Fotbolti.net
Besta deildin
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Besta karla
HS Orku völlurinn
Keflavík
Keflavík
1 - 0
Þór
Þór
Marin Brigic 6'1 - 094' Einar Freyr Halldórsson (misnotað víti)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Myndir: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
Leik lokið!
Svakaleg dramatík í lokin en sigur Keflvíkinga staðreynd og sigurinn var sanngjarn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór
94. mín
Víti misnotað

Einar Freyr Halldórsson

Ungi maðurinn klikkar, setur hann í stöngina og fram hjá.
Keflavík
93. mín
Gult spjald

Ásgeir Orri Magnússon

Brýtur af sér og vissi alveg upp á sig sökina. Þetta var alveg pjúra víti.
93. mín
Þórsarar eru að fá víti!
92. mín
Keflavík fær hornspyrnu en Alghoul sparkar boltanum beint aftur fyrir endamörk.
91. mín
Stuðningsmenn beggja liða taka við sér.
90. mín
Það er sex mínútum bætt við!
90. mín
Þórsarar fá hornspyrnu en skalla boltann aftur fyrir.
Keflavík
88. mín
InnErnir Bjarnason
ÚtEiður Orri Ragnarsson
Keflavík
88. mín
InnHalid Alghoul
ÚtÞorlákur Breki Þ. Baxter
88. mín
Þórsarar eru heldur betur að banka.
87. mín
HÆTTA!
Atli Sigurjóns með góða spyrnu inn á teiginn og boltinn dettur fyrir Ásbjörn Líndal. Hann fer í skotið en það fer í varnarmann Keflavíkur. Mögulega var þetta besta færi Þórsara í leiknum til þessa.
Þór
84. mín
InnAron Ingi Magnússon
ÚtBjarni Guðjón Brynjólfsson
Keflavík
84. mín
InnMarin Mudrazija
ÚtStefan Alexander Ljubicic
83. mín
Ásgeir Páll í frábæru skallafæri eftir hornspyrnu en hann hittir hann ekki almennilega.
Þór
82. mín
InnIngimar Arnar Kristjánsson
ÚtChristian Jakobsen
82. mín
Alpha Conteh tekur sprettinn upp völlinn en hættir svo á miðri leið, alveg búinn á því.
80. mín
Tíu mínútur eftir af venjulegum leiktíma.
77. mín
Þórsarar eru hættulegri þessa stundina. Eiga hér fyrirgjöf sem Ásgeir Orri gerir vel í að grípa.
75. mín
Atli Sigurjóns með hörkuskot að marki en lítið vandamál fyrir Ásgeir Orra samt sem áður.
Keflavík
73. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtDavíð Helgi Aronsson
73. mín
Breki Baxter fékk höfuðhögg og liggur eftir.
70. mín
Þórsarar að ógna!
Sebastian Haugland fær boltann og tekur vel á móti honum. Hann leggur hann svo á Fannar Daða sem kemur á ferðinni og er kominn í mjög gott færi. Hann nær ágætis skoti en Ásgeir Orri sér við honum!
70. mín
Keflvíkingar fá tvær hornspyrnur. Sú seinni endar með því að Breki Baxter á skot að marki sem fer í varnarmann.
68. mín
Ljubicic er heldur betur duglegur að koma sér í færi. Á hér skot sem fer af varnarmanni og fram hjá.
66. mín
Þetta var fyrsta marktilraun Þórsara í leiknum en hún kemur eftir 66 mínútur.
65. mín
Þórsarar!
Loksins komast Þórsarar í álitlega stöðu. Komast aftur fyrir vörnina og Atli Sigurjóns er ekki langt frá því að skora. Marin Brigic lokaði vel þarna.
Keflavík
64. mín
Gult spjald

Davíð Helgi Aronsson

Þór
61. mín
Gult spjald

Vilhelm Ottó Biering Ottósson

59. mín
Siggi Höskulds hendir í þrefalda breytingu. Kveikir þetta í Þórsurum?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór
59. mín
InnVilhelm Ottó Biering Ottósson
ÚtÁgúst Eðvald Hlynsson
Þór
59. mín
InnFannar Daði Malmquist Gíslason
ÚtSigfús Fannar Gunnarsson
Þór
59. mín
InnSebastian Heimvik Haugland
ÚtElvar Baldvinsson
58. mín
Stefan Ljubicic með skot lengst yfir markið.
58. mín
Atli Sigurjóns með boltann fyrir en Ásgeir gerir frábærlega í að koma út og grípa.
57. mín
Staðan í xG-inu?
Keflavík er með 2,08 á meðan Þórsarar halda í 0,00.
56. mín
Þórsarar með fyrirgjöf sem fer rétt fram hjá markinu. Spurning hvort þetta skráist sem skot?
54. mín
Alpha Conteh með lipra takta og sendir hann fyrir markið þar sem Aron Birkir slær boltann út í teiginn en Þórsarar bjarga sér fyrir horn.
53. mín
DAUÐAFÆRI!
Stefan Ljubicic fær hér algjört dauðafæri, nánast bara einn á móti marki en einhvern veginn nær Aron Birkir að koma sér fyrir og verja. Þetta var ekki góð afgreiðsla.

Ljubicic verður að fara að klára þessi færi sem hann er að fá.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
51. mín
Þórsarar með bolta inn á teiginn sem Ásgeir Orri gerir vel í að kýla frá markinu.
47. mín
Breki Baxter núna með skot sem fer vel fram hjá markinu.
46. mín
Keflvíkingar byrja seinni hálfleikinn á að fá hornspyrnu sem Aron Birkir nær til og Þórsarar fá markspyrnu svo.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn!
Við erum komin aftur af stað!
45. mín
Ég vil taka það fram að ég var ekki sofandi frá mínútu 6 til 34 þó það líti þannig út ef textalýsingin er skoðuð núna. Það var fullt af færslum til staðar en þær af einhverri ástæðu hurfu allar. Leiðindamál en svona er þetta bara.
45. mín
Tölfræðin úr fyrri hálfleiknum
Skot: Keflavík 8 - 0 Þór
Skot á mark: Keflavík 3 - 0 Þór
xG: Keflavík 1,30 - 0,00 Þór
Snertingar í teig andstæðings: Keflavík 15 - 4 Þór
Með bolta: Keflavík 53% - 47%
Hornspyrnur: Keflavík 4 - 2 Þór
45. mín
Það er kominn hálfleikur og heimamenn leiða mjög sanngjarnt. Ég skal sanna það með tölfræði eftir smá.
45. mín
Þórsarar í bullandi brasi en boltinn fer aftur fyrir í hornspyrnunni.
45. mín
Einni mínútu bætt við
Keflvíkingar fá hornspyrnu þegar uppbótartíminn hefst.
43. mín
Atli Sigurjóns með hornspyrnu sem fer yfir allan pakkann og í innkast hinum megin á vellinum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
40. mín
Keflvíkingar fagna!
Það er rosalega mikið haldið í Stefan Ljubicic og hér er loksins flautað á það. Keflvíkingar í stúkunni fagna kaldhæðnislega að það sé loksins flautað á þetta.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
39. mín
Úðarinn allt í einu kominn í gang hér á hliðinni. Skrautlegt en þeir eru fljótir að slökkva á honum.
36. mín
Þórsarar hafa ekki enn átt marktilraun og staðan er 1,30 - 0,00 í xG-bardaganum. Segir svolítið mikið um sögu leiksins.

Færið sem Alghoul fékk áðan var 0,57 í xG. Erfitt að klúðra því.
35. mín
Keflavík er enn að stjórna ferðinni en Þórsarar eru að vinna sig meira inn í leikinn og voru að fara illa með ágætis stöðu hérna rétt áðan.
34. mín
Einhverjar smá tæknilegir örðugleikar þar sem fjöldinn allur af færslum hefur horfið úr kerfinu.
Keflavík
6. mín
FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!

Marin Brigic (stoðsending: Þorlákur Breki Þ. Baxter)

Það eru Keflvíkingar sem taka forystuna!

Taka hornspyrnu stutt og boltinn berst svo aftur út til vinstri á Þorlák Breka Baxter sem leikur sér aðeins með boltann og á svo geggjaða sendingu inn á teiginn. Mér sýnist það alveg örugglega vera Marin Brigic sem kemur á ferðinni og stangar boltann inn.

Breki Baxter fékk góðan tíma til að koma boltanum inn á teiginn og hann nýtti sér það vel.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
5. mín
Gestirnir eru að stilla svona upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
3. mín
Alghoul með hornspyrnu sem er skölluð frá. Keflvíkingar koma boltanum aftur inn á teiginn og Nacho rétt missir af honum!
2. mín
Eiður Orri með skot Arnar Birkir ver í horn. Núna fær Keflavík hornspyrnu.
2. mín
Þórsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins en Keflvíkingar hreinsa frá.
1. mín
Svona eru Keflvíkingar að stilla upp
Mynd: Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson


Alpha Conteh kemur inn í liðið frá 1-1 jafnteflinu gegn Stjörnunni en hann mátti ekki spila þann leik þar sem hann er í láni frá Garðabæjarfélaginu. Hann kemur inn fyrir Dag Inga Valsson.
1. mín
Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Liðin eru að ganga út á völl. Þórsarar eru byrjaðir að láta í sér heyra!
Fyrir leik
Ívar Orri með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Ívar Orri Kristjánsson er dómari þessa leiks. Honum til aðstoðar eru Birkir Sigurðarson og Kristófer Bergmann úr Kópavogi. Eftirlitsmaður er Frosti Viðar Gunnarsson og fjórði dómari er Róbert Þór Guðmundsson.
Fyrir leik
Rétt hugarfar og ákefð það sem þarf
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Hvernig nær Þór í góð úrslit á móti Keflavík?

„Það fyrsta sem þarf að gerast er að menn mæti á svæðið með rétt hugarfar. Eins og allir vita þá hefur Keflavík átt fína byrjun á tímabilinu, þeir eru með tveimur stigum meira en við í deildinni og eru með öflugan heimavöll sem við höfum átt í erfiðleikum með að koma á síðustu tvö ár. Við gerðum jafntefli í fyrra og töpuðum þar á undan. Við förum og spilum okkar leik, við þurfum að laga það sem fór úrskeiðis í síðasta leik. Það var hugarfarslegs eðlis, vantaði upp á ákefðina sem er alls ekki það sem við viljum standa fyrir og alls ekki það sem mun koma okkur á þann stað sem okkur langar að vera á."

Hefur spilamennska Keflavík komið þér á óvart miðað við það sem þú sást í fyrra?

„Nei, alls ekki. Keflavík er með mjög góðan hóp og eru óhræddir. Þeir þora að spila sinn leik, vita nákvæmlega hvað þeir standa fyrir og spilamennskan kemur mér ekki á óvart. Þeir eru taktískt öflugir, eru með fína reynslu í liðinu, þekkja leikstílinn sinn í húð og hár. Þetta er vel smurð vél sem tikkar og það hjálpar mikið."

Fyrir leik
,,Við þurfum að hafa fyrir öllu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Hvernig leggst það í þig að mæta Þórsurum sem hafa tapað fjórum leikjum í röð?

„Þórsararnir hafa sýnt góða leiki, unnu Val og svo Framarana, voru í hörkuleik á móti KA sem er kannski smá leikur utan sviga (verandi nágrannaslagur). Ég held það sé rosalega mikilvægt fyrir okkur að fara ekki út úr því sem við erum að gera, halda áfram því sem við höfum gert í byrjun móts. Við erum á heimavelli og viljum spila skemmtilegan fótbolta, en við þurfum að halda í gildin sem við höfum verið með. Þá náum við vonandi í góð úrslit," segir Halli.

Á hverju er þetta að fara ráðast?

