Fotbolti.net
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Lengjudeild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
3 - 2
Leiknir R.
Leiknir R.
Joacim Emil Godhei Holtan 5'1 - 01 - 110' Axel Freyr HarðarsonÓðinn Bjarkason 18'2 - 1Joacim Emil Godhei Holtan 63'3 - 13 - 290' Jóhann Kanfory Tjörvason
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson
Myndir: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

SKÝRSLAN: Afturelding halda áfram að vinna

Hvað réði úrslitum?

Mér fannst Afturelding, heilt yfir, betri í leiknum. Þeir sköpuðu sér fleiri hættulegar stöður og hefðu auðveldlega getað skorað fleiri mörk en Leiknismenn náðu þó að hanga inn í þessu og hefðu alveg getað fengið stig út úr leiknum en mér hefði ekki þótt það sanngjarnt.

Bestu leikmenn

1. Joacim Holtan (Afturelding)

Joacim, gefðu honum boltann, Holtan stóð undir nafni í dag og setti tvö góð framherja mörk í dag. Alltaf ógn þegar hann á í hlut og miðverðir hins liðsins þurfa alltaf að vera að pæla í því hvar hann er. Alvöru fengur sem Holtan var fyrir Mosfellinga.

2. Bjartur Bjarmi Barkarson (Afturelding)

Bjartur Bjarmi fannst mér varla stíga feilspor í leiknum. Hann er með svo ótrúlega góða tilfinningu fyrir leiknum og tekur langoftast rétta ákvörðun með boltann. Spilar fram á við þegar það á við en hægir á og setur hann til baka þegar þess þarf. Heldur jafnvæginu í þessu Aftureldingarliði varnarlega líka og fær líklega ekki nægilega mikið hrós fyrir sína spilamennsku almennt.

Atvikið

Þriðja mark Aftureldingar gerði eiginlega út um leikinn. Leiknismenn fengu einhverjar stöður til að jafna í stöðunni 2-1 en þegar Afturelding komust í tveggja marka forystu þá var þetta aldrei spurning. Leiknismenn minnka vissulega muninn en það var bara of seint.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding halda toppsætinu sama hvernig þessi umferð spilast. Þeir eru á frábæru skriði og eru með fimm græna punkta í síðustu fimm leikjum. Ekki bara eru þeir að ná í stigin þeir eru líka að spila feikilega vel. Leiknir eru um miðja deild með sín 19 stig og eru í baráttunni um síðasta umspilssætið eins og taflan lítur út í dag.

Vondur dagur

Ólafur Íshólm Ólafsson gerði vond og sjaldséð mistök í þriðja marki Aftureldingar sem fór með leikinn fyrir Leikni. Óli er búinn að vera frábær fyrir Leikni í sumar og vinna fyrir þá stig en gerir dýrkeypt mistök í dag.

Dómarinn - 6

Stefán og hans teymi voru bara fínir í dag. Mér fannst línan oft á tíðum skrýtin, brot sem að hefðu klárlega átt skilið aukaspyrnur fengu þær ekki á meðan sumt sem var flautað á var alls ekki aukaspyrna. Tvö vítaköll frá heimamönnum sem var erfitt að sjá hvort það væri eitthvað í en það hafði svo sem ekki úrslitaáhrif.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.