttu þeir mjög erfitt og virkuðu ráðalausir.
Bestu leikmenn
1. Máni Austmann Hilmarsson
Hann var ekki frábær í dag og það var enginn frábær í dag, en mark og stoðsending í dag og þarf maður þá ekki að setja hann hér.
2. Tumi Fannar Gunnarsson
Kom inn í liðið fyrir Birki Eyþórs og spilaði bara vel, var að henda sér í tæklingar og sendingarnar voru góðar.
Atvikið
Klárlega fer flautumarkið í þetta box, ÍRingar mjög óheppnir og Fylkismenn mjög heppnir. Þetta var frekar dautt í seinni hálfleik en gaman að fá svona spennu í lok leiks.
Hvað þýða úrslitin?
Fjórða umferð Lengjudeildarinnar er búin og Fylkir situr núna í þriðja sæti með 9 stig, einu stigi frá fyrst sæti. ÍR er í áttunda sæti með 4 stig en næsti leikur hjá þeim er fyrsti heimaleikurinn á tímabilinu. Þeir spiluðu tæknilega séð heimaleik gegn Grindavík en hann var í Egilshöllinni.
Vondur dagur
Orri Sveinn Segatta átti erfiðan leik í dag. Markið hjá ÍR var á honum, þar sem hann lendir í Ólafi, markmanni Fylkis og boltinn fer á Víði sem potar honum svo inn. Algjört trúðamark að fá á sig. Það voru nokkur móment þar sem hann missti smá fókus og var ekki langt frá því að gefa boltann frá sér.
Dómarinn - 6
Fín vakt í dag. Jóhann, þjálfari ÍR vildi meina að þetta var ekki aukaspyrna en mér sýndist þetta vera rétt dæmt hjá honum.



