Fotbolti.net
Gylfi Már Þórðarson
Lengjudeild karla
Þarfaþingsvöllurinn
Rigning og smá gola - flott knattspyrnuveður
ÍR
ÍR
3 - 1
HK
HK
Orri Bjarkason 51'1 - 0Orri Bjarkason 76'2 - 0Stefán Þór Pálsson 87'3 - 03 - 188' Alexander Örn Guðmundsson
Dómari: Pétur Guðmundsson
Leik lokið!
ÍR-ingar sigra 3-1
HK-ingar komust lítt áleiðis í uppbótartímanum og sterkur sigur ÍR í jöfnum leik staðreynd.

Skýrsla og viðtöl síðar í kvöld
90. mín
A.m.k. 4 mínútur í viðbót
HK
88. mín
3-1

Alexander Örn Guðmundsson

Þeir eru ekki búnir að gefast upp!

Alexander Örn fylgir góðu skoti og setur boltann í autt markið.
ÍR
87. mín
3-0 og ÍR-ingar að klára þetta

Stefán Þór Pálsson (stoðsending: Bergvin Fannar Helgason)

Stefán Þór skorar eftir laglegt spil Bergvins Fannars.
HK
86. mín
InnAlexander Örn Guðmundsson
ÚtDominik Radic
Þeirra síðasta skipting í dag
84. mín
Góð sókn HK
HK-ingar komust upp að endalínu og settu boltann út í teiginn á Radic sem átti skot beint á Vilhelm sem varði vel. Flaggið því næst á loft, boltinn líklega farið útaf.
83. mín
Skipt um bolta
Pétur ekki sáttur við þrýstinginn í boltanum og fær næsta bolta í leik
ÍR
82. mín
InnHrafn Hallgrímsson
ÚtOrri Bjarkason
Orri verið virkilega flottur í dag
ÍR
76. mín
Hans annað mark!

Orri Bjarkason (stoðsending: Stefán Þór Pálsson )

Stefán Þór finnur Orra Bjarkason utarlega í hægra megin í vítateignum. Orri gerir engin mistök og á þéttingsfast skot í fjærhornið. Ólafur í boltanum en það var ekki nóg.
74. mín
Bergvin með fínt skot
Vann boltann á miðjum vallarhelmingi HK, gefur á liðsfélaga og fær hann svo aftur. Á svo skot sem fer framhjá
HK
72. mín
InnAtli Þór Gunnarsson
ÚtAtli Hrafn Andrason
Atli fyrir Atla
ÍR
68. mín
InnStefán Þór Pálsson
ÚtÍsak Atli Atlason
Þreföld skipting heimamanna
ÍR
68. mín
InnHalldór Atli Kristjánsson
ÚtTareq Shihab
Þreföld skipting heimamanna
ÍR
68. mín
InnAndré Musa Solórzano Abed
ÚtÓliver Andri Einarsson
Þreföld skipting heimamanna
HK
67. mín
Brot á miðjum vellinum

Atli Hrafn Andrason

HK
65. mín
InnKarl Ágúst Karlsson
ÚtTumi Þorvarsson
HK
65. mín
InnMagnús Arnar Pétursson
ÚtÞorvaldur Smári Jónsson
ÍR
64. mín
Aukaspyrna fyrir HK

Tareq Shihab

Fínasta fyrirgjöf sem Dominic Radic skallar yfir markið
62. mín
Bergvin í færi
Kom sér framhjá hverjum HK-ingnum á fætur öðrum og kemur sér í skotfæri sem Ólafur nær að skutla sér í og verja.
59. mín
Jóhann Þór í færi
Atli Hrafn vinnur boltann nálægt D-boga ÍR-inga, kemur boltanum á Jóhann sem skýtur framhjá. Þarna hefði hann mátt setja boltann á rammann
ÍR
57. mín
InnGuðjón Máni Magnússon
ÚtVíðir Freyr Ívarsson
Fyrsta skiptingin í dag
Víðir skilað góðu starfi í dag.
55. mín
Sigurður Karl!
Sigurður Karl í dauðafæri, vinnur boltann hátt á vellinum, ákvað að fara sjálfur og í skotið en boltinn sveif vel yfir mark HK. Þarna hefði hann hæglega getað tvöfaldað forustuna
ÍR
51. mín
Fyrsta markið komið

Orri Bjarkason

Orri Bjarkason skorar fyrsta mark leiksins! Var skyndilega kominn einn í gegn og rennir boltanum framhjá Ólafi snyrtilega.
49. mín
Nú vilja HK-ingar fá víti
Jóhann Þór fær boltann utarlega í vítateignum, missir boltann aðeins frá sér en það er greinilega togað í treyjuna hans og fellur hann við. Pétur dæmir ekkert og eru þeir alveg brjálaðir á bekknum. Pétur biður menn um að róa sig.
47. mín
SKOT Í SLÁ
ÍR-ingar fá hornspyrnu, boltinn berst út í teiginn þar sem þeir eiga hörkuskot í slánna. Boltinn barst aftur í teiginn og eftir mikinn darraðadans hreinsuðu HK-ingar frá.
46. mín
HK hefja leik í seinni
Þeir leika nú í átt að ÍR heimilinu, ÍR-ingar í átt að frjálsíþróttasvæðinu
45. mín
Það kominn hálfleikur
Jafn og skemmtilegur leikur með mörgum færum á báða bóga.

Við tökum okkur korters pásu.
45. mín
Uppbótartíminn
Við fáum að minnsta kosti eina mínútu í viðbót.

ÍR fær horn, sjáum hvort þeir geti nýtt sér það.
Stutta svarið við því er nei.
42. mín
..og nú ÍR nálægt
Boltinn berst lágt inn í teig eftir hornspyrnu á nærsvæðið, en leikmaður ÍR nær til boltans en skýtur rétt yfir.

Þetta var klárlega af æfingasvæðinu.
40. mín
HK hársbreidd frá því
Þorvaldur Smári með þrumuskot eftir hornspyrnu HK. Boltinn var hreinsaður út en ekki lengra en til Þorvaldar sem hitti boltann vel en rétt framhjá fór hann.
38. mín
Orrahríð að marki HK
ÍR-ingar þjarma að HK-ingum. Eiga ein þrjú skot í sömu sókninni sem HK-ingar henda sér fyrir. Boltinn endar aftur fyrir endamörk og ÍR fær hornspyrnu. Upp úr henni kemur fín fyrirgjöf sem er skölluð yfir.

ÍR-ingar líklegri þessa stundina
33. mín
Vel spilað hjá ÍR
Hafa náð að halda pressu á vörn HK í um mínutu sem endar með skoti Tareq Shihab. Skotið þokkalega beint á Ólaf Örn sem gerði vel og varði boltann til hliðar.
31. mín
STÖNGIN!
Dominic Radic í þröngu færi, tekur fast skot sem endar í utanverðri nærstönginni.
29. mín
Víti?
ÍR-ingar vilja víti! Emil Nói á skot að marki og vilja ÍR-ingar meina að boltinn hafi farið í hönd leikmanns HK. Ómögulegt fyrir mig að segja hvort svo hafi verið.
HK
26. mín
Brot á miðjum vallarhelmingi HK

Haukur Leifur Eiríksson

ÍR-ingar á leið í sókn en hún stoppuð með því sama. Réttilega dæmt gult spjald.
24. mín
Frábær sókn ÍR-inga
Vinna boltann hátt á vellinum, eftir slaka sendingu úr vörn HK. Boltinn berst út til vinstri og kemur flottur bolti fyrir á Bergvin Fannar sem skallar boltann framhjá. Líklega besta færi ÍR það sem af er leik.
ÍR
20. mín
Hörkutækling

Sigurður Karl Gunnarsson

Sigurður Karl Gunnarsson fær gult spjald fyrir alvöru tæklingu af gamla skólanum. Var aðeins á eftir Jóhanni Þór sem vinnur aukaspyrnuna.

