Fotbolti.net
Besta deildin
Hafþór Örn Laursen
Hafþór Örn Laursen
Besta kvenna
Kaplakrikavöllur
U.þ.b. 8° gráður, smá gola og súld
FH
FH
6 - 2
Fram
Fram
Ingibjörg Magnúsdóttir 15'1 - 01 - 119' Taylor Marie Hamlett1 - 243' Taylor Marie HamlettNia Raisa Christopher 50'2 - 2Nia Raisa Christopher 62'3 - 2Helena Maree Errington 65'4 - 2Hafrún Birna Helgadóttir 83'5 - 2Nia Raisa Christopher (víti) 90'6 - 2
Dómari: Ronnarong Wongmahadthai
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
Ég þakka kærlega fyrir samfylgdina í dag! Stórsigur FH í dag!

Viðtöl og skýrsla koma á eftir!
91. mín
Þremur bætt við
FH
90. mín
Mark úr víti!

Nia Raisa Christopher

Hún slúttar þessu örugglega! Þrenna fyrir Niu sem hefur svo sannarlega breytt leiknum eftir hún kom inná!
90. mín
VÍTI FYRIR FH
Ingibjörg er tekinn niður og enginn vafi um að þetta sé víti! Nia stígur! Ætlar hún að klára þrennuna?
FH
83. mín
Þær klára þetta!!

Hafrún Birna Helgadóttir

Það myndast einhver darraðardans inn í teig hjá Fram. Hafrún fær boltann og sendir hann í gegnum þvögina í neðra hægra hornið!
FH
81. mín
InnElín Björg Norðfjörð Símonardóttir
ÚtÍda Marín Hermannsdóttir
Seinasta skipting FH, frábær leikur hjá Ídu!
80. mín
Fram vill fá eitthvað fyrir sinn snúð, sé ekki hver fellur inn í teig en Framarar ekki sáttir við Ronnarong
79. mín
Hveeeeeernig fór hann ekki inn??
Taylor fær boltann eftir að Aldís ver gott skot. Taylor skýtur boltann í fyrsta sem Aldís ver, nær frákastinu aftur og reynir aftur í fyrsta! Boltinn fer hins vegar af varnarmanni FH og í horn!
Fram
74. mín
InnJúlía Margrét Ingadóttir
ÚtAlda Ólafsdóttir
71. mín
Ída hleypur upp hægri vænginn, leikur á Höllu, reynir síðan við skotið en Ashley fær þennan bolta beint á sig
FH
69. mín
InnHrönn Haraldsdóttir
ÚtHelena Maree Errington
68. mín
Horn fyrir FH
Þær ná ekki að nýta sér þetta og Fram hreinsar. Aldís er kominn út úr teig FH og Katrín reynir skotið úr sínum eigin helming en boltinn fremur laus og FH vinnur hann til baka
Fram
67. mín
Gult spjald

Halla Helgadóttir

Fyrsta spjaldið komið á loft, brýtur á Niu
FH
65. mín
Já sæll!!

Helena Maree Errington (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)

Við erum með .svakalegan leik!! Ingibjörg leikur á einn, sendir lágan bolta inn og þar er Helena mætt og hamrar knettinum inn!!

Tvær stoðsendingar og mark fyrir Ingibjörgu sem er að eiga stórleik!
FH
62. mín
InnHafrún Birna Helgadóttir
ÚtThelma Lóa Hermannsdóttir
FH
62. mín
HÚN BÆTIR ÖÐRU VIÐ!!

Nia Raisa Christopher

Fær boltann eftir frákast og tekur svakalegt volley!!

Við erum með leik!!
57. mín
Birna Kristín með lágt skot utan af teig sem fer rétt framhjá! FH-konur búnar að skjóta þremur skotum utan af teig núna á 3 mínútum!
55. mín
FH búið að vera dominerandi í seinni hálfleik eins og er! Á meðan ég skrifa þetta reynir Deja Jaylyn með svakalegt skot fyrir utan teig sem Ashley ver í horn!
FH
50. mín
Nia jafnar þetta!!