„Við þurfum að mæta með höfuðið skrúfað rétt á og tilbúnir í bardaga. Það eru allir leikir erfiðir í þessari deild, hvern og einn á sinn hátt. Við þurfum að hafa fyrir öllu og þá þyrstir örugglega í sigur. Ég býst við hörkuleik og vonandi skemmtilegur."

Fyrir leik
Það er heldur betur farið að styttast í leikinn. Hamborgarakeimurinn umlykur allt og það er mikil stemning í lofti. Það er smá rigning í Keflavík og það eru bara prímaaðstæður fyrir góðan fótboltaleik hérna í kvöld.
Fyrir leik
Viðtöl við þjálfarana
Sæbjörn Steinke, stundum kallaður Steinkegeitin, gerði sér lítið fyrir og ræddi við báða þjálfarana í aðdraganda þessa leiks. Hérna eru tenglar á viðtölin og ég hvet fólk eindregið til að glugga yfir þau fyrir leikinn:


Fyrir leik
Ragnar Bragi spáir í spilin
Fylkismaðurinn Ragnar Bragi Sveinsson er spámaður umferðarinnar á Fótbolta.net en hann spáir heimasigri í þessum leik.

Keflavík 3 - 1 Þór
Komast snemma í 2-0, Þór minnkar muninn og svo mun Davíð sigla þessu heim fyrir Kef.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Hvernig fóru leikir þessara liða á síðasta tímabili?
Þegar liðin mættust hérna í Keflavík í fyrra var niðurstaðan 2-2 jafntefli þar sem varnarmennirnir Ásgeir Páll Magnússon og Marin Brigic skoruðu fyrir Keflavík á meðan Christian Greko Jakobsen og Sigfús Fannar Gunnarsson skoruðu fyrir Þór. Allir þessir leikmenn byrja í dag. Fyrir norðan var það Keflavík sem hafði betur, 2-4, og skoraði Gabríel Aron Sævarsson tvö mörk í þeim leik en hann spilar í dag með Haukum. Sigfús Fannar skoraði í báðum leikjunum gegn Keflavík í fyrra og spurning hvað hann gerir í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Kaldir Þórsarar
Það var meiri trú á Þór fyrir mót en þeim var samt sem áður spáð í fallbaráttu. Þórsarar fóru ágætlega af stað en hafa verið mjög kaldir að undanförnu og tapað fjórum leikjum í röð. Síðasti leikur hjá þeim var 1-2 tap gegn ÍA á heimavelli þar sem Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari liðsins, var verulega ósáttur við fyrri hálfleikinn hjá sínum mönnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Keflvíkingar hafa komið fólki á óvart
Það var minni trú á Keflavík en Þór áður en tímabilið hófst og var Keflvíkinum spáð niður í nánast öllum spám en þeir hafa verið flottir það sem af er sumri og spilað flottan fótbolta. Þeir sitja í áttunda sæti með átta stig en þeir gerðu 1-1 jafntefli gegn Stjörnunni í síðasta leik eftir að hafa unnið góðan 1-3 útisigur á ÍA þar áður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Nýliðaslagur af bestu gerð
Við erum að fara að fá hérna í kvöld nýliðaslag en þetta eru liðin tvö sem komust upp úr Lengjudeildinni á síðasta tímabili. Þór vann deildina á meðan Keflavík komst upp í gegnum umspilið þar sem þeir unnu HK á Laugardalsvelli.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrir leik
Umferðin verður gerð upp í beinni á morgun klukkan 12
Fyrir leik
Góðan daginn
Verið velkomnir kæru lesendur í beina textalýsingu frá leik Keflavíkur og Þórs í Bestu deild karla. Flautað verður til leiks klukkan 18:00 og munum við fylgjast með gangi mála hérna.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Áttunda umferðin hófst í gær með 2-2 jafntefli ÍA og ÍBV. Í kvöld lýkur umferðinni svo með fimm leikjum.

   22.05.2026 14:59
Sjáðu mörkin: Þrususpyrna Gísla Laxdals í 2-2 jafntefli ÍA og ÍBV

Föstudagur 22. maí
Besta karla
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.