Arsenal og Liverpool í baráttu um Barcola - Ndiaye orðaður við stórlið - Vieira til Forest?
Besta karla
Keflavík
LL 1
2
FH
Besta karla
Þór
LL 1
4
ÍBV
Keflavík
1
2
FH
0-1 Adolf Daði Birgisson '26
0-2 Kjartan Kári Halldórsson '41
Stefan Ljubicic '93 1-2
14.06.2026  -  17:00
HS Orku völlurinn
Besta karla
Aðstæður: Það er bongó!
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:
1. Ásgeir Orri Magnússon (m)
4. Nacho Heras (f) ('69)
5. Davíð Helgi Aronsson
8. Þorlákur Breki Þ. Baxter ('69)
10. Stefan Ljubicic
11. Muhamed Alghoul
18. Ernir Bjarnason ('82)
20. Marin Brigic
21. Alpha Conteh
22. Ásgeir Páll Magnússon
23. Eiður Orri Ragnarsson ('69)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
30. Rúnar Gissurarson (m)
3. Axel Ingi Jóhannesson ('69)
6. Sindri Snær Magnússon
7. Dagur Ingi Valsson ('69)
9. Halid Alghoul
14. Marin Mudrazija ('69)
25. Frans Elvarsson
28. Viktor Árni Traustason ('82)
47. Egill Valur Karlsson
- Meðalaldur 27 ár

Liðsstjórn:
Haraldur Freyr Guðmundsson (Þ)
Guðmundur Árni Þórðarson (Forráðam.)
Jónas Guðni Sævarsson (Leikgr.)
Ómar Jóhannsson (MÞ)
Lucija Roncevic (Sjúkraþj.)
Óskar Rúnarsson (Leikgr.)
Hólmar Örn Rúnarsson (AÞ)

Gul spjöld:
Stefan Ljubicic ('38)
Marin Brigic ('40)
Muhamed Alghoul ('40)

Rauð spjöld:
Skýrslan
@gummi_aa Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skýrslan: Birtir aðeins til yfir Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Gamla klisjan, FH-ingar vildu þetta meira. Keflvíkingar byrjuðu aðeins betur en þegar líða tók á fyrri hálfleikinn þá uxu FH-ingar inn í leikinn. Þeir skoruðu og bættu svo við marki fyrir leikhlé. Í seinni hálfleik gerðu FH-ingar þetta mjög fagmannlega en baráttan hjá þeim var til fyrirmyndar allan leikinn. Eitthvað sem þeir klárlega geta byggt á.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Kári Halldórsson (FH)
Skoraði frábært mark, eitt af mörkum tímabilsins til þessa. Maður hefur saknað þess að sjá þennan Kjartan Kára í sumar. Var áræðinn og kraftmikill. Þarf að taka þetta með sér inn í framhaldið.
2. Úlfur Ágúst Björnsson (FH)
Var táknmyndin fyrir það sem FH gerði svo vel í leiknum; baráttuandi, dugnaður og að vinna fyrir hvorn annan. Hann var út um allt og lagði gífurlega mikið á sig fyrir liðið.
Atvikið
Seinna markið sem Kjartan Kári skoraði fyrir FH. Það gerði stöðuna þægilegri og markið kom á besta tíma. Svo var það stórt atvik þegar Keflvíkingar klúðruðu dauðafæri í byrjun seinni hálfleiks.
Hvað þýða úrslitin?
Það er heldur betur farið að birta til úti og það birtir núna aðeins yfir Kaplakrika eftir erfiðan tíma í byrjun tímabilsins. Þessi frammistaða og þessi úrslit eru klárlega eitthvað sem þeir geta byggt á fyrir framhaldið. Keflavík hefur tapað tveimur í röð og þeir þurfa finna sjálfstraustið aftur.
Vondur dagur
Sóknarmaðurinn Stefan Ljubicic skoraði en hann hefði getað skorað fleiri mörk í leiknum. Sérstaklega fór hann illa með færi í byrjun seinni hálfleiks. Varnarlína Keflavíkur hefur líka átt betri leiki og Nacho Heras kannski sérstaklega en hann leit ekki vel út í seinna markinu hjá FH.
Dómarinn - 7
Mér fannst Twana dæma þennan leik bara vel. Var með ágætis stjórn á leiknum. Svolítið spjaldaglaður en bara fínn. Held að rangstöðudómurinn í fyrri hálfleik hafi verið réttur þó það hafi verið tæpt.
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
3. Kristján Snær Frostason ('67)
6. Grétar Snær Gunnarsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Kristján Flóki Finnbogason
19. Aron Jónsson
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson
33. Úlfur Ágúst Björnsson ('67)
37. Baldur Kári Helgason
90. Arnór Borg Guðjohnsen ('5)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
2. Birkir Valur Jónsson ('67)
10. Sverrir Páll Hjaltested ('67)
14. Adolf Daði Birgisson ('5)
32. Gils Gíslason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
39. Benjamín Bæring Þórsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
66. Viktor Nói Vidarsson
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Arnar Sigþórsson (Leikgr.)
Benjamin Gordon Mackenzie (Styrktarþj.)
Númi Már Atlason (Sjúkraþj.)
Kjartan Sturluson (MÞ)
Guðmundur Jón Viggósson (Liðsstj.)
Árni Freyr Guðnason (AÞ)

Gul spjöld:
Ísak Óli Ólafsson ('17)
Adolf Daði Birgisson ('77)

Rauð spjöld: