Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
Fylkir
0
0
Þróttur R.
06.06.2026  -  14:00
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Sagan með Árbæingum í liði Viðureign liðanna hér í dag er sú fimmtugasta í sögunni samkvæmt KSÍ og í hinum 49 leikjunum hafa Fylkismenn verið með yfirhöndina. 26 leikir hafa endað með sigri Fylkis, 9 leikir hafa lokið með jafntefli og hafa Þróttarar unnið 14 leiki.

Þróttarar voru þó með yfirhöndina í fyrra þar sem báðum leikjunum í Lengjudeildinni lauk með sigri Þróttar þar sem leikirnir unnust 2-1 í Laugardalnum annars vegar og 1-2 í Árbænum hins vegar.

Við þurfum því að fara rúm tvö ár aftur í tímann til þess að finna Fylkissigur en var það 29. febrúar árið 2024 í Lengjubikarnum.
Fyrir leik
Mikið um að vera í dag Margir leikir í boltanum í dag en engu að síður er stórleikur dagsins hér í Árbænum.

Fyrir leik
Þróttur Þróttur er í fjórða sæti deildarinnar, en aðeins þremur stigum frá toppnum. Með sigri fara upp um þrjú sæti og munu því fara einnig á topp deildarinnar þannig það er mikið í húfi fyrir bæði lið hér í dag.
Örn Bragi Hinriksson, fæddur árið 2007, er markahæsti maður Fylkis með fimm mörk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Fylkir Árbæingar sitja í 2. sætinu þar sem þeir eru einu stigi frá toppliðinu, Aftureldingu, sem tapaði í gær gegn HK. Með sigri í dag tylla þeir sér því á toppinn þrátt fyrir þungt tap gegn Mosfellingum í síðustu umferð.
Guðmundur Tyrfingsson er markahæsti maður Fylkis með fjögur mörk í aðeins fimm leikjum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Dómarateymið Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í dag og honum til halds og trausts sem aðstoðardómarar verða Birkir Sigurðarson og Jovan Subic. Halldór Breiðfjörð Jóhannsson verður dómaraeftirlitsmaður dagsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Árbærinn heilsar Góðan daginn og velkomin í þráðbeina textalýsingu fyrir leik Fylkis og Þróttar í 8. umferð Lengjudeildar karla.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Sæl öll og velkomin í textalýsingu fyrir Reykjavíkurslaginn þar sem Fylkir tekur á móti Þrótti í Árbænum.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: