Fotbolti.net
Besta deildin
Sigurður Bibbi
Besta karla
Greifavöllurinn
Örlítil austangola og 12 gráður. Geggjað knattspyrnuveður
KA
KA
0 - 1
Valur
Valur
0 - 141' Albin Skoglund
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Leik lokið!
Tap á heimavelli 0 - 1
Sárgrætilegt tap KA í jöfnum leik.
97. mín
Spyrnan
Rétt framhjá.
96. mín
Aukaspyrna
Brotið á Oliver rétt utan teigs. Hallgrímur tekur spyrnuna um 6 metrum utan teigs. Síðasti möguleiki heimamanna.
94. mín
Færi - horn
Eftir mikið bras á KA inni í eigin teig fær Bjarni Mark boltann og reynir skot sem varnarmaður kemst fyrir. Valur fær þá horn sem ekkert verður úr.
91. mín
Horn KA
Ekkert kemur út úr horninu nema Samúel Kári meiðist
90. mín
Viðbótartími
5 mínútur
89. mín
Horn KA
Horn frá hægri. Nú þarf að koma góður bolti. Hans fær boltann úti í teignum en hittir hann illa. Enginn hirðir hann svo Hans fær annan séns. Það skot fer í varnarmann og í horn sem ekkert kemur út úr
KA
85. mín
InnBreki Hólm Baldursson
ÚtDanijel Dejan Djuric
Tvöföld skipting
KA
85. mín
InnSnorri Kristinsson
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
Skiptingar hjá KA
Valur
84. mín
InnÓlafur Flóki Stephensen
ÚtMyles A Veldman
84. mín
Meiðsl
Nú liggur Myles Veldman
82. mín
Bylmingsskot
Markús Máni misreiknar háan bolta svo hann fellur fyrir Tryggva sem tíar hann upp fyrir Birki sem hamrar boltann en Steinþór grípur.
80. mín
aukaspyrna brot
Hallgrímur með aukaspyrnuna en brot inni í teig
Valur
79. mín
Brot

Myles A Veldman

Valur
75. mín
InnBirkir Heimisson
ÚtAlbin Skoglund
Enn fjölgar Þórsurum
Valsmenn bæta Þórsurum inn á völlinn.
KA
73. mín
InnValdimar Logi Sævarsson
ÚtSveinn Margeir Hauksson
Tvöföld skipting
KA gerir tvöfalda skiptingu
KA
73. mín
InnKári Gautason
ÚtBirgir Baldvinsson
Tvöföld skipting
KA gerir tvöfalda skiptingu
71. mín
Skot Valur
Tryggvi ber upp boltann og leggur á Lúkas Loga sem á skot framhjá
69. mín
Aukaspyrna
Hallgrímur finnur Markús Mána sem skallar framhjá
Valur
67. mín
Brot

Lúkas Logi Heimisson

KA
66. mín
Brot

Hallgrímur Mar Steingrímsson

Hallgrímur fer aftan í Bjarna
64. mín
Skot
Jeppe og Hallgrímur leika boltanum á milli sín framan við teiginn og endar á að Jeppe á skot í varnarmann
61. mín
Horn Valur
Horn frá vinstri sem berst fyrir markið og skallað yfir.
60. mín
Horn Valur
Horn frá hægri sem endar sem horn frá vinstri
KA
60. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtJakob Héðinn Róbertsson
KA gerir breytingu
KA sá að það borgaði sig að hafa Þórsara inn á þannig að þeir setja einn inn á.
58. mín
Gott færi KA
Birgir rífur sig framhjá varnarmönnum Vals og leggur boltann á Jakob Héðinn sem á skot rétt framhjá markinu.
56. mín
Meiðsl
Lúkas Logi fær höfuðhögg en jafnar sig fljótt
50. mín
Horn Valur
Það verður ekkert úr horninu
49. mín
Hálffæri
Bigir Baldvins fær boltann uppi vinstra megin leggur út en enginn KA maður þar þannig að Valur rýkur upp en KA kemur boltanum í horn
47. mín
Horn KA
KA fær horn frá vinstri. Hallgrímur tekur stutt á Jeppe sem leggur hann aftur á Hallgrím sem sendir fyrir en ekkert kemur út úr þessu
Valur
46. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtAdam Ægir Pálsson
Valur gerir skiptingu
Skipting í hálfleik
46. mín
Seinni byrjaður
45. mín
Breyting á leiknum
Fram að markinu sem Valur skoraði var KA mun meira með boltann og Valsmenn féllu til baka. Eftir markið snerist dæmið við og Valsmenn þorðu að koma framar.

