SKÝRSLAN: FH slátraði nýliðunum og heldur toppsætinu
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn byrjaði nokkuð jafnt með liðunum og Grindavík/Njarðvík tók forystu sem á þeim punkti þótti ekkert ósanngjarnt. Eftir að hafa náð forystu virtist það kveikja eitthvað bál innra með FH sem tóku algjörlega yfir leikinn og voru yfir á öllum sviðum leiksins. Um leið og FH náði inn jöfnunarmarkinu fannst manni þetta aldrei vera spurning hvar stigin þrjú myndu enda. Sannfærandi sigur FH staðreynd og hefði vel geta verið stærri.
Bestu leikmenn
1. Helena Maree Errington (FH)
Var gífurlega öflug á miðjunni hjá FH. Hljóp helling og skoraði tvö góð mörk að auki. Fyrsta markið varð kveikjan að þessu öllu og hún skilaði frábæru framlagi í kvöld.
2. Ída Marín Hermannsdóttir (FH)
Er hún ekki besti leikmaður Bestu deild kvenna? Hún var ógnandi hvað eftir annað í kvöld og það var alltaf einhver hætta sem skapaðist þegar hún náði að snúa. Skoraði gott mark af vítapunktinum eftir að hafa sótt vítið sjálf með frábærum spretti.
Atvikið
Ída Marín kemst inn í lélega sendingu við miðju hjá Grindavík/Njarðvík og snýr að marki og æðir af stað. Klobbar einn varnarmann og er svo negld niður í teignum og fær víti sem hún skorar úr og kemur FH í forystu fyrir hlé.
Hvað þýða úrslitin?
FH heldur toppsætinu og er tveimur stigum á undan Breiðablik með 26 stig eftir 11 umferðir. Grindavík/Njarðvík sitja í 6.sæti deildarinnar með 12 stig í þéttum pakka en aðeins þrjú stig eru frá neðsta sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Grindavík/Njarðvík átti bara vondan dag í kvöld. Væri ósanngjarnt að taka einhverja fyrir sérstaklega. Markvörðurinn Genevieve er mögulega sú eina sem getur farið með höfuðið hátt úr þessum leik sem er hálf ótrúlegt fyrir markmann sem þurfti að sækja boltann sex sinnum úr netinu.
Dómarinn - 7
Allt í lagi ekki gott var einhvertíman sagt. Sleppti sumum augljósum brotum sem vel hefði verið hægt að dæma á. Lét leikinn fyrir vikið kannski fljóta meira svo að einhverju leyti tvíeggja sverð, hvort viltu stopp í leikina eða flotið. Gefum þessu solid sjöu.