Nia Raisa Christopher (stoðsending: Ingibjörg Magnúsdóttir)

Hún var ekki lengi að koma sér af stað! Fær boltann í teiginn frá Ingibjörgu, og sneiðar honum svo inn yfir línuna! Seinni lofar svo sannarlega góðu!
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
Fram sparkar seinni af stað!
Fram
45. mín
InnHalla Helgadóttir
ÚtFreyja Dís Hreinsdóttir
Bæði lið gera breytingar fyrir seinni hálfleik. Sýndist það vera Freyja sem fer útaf
FH
45. mín
InnBirna Kristín Björnsdóttir
ÚtMackenzie Elyze Smith
FH
45. mín
InnNia Raisa Christopher
ÚtBerglind Freyja Hlynsdóttir
45. mín
Hálfleikur
Ekki bætti hann miklu við
Skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki!

Tökum okkur korter!
Fram
43. mín
Fram komið yfir!

Taylor Marie Hamlett (stoðsending: Brookelynn Paige Entz)

Þær ná að koma honum yfir á Taylor sem bætir sínu öðru marki við í dag!

Frábær sending frá Brookelynn!
41. mín
Fram fær horn
Una sendir lágan bolta inn, endar á Hörpu en Ronnarong fer fyrir boltann og stoppar sókn Fram
37. mín
FH nælir sér í horn
Andrea Rán þrumar boltanum í teig en boltinn fer yfir allan mannskapinn og endar í innkasti
31. mín
Fín sókn hjá FH! Ingibjörg leikur á Katrínu S., reynir boltann inn, Fram hreinsar en Anna nær frákastinu. Krossar inn en Fram hreinsar aftur. En FH að sýna yfirburði seinustu 3 mínútur
29. mín
Lítið að gerast eftir hornspyrnuna
22. mín
Horn fyrir FH
Spila þetta stutt, smá einn tveir, renna boltanum yfir á Helenu sem reynir skot utan af teig sem Ashley nær að verja í annað horn!

FH-konur ná hins vegar ekki að nýta sér þetta horn
Fram
19. mín
LITLA HLAUPIÐ!

Taylor Marie Hamlett

Þetta kom upp úr þurru! Fram sendir boltann upp völlinn og Taylor hleypur eldfjót á eftir boltanum! Hristir af sér varnarmann og slúttar honum í vinstri vinkilinn!!
FH
15. mín
FH SKORAR!!!

Ingibjörg Magnúsdóttir

Thelma Lóa fær boltann á hægri kantinum, nær að hrista Hörpu af sér, reynir fyrirgjöfina inn í teig þar sem Ashley er mætt, en hún missir boltann klaufalega úr höndunum á sér, en þar er Ingibjörg mætt og potar honum inn!
13. mín
FH fær horn
Fram nr að hreinsa boltanum langt í burtu, FH nær ekki að nýta þetta
12. mín
Dauðafæri fyrir FH, eru með boltann vinstra megin við teiginn, ná sendingunni inn á Helenu og boltinn rúllar hægt og rólega eftir skot hennar sem endar í markspyrnu
9. mín
Sýnist það vera Taylor sem á skot, fínn undirbúningur í þessari sókn en skotið aðeins of laust og beint á Aldísi í marki FH
6. mín
Lítið að gerast fyrstu mínúturnar, Fram hefur verið í vallarhelmingi FH seinustu mínútu eða svo en ekki náð að skapa sér almennilegt færi
1. mín
Leikur hafinn
Það er FH sem sparkar þessu af stað! Góða skemmtun!
Fyrir leik
FH-stelpur munu spila í splunkunýjum treyjum, sem eru til styrktar Einstakra Barna! Virkilega vel heppnuð treyja hjá FH!
Mynd: FH

Fyrir leik
Byrjunarliðsfréttir
Inn fyrir FH koma Helena Maree Errington og Berglind Freyja Hlynsdóttir.

