Fyrir leik
Magnús Haukur spáir í 9. umferðina
Fótboltaþjálfarinn Magnús Haukur Harðarson spáir í leikina að þessu sinni.
Stjarnan 4 - 1 Fram
Eftir ákveðið “meltdown” eftir bikarleikinn mætir Óskar Smári með nýja klippingu og fer það vel í leikmenn liðsins og skora fjögur mörk í öllum regnbogans litum. Fram er auðvitað hátt uppi eftir bikarinn í vikunni og dalnum dreymir.

22.06.26 09:00
Magnús Haukur spáir í 9. umferð Bestu kvenna
Fyrir leik
Fram
Framkonur aftur á móti eru í botnbaráttu og sitja í 9. sætinu með 4 stig, 1 stigi á undan Þór/KA í 10. sætinu og 4 stigum á eftir Val í 8. sætinu.
Framkonur hafa ekki verið að ríða feitum hesti í Bestu deildinni í sumar og hafa einungis unnið einn leik og gert eitt jafntefli. Þá hafa þær ekki skorað nema 8 mörk.
Þær hins vegar hljóta að koma hér í dag með sjálfstraust og kassann út en þær skoruðu hvorki meira né minna en 7 mörk í Mjólkurbikarnum sl. miðvikud. gegn Lengjudeildarliðinu FHL.
Þær ættu því að hafa náð að æfa sig nóg í að skora, Taylor Marie Hamlett skoraði m.a. þrennu og þá náði Brookelynn Paige Entz að skora sitt fyrsta mark fyrir Fram.
Ég vil því sjá þær koma með smá blóð á tönnunum og tilbúnar að sækja sigur sem mun hjálpa þeim gríðarlega í botnbaráttunni!

Fyrir leik
Stjarnan
Stjörnukonur sitja fyrir þennan leik í 3. sætinu með 14 stig líkt og ÍBV í 4. sætinu en hafa betri markatölu.
Þá eru þær 4 stigum á eftir Breiðablik í 2. sætinu, sem Stjarnan gerði sér lítið fyrir og sigraði í síðustu umferð 3-1 á Kópavogsvelli. Frábær frammistaða sem þær ætla vafalaust að byggja ofan á í þessum leik.
Það er þó spurning hvort einhver þreyta sitji í Stjörnukonum en þær töpuðu naumlega 2-1 gegn Grindavík/Njarðvík í hörku framlengdum leik í Grindavík sl. fimmtud. Það getur heldur betur tekið á þreyttar lappir að spila 120 mínútur á grasvelli.
En það breytir því ekki að hér erum við komin í Bestu deildina og þrjú stig í pokann getur skipt sköpum í toppbaráttunni!

Fyrir leik
9. umferðin
Þrír leikir eru spilaðir í dag, tveir klukkan 18:00 og svo þessi leikur klukkan 19:15. Umferðin klárast svo á morgun með tveimur leikjum klukkan 19:15.
9. umferðin lítur þá svona út:
Í dag:
18:00 Þór/KA - Þróttur
18:00 ÍBV - Breiðablik
19:15 Stjarnan - Fram
Á morgun:
19:15 Grindavík/Njarðvík - Víkingur
19:15 FH - Valur

Fyrir leik
Dómarateymi kvöldsins
Á flautunni í kvöld verður Bergrós Lilja Unudóttir og henni til halds og trausts verða Eydís Ragnarsdóttir og Ingibjörg Garðarsdóttir Briem aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Ágúst Hjalti Tómasson og eftirlitsmaður í dag er Þorsteinn Ólafs.

Fyrir leik
Besta deildin kallar!
Verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu þráðbeint frá Samsungvellinum þar sem Stjarnan tekur á móti Fram í 9. umferð Bestu deildarinnar
Leikurinn hefst á slaginu 19:15!





