Það eru þrír leikir á dagskrá Lengjudeildar karla í kvöld og þrír leikir á morgun.
Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur okkar um deildina, spáir í leikina að þessu sinni.
Baldvin Már Borgarsson, sérfræðingur okkar um deildina, spáir í leikina að þessu sinni.
Afturelding 1 - 2 Þróttur R. (19:15 í kvöld)
Þróttarar halda áfram góðu gengi og skella sér í Mosfellsbæinn í ansi erfiðan leik en vinna, ætli Siggi Lár hendi ekki í eina stoðsendingu gegn Birki Má félaga sínum.
ÍR 1 - 2 HK (19:15 í kvöld)
Gunnars Heiðars army heldur áfram að sanna sig sem eitt öflugasta lið deildarinnar og vinnur í Mjóddinni, sem er alltaf erfitt með Sölva Haralds trylltan ofan á gámnum við varamannabekkina að rífa kjaft við dómarann og andstæðingana.
Leiknir R. 2 - 1 Grindavík (19:15 í kvöld)
Leiknismenn taka sterkan heimasigur þarna á Grindavík, Dagur Ingi Hammer með mark á móti uppeldisfélaginu.
Grótta 2 - 1 Vestri (14:00 á morgun)
Vestramenn hafa harma að hefna eftir bikarleikinn um daginn en ná ekkert að hefna, Grímur Ingi verður maður leiksins og fagnar svo þessum sigri í Skútuvoginum, gera það að hefð.
Njarðvík 1 - 1 Ægir (14:00 á morgun)
Ægismenn sækja sitt fyrsta stig, Njarðvíkingar farið ansi hægt af stað í mótinu, eru í vandræðum með að skora mörk og áföll hafa einkennt byrjun sumarsins hjá þeim, það verður enn eitt áfallið að vinna ekki Ægi.
Völsungur 0 - 3 Fylkir (14:00 á morgun)
Hér kemur einn sannfærandi sigur, brasilíski bílastæðafótboltinn sem nýja spænska þjálfarateymi Völlara vill spila verður ekki alveg búið að síast inn hjá heimamönnum, Theodór Ingi fagnar Englandsmeistaratitli Arsenal með stjörnuleik.
Fyrri spámenn:
Amin Cosic (3 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)

