Arsenal og Liverpool berjast um Barcola - Stærstu félögin vilja leikmann Everton

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Bradley Barcola er orðinn heitasti bitinn á markaðnum, Barcelona virðist vera að tapa baráttunni um Marcus Rashford og stærstu félög Englands fylgjast grannt með leikmanni Everton. Þetta er meðal þess sem kemur fram í Powerade-slúðrinu í dag.
Paris Saint-Germain er ekki mótfallið því að selja franska sóknarmanninn Bradley Barcola (23) í sumarglugganum, en Arsenal og Liverpool eru meðal félaga sem hafa áhuga á Evrópumeistaranum. (L'Equipe)
Brighton hefur hafnað 20 milljóna punda tilboði Coventry City í enska markvörðinn Carl Rushworth (24). (Sky Sports)
Bayern München ætlar að stela Marcus Rashford (28) frá Barcelona, en Englendingurinn var á láni hjá Börsungum frá Manchester United á síðustu leiktíð. Börsungar hafa hins vegar verið tregir við að taka í gikkinn og gera kaupin varanleg. (Fichajes)
Iliman Ndiaye (26), miðjumaður Everton og senegalska landsliðsins, er eftirsóttur. Englandsmeistarar Arsenal eru komnir með hann á óskalistann, en Man City og Man Utd fylgjast einnig með stöðunni. (Mail)
Nottingham Forest hefur lagt fram tæplega 25 milljóna punda tilboð í Fabio Vieira (26), miðjumann Arsenal, sem var frábær á láni hjá Hamburger SV á síðustu leiktíð. (Football Insider)
Forest gæti einnig bætt Davide Frattesi (26) við hópinn, en hann er samningsbundinn Inter á Ítalíu. Hann er ekki inni í myndinni hjá Inter. (Football Italia)
Atlético Madríd hefur fundið arftaka Antoine Griezmann, en það er suður-kóreski sóknartengiliðurinn Lee Kang-In (25), sem spilar með Paris Saint-Germain í Frakklandi. (Fichajes)
Barcelona hefur áhuga á ástralska varnarmanninum Lucas Herrington (18), sem er samningsbundinn Colorado Rapids í Bandaríkjunum. (Goal)
Pólski framherjinn Robert Lewandowski (37) og Leon Goretzka (31) eru báðir sagðir á leið til Chicago Fire í MLS-deildinni. Lewandowski er að renna út á samningi hjá Barcelona og það sama á við um Goretzka, sem mun yfirgefa Bayern á næstu dögum. (Yahoo Sports)
Ítalski þjálfarinn Roberto Mancini er klár í að taka aftur við ítalska landsliðinu eftir að hafa yfirgefið katarska félagið Al-Sadd. (Fabrizio Romano)