Anton Ingi gerir engar breytingar á sínu liði frá leik Fram gegn Þór/KA
Fyrir leik
Spá leiksins!
Þjálfarinn Arnar Páll setti fram spá fyrir 7. umferð og hafði þetta að segja um leikinn í dag!

FH 4 - 1 Fram (14:00 á morgun)
Ætla að spá jafnari leik út á velli en maður ætti að búast við. Fram mun skapa færi en býst ekki við að þær nái að nýta þau öll til að fá eitthvað útur þessu. FH fylgir eftir frábærum sigri og tekur þetta 4-1, sá sem dekkar Ingibjörgu í þessum vill gleyma þessum leik sem fyrst.
Fyrir leik
Dómaramál
Dómari leiksins er Ronnarong Wongmahadthai, en aðstoðadómarar eru Tomasz Piotr Zietal, Heimir Árni Erlendsson og Óliver Thanh Tung Vú.

Eftirlitsmaður er Þorsteinn Ólafs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Innbyrðis viðureignir
Ef maður grúskar í þessi lið og þeirra innbyrðis viðureignir er margt hægt að sjá!

Þessi lið hafa mæst 24 sinnum í gegnum tíðina samkvæmt KSÍ, en FH hefur sigrað 11 leiki, Fram sigrað 9 og liðin skilið jöfn fjórum sinnum.

Fyrsti leikur milli þessa liða fór fram 1972 í 1. deild kvenna, en sá leikur fór 0-0. En það gæti verið villandi þar sem á síðu KSÍ stendur að fyrstu 18 viðureignir þessa liða voru 0-0 jafntefli! Það getur ábyggilega ekki staðist! En einhver sem er fróðari en ég í þessum málum getur kannski upplýst mig um þetta!

Seinasti leikur milli beggja liða fór 3-1 fyrir FH, en fyrir FH skoruðu Maya Lauren Hansen og Thelma Karen Pálmadóttir, en mark Fram skoraði Murielle Tiernan!
Fyrir leik
Fram
Fram situr í 9. sæti með 4 stig eftir 6 umferðir, en Fram sigraði Þór/KA í seinustu umferð 3-2! Alda Ólafsdóttir innsiglaði sigurinn fyrir Fram með marki á 49. mínútu, en hún skoraði tvö mörk í þessum leik og var því valin í sterkasta lið umferðarinnar!

Lestu um leikinn!

Með sigri í dag og ef úrslit fara þeim í hag, geta Framstelpur komist upp í 7. sæti!
Fyrir leik
FH
FH hefur farið vel af stað en liðið situr í 2. sæti með 13 stig, aðeins tveimur eftir Breiðablik! Ef Blikastelpur tapa gegn Grindavík/Njarðvík og FH sigrar þennan er FH komið í efsta sæti!

Seinasti leikur FH var einmitt gegn Breiðablik en sá leikur var æsispennandi, en þar fóru leikar 2-3 fyrir FH þar sem Ída Marín Hermannsdóttir skoraði úr vítaspyrnu til að innsigla sigurinn!

Lestu um leikinn!

Ingibjörg Magnúsdóttir var valin sterkust í 6. umferð, en hún hefur vakið mikla athygli og spurningin er hvort hún muni spila á Íslandi á næsta tímabili! Einnig voru þjáfarar FH, Guðni og Hlynur Eiríkssynir fyrir valinu sem þjálfarar umferðarinnar!
Fyrir leik
Góðan og margblessaðan daginn kæru lesendur og verið velkomin á þráðbeina textalýsingu frá Kaplakrikavelli þar sem FH tekur á móti Fram í 7. umferð Bestu Deildar kvenna!
Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.