Leik lokið!
ÞÞÞ flautar þetta af!
89. mín
Peter áræðinn!
Lætur vaða en Viktor ver í markinu.
84. mín
Þeir eru bara að slátra þessu!
Jakob Byström
Byström fær boltann í gegn og slúttar framhjá Aroni.82. mín
InnPeter Ingi Helgason
ÚtKristófer Kristjánsson
79. mín
DAUÐAFÆRI!
Robbi Hauks stingur Affi af, sendir þvert fyrir markið á Byström sem er aleinn og þarf bara að setja boltann í netið en setur hann framhjá!
79. mín
InnMár Ægisson
ÚtKristófer Konráðsson
79. mín
InnIsrael Garcia Moreno
ÚtSimon Tibbling
71. mín
5-1!
Kristófer Konráðsson (stoðsending: Jakob Byström)
Byström með fyrirgjöf frá vinstri og Krissi Konn ræðst á boltann og setur hann í netið.60. mín
MAAAARK!
Haraldur Einar Ásgrímsson
Halli með annað!55. mín
Tæknilegir erfiðleikar hafa verið að hrjá okkur
54. mín
MAAAARK!
Haraldur Einar Ásgrímsson
Skorar á fjær.46. mín
Þórsarar setja leikinn af stað aftur!
Krossum fingur að það verði engin vandamál með færslurnar.
45. mín
Hálfleikur
Það er kominn hálfleikur hérna!
45. mín
Þórsarar eru að minnka muninn!
Ágúst Eðvald Hlynsson
Einar Freyr með aukaspyrnu inn á teiginn og Ágúst Eðvald kemur boltanum í netið.43. mín
Færslurnar eyðast bara!
Fram er komið í 2-0, sjáum hvort þessi færsla lifi.
37. mín
MAAAARK!
Ægir Jarl Jónasson
Ægir stangaði inn hornspyrnu frá Krissa Konn.26. mín
Fram fær horn!
Krissi Konn neglir henni bara í innkast hinumegin.
23. mín
Þetta er ansi dýrt fyrir Þórsarar sem hafa verið flottir hér í upphafi leiks.
Þetta var gjöf!
Freyr Sigurðsson
Þórsarar að taka markspyrnu, Kristófer fær boltann inn á miðjuna og rennur, Freyr að setja frábæra pressu og vinnur boltann, valsar einn gegn Aroni og slúttar vel í fjærhornið.Þetta er ansi dýrt fyrir Þórsarar sem hafa verið flottir hér í upphafi leiks.
19. mín
Þórsarar fá horn!
Það er kraftur í Þórsurum hérna í upphafi leiks.
Einar Freyr Halldórsson tekur spyrnuna en hún með vindinum afturfyrir markið.
Einar Freyr Halldórsson tekur spyrnuna en hún með vindinum afturfyrir markið.
17. mín
Þeir halda áfram að hóta!
Fúsi keyrir upp vinstra megin og sendir fyrir, boltinn er skallaður út á Bjarna Guðjón sem lætur vaða og Greko reynir að breyta stefnu boltans að markinu en setur hann framhjá.
15. mín
Sláin!
Þórsarar eru að hóta, Sverrir keyrir upp hægra megin og lyftir boltanum fyrir markið þar sem vindurinn tekur hann aðeins og boltinn smellur í slánna.
Framarar koma hættunni svo frá.
Framarar koma hættunni svo frá.
12. mín
Frábær sókn hjá Þór!
Kristófer Kristjánsson með geggjaðan sprett inn á teiginn hægra megin og lyftir boltanum skemmtilega á fjær þar sem Fúsi er í baráttunni við Kennie en Fram kemur boltanum frá, ekki langt og þá keyrir Greko vinstra megin, hamrar að markinu og Viktor blakar boltanum yfir slánna og í horn.
Villi múr tók hornið og setti það bara upp í vindinn og afturfyrir.
Villi múr tók hornið og setti það bara upp í vindinn og afturfyrir.
8. mín
Dauðafæri!
Frábærlega spilað hjá Fram inn á teig Þórsara hægra megin þar sem Tibbling sker boltann út á vítapunktinn fyrir Frey sem hamrar yfir markið úr frábæru færi.
Þarna gat Freyr komið Fram yfir.
Þarna gat Freyr komið Fram yfir.
7. mín
Bjarni Guðjón með eina bjartsýnistilraun af svona 40 metrum, en hittir ekki markið.
4. mín
Fyrsta færið er Framara!
Boltinn dettur fyrir Fred fyrir framan teiginn sem fór á vinstri fótinn og lætur vaða en boltinn framhjá.
1. mín
Leikur hafinn
Fram byrjar með boltann og gefur bara beint á Aron Birki.
Fyrir leik
Liðin ganga til vallar.
Það er frekar vindasamt hérna í Úlfarsárdalnum og blæs vindurinn á annað markið.
Það er engin snilldar mæting í stúkuna, sem kannski bæði er afleiðing þess að veðrið er ekki skemmtilegt og það er 12. júlí, þar sem fólk er líklega mikið til í burtu í sumarfríum, mögulega að elta veðrið fyrir austan.
Ég sé fólk í úlpum í stúkunni, 12. júlí! - Það segir allt sem segja þarf um þetta veðurfar sem landið okkar býður uppá...

