Fyrir leik
HK bar sigur úr bítum í fyrri umferðinni
Fyrri leikur þessara liða í Lengjudeildinni 2026 fór fram á Verkalýðsdeginum sjálfum 1. maí, þar vann HK 2-1 sigur á Ægi þar sem Þorsteinn Aron Antonsson og Dominik Radic skoruðu mörk HK. Harley Willard skoraði mark Ægi í lok leiksins. Síðast þegar liðin mættust
Fyrir leik
Þriðja liðið
Dómari leiksins í dag Aðalbjörn Heiðar Þorsteinsson og honum til halds og traust eru þeir Arnþór Helgi Gíslason og Óliver Thanh Tung Vú. Eftirlitsmaður KSÍ er Bergur Þór Steingrímsson.

Fyrir leik
Jójó-ið í Kórnum
Gengi HK hefur verið rosalega kaflaskipt allt tímabilið, liðið hefur ekki náð að tengja saman tvo sigurleiki í röð síðan í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins gegn Gróttu og Ægi. Í síðustu umferð fóru þeir á Seltjarnarnes og mættu Gróttu, leikar enduðu 2-1 fyrir Gróttu í viðburðaríkum leik, þar sem fóru tvö rauð spjöld á loft.
Markahæsti leikmaður HK er Dominik Radic með sjö mörk, hann er næst markahæsti leikmaður deildarinnar ásamt Guðmundi Tyrfingsyni leikmanni Fylkis og Óðni Bjarkasyni leikmanni Aftureldingar.


Fyrir leik
Dapurt gengi heimamanna
Ægir sitja í neðsta sæti Lengjudeilarinnar þegar tímabilið er aðeins meira en hálfnað með 8. stig. Liðið hefur ekki unnið í sex leiki í röð og aðeins fenguð eitt stig úr þeim leikjum. Það er ljóst að Ægismenn þurfa aðeins að stíga á bensíngjöfina ef tímabilið á ekki að enda með miða niður í 2. deildina.
Markahæsti leikmaður Ægis er Jordan Adeyemo með 6 mörk.

Fyrir leik
13. umferðin
13. umferðin byrjar á fjögurra leikja veislu í kvöld, þar sem er meðal annars á dagsskrá Suðurnesjaslagur milli Njarðvíkur og Grindavíkur. Á morgun taka Völlarar gegn Aftureldingu á Húsavík og umferðin endar síðan á Ísafirði mánudagskvöld þar sem Vestri tekur á móti Fylki.
13. umferðin lítur svona út:
Föstudagur:
ÍR-Þróttur 19:15 (Þarfaþingsvöllurinn)
Njarðvík-Grindavík 19:15 (JBÓ-völlurinn)
Ægir-HK 19:15 (GeoSalmo-völlurinn)
Leiknir R.- Grótta 19:15 (Leiknisvöllur)
Laugardagur:
Völsungur-Afturelding 14:00 (GPG-völlurinn)
Mánudagur:
Vestri-Fylkir 20:15 (Kerecis-völlurinn)

Fyrir leik
Lengjudeildinn kallar!
Góða kvöldið kæra fólk og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu leiks Ægis og HK. Leikurinn er partur af 13. umferð Lengjudeildarinnar og fer af stað á slaginu 19:15.