Seinni hálfleikur verður eflaust skemmtilegur.
45. mín
0 - 1
45. mín
Dauðafæri
Djuric með frábæra sendingu inn á Oliver sem er einn á móti Frederik sem kemur út á móti. Djuric snýr boltann yfir hann og í fjærstöngina. Þarna skall hurð nærri hælum
45. mín
Viðbótartími
3 mín bætt við
44. mín
Skoglund staðinn upp
KA menn léku sér að eldinum þarna. Skoglund var rétt aðeins of seinn í boltann og fékk þar af leiðandi ekki víti.
43. mín
Meiðsl
Eftir markið kemur Valur boltanum upp að teig þar sem Skoglund er tæklaður og meiðist. KA sækja upp en Hólmar vinnur boltann og setur hann út af.
Valur
41. mín
Stöng og mark

Albin Skoglund

Tryggvi fær boltann inni í teig vinstra megin og snýr boltann yfir Steinþór í fjærstöngina. Skoglund er fyrstur að átta sig og hirðir frákastið og setur hann í markið
39. mín
hálffæri
Eftir tæklingu á vallarhelmingi Vals fær Oliver boltann og leggur inn í teig en Sveinn Margeir ekki nógu grimmur.
37. mín
Þróun leiksins
Valsmenn hafa leyft KA að sækja á sig og gefið þeim óheyrilega mikinn tíma til að byggja upp sóknir. KA hefur fengið einhver hálffæri en ekkert meira.
33. mín
Skot framhjá
Jeppe reynir skot frá vítateig en framhjá
32. mín
Dauðafæri
Guðjón leggur boltann inn fyrir á Oliver sem kemur honum strax fyrir markið þar sem Sveinn mætir en hittir ekki boltann
31. mín
Horn KA
Birgir reynir sendingu fyrir en Valur bjargar í horn frá vinstri. Dæmt sóknarbrot í teignum.
25. mín
Skot KA
Hallgrímur fær boltann upp við teiginn vinstra megin, fær að leggja hann fyrir sig og skýtur á markið en Schram slær hann í horn. Horn frá hægri á fjær stöng þar sem Oliver nær skalla en aftur er Schramarinn vel vakandi og grípur
23. mín
Horn Valur
Valsmenn sækja hratt og fá horn frá hægri. Tryggvi tekur og boltinn berst út á Lúkas Loga sem á skot beint á Steinþór
22. mín
Góð sókn
Jeppe með langan bolta þvert yfir völlinn á Guðjón sem leggur hann inn á Svin sem kemur honum fyrir en Frederik slær hann frá.
21. mín
Horn Valur
Valsmenn fá horn frá hægri sem ekkert verður úr.
20. mín
Hröð sókn
KA tapar boltanum þegar flestir leikmenn þeirra eru komnir upp og Valsmenn sækja hratt og fá horn.
18. mín
Gott skot Valur
KA menn missa boltann þegar Sveinn Margeir á lausa sendingu beint á Bjarna sem kemur honum strax á Adam Ægi sem veður upp að vítateig KA og á hörkuskot rétt yfir markið
14. mín
Leikur að eldi
Steinþór með boltann og Adam Ægir pressar hratt en Steinþór hinn rólegasti platar Adam, þó ekki með epli
11. mín
Horn frá hægri KA
Hætta skapaðist í vítateig Vals eftir hornið en boltinn fer í hliðarnet
Valur
10. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtOrri Sigurður Ómarsson
Skot og skipting
Tryggvi kemst upp að vítateig og á skot framhjá. Þá gera Valsmenn skiptingu og setja Þórsara inn á. Það er ávísun á eitthvað :-) Jakob Franz kemur inn fyrir Orra sem yfirgefur vegna meiðsla.
8. mín
Aukaspyrnar
Tryggvi Hrafn tekur aukaspyrnu úti hægra megin beint á kollinn á Bjarna Mark sem skallar framhjá. Í hamaganginum meiðist Orri
6. mín
Laus skalli
Boltinn berst inn í teig Valsmanna þar sem Oliver nær skalla en beint í Frederik Schram
5. mín
Fyrirgjöf
Líkas Logi ber boltann upp og leggur á Veldman sem á fyrirgjöf sem Steinþór grípur
2. mín
Horn
KA fær horn frá hægri en ekkert verður úr
2. mín
Víti
Guðjón Ernir fær glæsilega sendingu frá Jeppe yfir á hægri kant sem sendi fyrir og þar mætti Sveinn Margeir en fékk smá púst sem var ekki nóg í víti
1. mín
KA byrjar
Fyrir leik
Viðbót
Skv. fréttum hér á miðlinum verður Ari Leifs leikmaður Vals í júlí. Hann hlýtur samt að hugsa sig um ef Fylkir verður á toppi Lengjudeildar og mætir þá í Árbæinn. ;-)
Fyrir leik
Markahæstir
Heimamenn hafa skorað 9 mörk og hafa þau dreifst ansi vel. Margir með eitt mark en Hallgrímur Mar er þó kominn með tvö og þar með markahæstur heimamanna í ár.