Lið Þórs í dag:

Fyrir leik
Lið Fram í dag:

Fyrir leik
Eiður Ben í banni og þá kemur alvöru aðstoðarþjálfari inn!
Dömur mínar og herrar.
Þjálfarar Þórs í dag!

Þjálfarar Þórs í dag!
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár!
Fram gerir þrjár breytingar frá jafnteflinu gegn Keflavík, Krissi Konn, Halli Ásgríms og Simon Tibbling koma inn fyrir Robba Hauks, Má Ægis og Israel Garcia.
Eiginlega fjórar breytingar á Framliðinu þar sem Rúnar Kristins er kominn aftur eftir veikindi!
Engar breytingar á Þórsliðinu eftir ævintýralega jafnteflið gegn KR.
Eiginlega fjórar breytingar á Framliðinu þar sem Rúnar Kristins er kominn aftur eftir veikindi!
Engar breytingar á Þórsliðinu eftir ævintýralega jafnteflið gegn KR.
Fyrir leik
Þriðja liðið!
ÞÞÞ mundar flautuna í dag, einn minn uppáhalds dómari í þessari deild.
Egill Guðvarður og Eysteinn Hrafnkels halda um flöggin.
Elías Ingi sér um skiltið.
Viðar Helgason mun þá sitja með skrifblokkina í stúkunni.

Egill Guðvarður og Eysteinn Hrafnkels halda um flöggin.
Elías Ingi sér um skiltið.
Viðar Helgason mun þá sitja með skrifblokkina í stúkunni.

Fyrir leik
Staða liðanna:
Framarar eru á skriði, í toppbaráttu (ef slíkt má kalla með Víkinga lang efsta) og í hörku samkeppni við KR um annað sætið, það er smá bil svo niður í Blikana í fjórða sætinu svo það er smá Evrópubarátta í þessu.
Þórsarar hafa kroppað í einhver stig undanfarið, gerðu meðal annars jafntefli við KR í síðustu umferð, þeir hafa einungis unnið tvo leiki þó og var annar þeirra einmitt gegn Fram fyrir norðan, þar sem Aron Birkir átti stórleik og Haugland skoraði glæsilegt mark, Þórsarar eru þó á botninum með 8 stig líkt og FH en með langverstu markatöluna.

Góðan daginn kæri lesandi!
Og vertu velkominn í beina textalýsingu frá leik Fram og Þórs í Bestu deild karla.

Skýrsla og viðtöl á leiðinni.