Ívar Örn tekur spyrnuna sem er stórhættuleg! Boltinn svífur á fjærstöngina en enginn nær að reka ennið í knöttinn.
18. mín
Emil Nói á skot á mark
Fer af varnarmanni HK og Ólafur á ekki í vandræðum með grípa boltann.
11. mín
Endanna á milli
Eftir að HK byrjaði betur hafa ÍR-ingar verið að ógna undanfarnar mínútur og vinna aðra hornspyrnu. HK skalla frá og eru skyndilega komnir fjórir á einn hinu megin á vellinum. Vilhelm gerir vel í að loka.
9. mín
HK-ingar ósáttir
Telja að brotið hafi verið á Jóhanni Þór en Pétur dæmir ekkert. ÍR-ingar bruna í sókn og komast í álitlegt færi í kjölfarið og vinna hornspyrnu. Ekkert kom úr henni.
7. mín
Ágætis sókn HK
Aron Kristófer fær boltann úti á vinstri vængnum, reynir að koma honum fyrir en boltinn hreinsaður í horn. Atli Hrafn býr sig undir að taka spyrnuna.

Spyrnan arfaslök, nær ekki yfir fyrsta mann og er hreinsuð í burt.
ÍR
1. mín
..og fyrsta gula spjaldið

Orri Bjarkason

Orri fer aðeins of hátt með löppina í tæklingu.
1. mín
Fyrsta aukaspyrna leiksins
Hún kom eftir 10 sekúndur eða svo. Fínasta fyrirgjafarstaða fyrir Emil Nóa.
1. mín
Þetta er komið af stað
Það eru ÍR-ingar sem hefja leik.
Fyrir leik
Þetta er að bresta á
Liðin ganga inn á völlinn með Pétur dómara í broddi fylkingar. Stúkan er ekki beint þétt setin en ég trúi því að það rætist úr mætingunni á næstu mínútum.
Fyrir leik
Mennirnir með valdið
Pétur Guðmundsson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru Arnþór Helgi Gíslason og Ásgeir Viktorsson. Dómaraeftirlitsmaður er Þórður Ingi Guðjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru komin inn
Jóhann, þjálfari Ír, gerir þrjár breytingar á byrjunarliðinu úr síðasta leik. André Musa Solórzano Abed, Stefán Þór Pálsson, Guðjón Máni Magnússon fá sér sæti á bekknum og í þeirra stað koma Óliver Andri Einarsson, Tareq Shihab og Orri Bjarkason.

Gunnar Heiðar gerir tvær breytingar á liði HK. Þorsteinn Aron Antonsson og Magnús Arnar Pétursson detta út og í þeirra stað koma Haukur Leifur Eiríksson og Þorvaldur Smári Jónsson.

Ívar Orri Gissurason er í leikmannahóp HK í fyrsta sinn í sumar en hann er kominn til landsins frá Bandaríkjunum þar sem hann er í námi.
Fyrir leik
Baddi Borgars spáir í 5. umferð lengjudeildarinnar
Baldvin spáir HK sigri í kvöld

ÍR 1 - 2 HK
Gunnars Heiðars army heldur áfram að sanna sig sem eitt öflugasta lið deildarinnar og vinnur í Mjóddinni, sem er alltaf erfitt með Sölva Haralds trylltan ofan á gámnum við varamannabekkina að rífa kjaft við dómarann og andstæðingana.
Fyrir leik
HK
HK-ingar sitja í 2. sæti Lengjudeildarinnar með 9 stig. Í síðustu umferð sóttu þeir sterkan sigur gegn Njarðvík eftir tap gegn Vestra í hörkuleik í umferðinni á undan.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fyrir leik
ÍR
Fyrir leik eru ÍR-ingar með 4 stig í 8. sæti deildarinnar. Eftir góðan sigur í fyrstu umferð hafa komið tvö töp og eitt jafntefli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
ÍR - HK
Verið velkomin í þessa textalýsingu frá Þarfaþingsvellinum þar sem ÍR tekur á móti HK í 5. umferð Lengjudeildarinnar.

Mynd: Lengjudeildin

föstudagur 22. maí
19:15 ÍR-HK (Þarfaþingsvöllurinn)
19:15 Leiknir R.-Grindavík (Leiknisvöllur)
19:15 Afturelding-Þróttur R. (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 23. maí
14:00 Njarðvík-Ægir (JBÓ völlurinn)
14:00 Grótta-Vestri (Vivaldivöllurinn)
14:00 Völsungur-Fylkir (GPG völlurinn)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.