Markahæstir gestanna sem hafa náð að skora 16 mörk i deildinni í ár eru Adam Ægir og Tryggvi Hrafn með sitt hvor þrjú mörkin. Dagur Orri og Lúkas Logi hafa sett sín hvor tvö mörkin. Aðrir með eitt.
Fyrir leik
Fyrri leikir
KA og Valur hafa mæst 58 sinnum. KA hefur unnið 12 leiki en Valur 33. Jafntefli hefur verið niðurstaðan í 13 leikjum.

Þarna hallar talsvert á KA sem vilja eflaust laga þessa tölfræði í kvöld.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, gerir tvær breytingar á sínu liði frá sigrinum gegn FH í síðustu umferð. Guðjón Ernir og Jakob Héðinn koma inn fyrir Kára Gautason sem sest á bekkinn en Samuel Kroon er ekki með. Hinn ungi Þórir Hrafn Ellertsson kemur inn í hópinn en Jóan Símun Edmundsson er utan hóps.

Hermann Hreiðarsson, þjálfari Vals, gerir enga breytingu á sínu liði frá sigrinum gegn Breiðabliki. Þeir Birkir Heimisson og Markus Nakkim koma inn á bekkinn. Varnarmaðurinn Nakkim hefur glímt við meiðsli í upphafi leiktíðar.
Fyrir leik
Umferðin verður gerð upp í þráðbeinni á X977 á morgun
Fyrir leik
KA sótti sigur í Hafnarfjörð
Eftir niðurlægjandi tap gegn Ægi í bikarnum náði KA-liðið að snúa bökum saman og vinna FH í síðustu umferð. Eins og oft áður hafa þeir gulu verið frekar kaflaskiptir á tímabilinu og eru þeir með 10 stig í sjötta sætinu.

Fyrir leik
Endurkomusigur Valsara
Valur er með 12 stig í fimmta sæti, tveimur stigum á undan KA. Hlíðarendapiltar unnu endurkomusigur gegn Breiðabliki í síðasta leik. Mikið stuð.

Fyrir leik
Goddurinn með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Plötusnúðurinn Gunnar Oddur Hafliðason, DJ Goddzilla, er með flautuna hér á Greifavellinum í kvöld þar sem KA tekur á móti Val. Eysteinn Hrafnkelsson og Antoníus Bjarki Halldórsson eru aðstoðardómarar og Sveinn Arnarsson fjórði dómari. Eftirlitsmaður KSÍ er Þóroddur Hjaltalín.
Fyrir leik
8. umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net

Áttunda umferðin hófst í gær með 2-2 jafntefli ÍA og ÍBV. Í kvöld lýkur umferðinni svo með fimm leikjum.

   22.05.2026 14:59
Sjáðu mörkin: Þrususpyrna Gísla Laxdals í 2-2 jafntefli ÍA og ÍBV

Föstudagur 22. maí
Besta karla
18:00 KA-Valur (Greifavöllurinn)
18:00 Keflavík-Þór (HS Orku völlurinn)
19:15 Víkingur R.-FH (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Fram (Samsungvöllurinn)
19:15 Breiðablik-KR (Kópavogsvöllur)

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.